Fréttablaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 8
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
PALESTÍNA „Þetta er bein afleiðing
áratuga langrar refsileysisstefnu
Ísraelsstjórnar gagnvart hryðju-
verkum landtökumanna,“ segir í
yfirlýsingu frelsissamtaka Palest-
ínumanna, PLO, um árás á Vestur-
bakka Jórdanár.
Átján mánaða drengur lést
aðfaranótt gærdagsins í árás á tvö
heimili í bænum Duma á vestur-
bakkanum. Foreldrar hans og bróð-
ir hlutu alvarlega áverka.
Talsmenn PLO segja ísraelska
landtökumenn hafa kastað eld-
sprengjum á heimilið með þeim
afleiðingum að í því kviknaði.
„Við komum að foreldrunum úti,
skaðbrenndum, þau sögðu að sonur
þeirra væri inni þannig að við
náðum í hann. Þegar við komum
út aftur sögðu þau að annar sonur
þeirra væri líka inni en við gátum
ekki bjargað honum, eldurinn stóð
í vegi fyrir okkur,“ sagði Ibrahim
Dawabsha, nágranni, við Reuters.
Slagorð á hebresku fundust krot-
uð á veggi hússins ásamt Dav-
íðsstjörnu, merki Ísraels. Meðal
þess sem var krotað voru orðin
„hefnd“ og „verðmiði“. Óljóst er
hvað átt er við með orðinu hefnd
en árásin minnir um margt á aðrar
„verðmiða árásir“ á svæðinu þar
sem herskáir ísraelskir landtöku-
menn ráðast á heimili Palestínu-
manna á Vesturbakkanum.
Ísraelska lögreglan lét rífa tvær
hálfbyggðar blokkir á Vesturbakk-
anum á miðvikudag við mikla reiði
landtökumanna. Ríkisstjórn Net-
anyahus samanstendur af fimm
flokkum og eru nokkrir þingmenn
hennar hlynntir landtöku á Vestur-
bakkanum. Það er talin ástæða þess
að Netanyahu heimilaði í kjölfar
niðurrifsins byggingu þrjú hundr-
uð heimila fyrir Ísraela á Vestur-
bakkanum.
Um 500.000 Ísraelar búa á Vest-
urbakkanum en Ísrael hertók svæð-
ið árið 1967. Byggð Ísraelsmanna
þar gengur gegn alþjóðalögum en
ríkisstjórn Ísraels er ósammála.
„Þetta eru hryðjuverk í orðsins
fyllstu merkingu. Ísraelsríki stend-
ur gegn hryðjuverkum, sama hver
fremur þau,“ sagði Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Ísraels,
um árásina. thorgnyr@frettabladid.is
Palestínumenn segja Ísraela
seka um morð á ungbarni
Palestínumenn saka Ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum um ungbarnamorð. Forsætisráðherra Ísraels
fordæmir árásina. Forsætisráðherrann heimilaði byggingu þrjú hundruð heimila Ísraela á Vesturbakkanum.
ÁRÁS Þessi mynd af Ali Saad Dawabsha, átján mánaða palestínskum dreng, varð
eftir í brunarústum húss á vesturbakkanum. Drengurinn lést í brunanum.
NORDICPHOTOS/AFP
Þetta eru
hryðjuverk í
orðsins fyllstu
merkingu.
Ísraelsríki
stendur gegn
hryðjuverk-
um, sama hver
fremur þau.
Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels.
Siminn.is/spotify
NÚ STREYMIR ÞÚ TÓNLISTINNI
FYRIR 0 KR. MEÐ SPOTIFY PREMIUM
Á FARSÍMANETI SÍMANS
Backtrack áfengismælir
Snjall áfengismælir sem tengist
þráðlaust við snjallsímann.
Gott að taka stöðuna.
690 kr.
á mánuði í 12 mánuði
Staðgreitt: 7.990 kr.
Samsung Galaxy S6
Einstök hönnun, einstakir eiginleikar.
Samsung Galaxy S6 með þráðlausri
hleðslu og 16 megapixla myndavél.
4.990 kr.
á mánuði í 24 mánuði
Staðgreitt: 109.990 kr.
iGrill
Grillið hefur aldrei hljómað eins vel!
iGrill kjöthitamælirinn tengist símanum
þráðlaust og grillmaturinn verður
fullkominn.
790 kr.
á mánuði í 12 mánuði
Staðgreitt: 8.990 kr.
Bose SoundLink Colour
Hlustaðu á tónlistina í frábærum gæðum
hvar og hvenær sem er. Fullkominn
ferðafélagi ásamt Spotify Premium.
1.490 kr.
á mánuði í 18 mánuði
Staðgreitt: 24.990 kr.
HEFUR ALDREI
EINS VEL!
VERSLUNARMANNA-
HELGIN
Orkukubbur fylgir öllum
seldum símum fram yfir
verslunarmannahelgi*
Orkukubburinn er frábær ferðafélagi og kemur líka
sterkur inn á löngum dögum þegar nóg er að gera og
ekki gefst tími til að gulltryggja hleðslu á símtækið þitt.
340 kr. greiðslugjald leggst við í hverjum mánuði ef greiðslum er dreift á kreditkort.
*Orkukubbar fylgja með seldum símum í verslunum Símans til 5. ágúst 2015.
Tólf starfsmönn-
um á veitinga-
sviði fyrirtækis-
ins ISS var í gær
sagt upp störfum
og fengu nokkr-
ir boð um endur-
ráðningu í kjöl-
farið.
„Þetta teng-
ist líka nýlegum
kjarasamningum sem við þurfum
að fara eftir. Þeir voru auð vitað
þungt högg og við þurfum að endur-
skipuleggja okkar starfssemi með
tilliti til þeirra,“ segir Guðmund-
ur Guðmundsson, forstjóri ISS og
bætir við að flestir hafi fengið boð
um endurráðningu.„Endurráðning-
in er þá með breyttum kjörum eða
öðrum vinnutíma.“
Guðmundir segir að sumir ætli að
þiggja endurráðningu en aðrir séu
að hugsa málið. - ngy
Skipulagsbreytingar hjá ISS:
Tólf sagt upp
störfum hjá ISS
GUÐMUNDUR
GUÐMUNDSSON
HAGSTOFAN Verðmæti afla upp úr
sjó nam tíu milljörðum króna í
apríl, það er 8,8 prósentum minna
en í apríl 2014. Verðmæti þorsks var
mest eða um 3,8 milljarðar króna
sem er 7,2 prósenta samdráttur
miðað við apríl í fyrra.
Verðmæti kolmunna var 35,7 pró-
sentum minna en í sama mánuði í
fyrra.
Á tólf mánaða tímabili frá maí
2014 til apríl 2015 jókst aflaverð-
mæti um sjö prósent miðað við sama
tímabil árið áður. - ngy
Verðmæti afla minnkaði:
Verðmæti afla 10
milljarðar í apríl
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
F
-1
8
B
C
1
5
9
F
-1
7
8
0
1
5
9
F
-1
6
4
4
1
5
9
F
-1
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K