Ský - 01.08.2007, Síða 16
16 ský
eldri en ég og gátu svalað eðlislægri forvitni minni um svo margt.
Stundum er spennandi að sækja í reynslubrunn annarra. En
stundum geta helstu kostir manna snúist upp í andhverfu sína.“
Hjónaband þeirra Guðmundar stóð í átta ár og gaf af
sér tvö börn, Ingólf, sem nú er 28 ára og nýfluttur heim frá
Kaupmannahöfn eftir fimm ára nám í viðskiptafræðum og
alþjóðlegri markaðssetningu, og Ragnhildi, sem er 22 árs og að
hefja lögfræðinám.
Þetta er svolítið annar vegur en móðir þeirra fetaði ung?
„Já, og líklega fengu þau nóg af félagslegri virkni þegar þau
lufsuðust með mér á barnsaldri í mínu pólitíska stússi. Þau hafa
algjörlega fengið að ráða sér, hafa sínar skoðanir og eru ólík. Og
þegar við ræðum málin þarf „big mama“ sjálfsagt að passa það að
setja sig ekki ómeðvitað á háan hest og þykast vita allt betur, sem
hún gerir ekki. Þau eru yndisleg börn sem ég er stolt af.“
Aldrei fór það sem sagt svo að unga stúlkan sem forðaðist
að vera á föstu vegna meðfylgjandi frelsisskerðingar yrði ekki
ástfangin. „Það er lífsnauðsynlegt að verða ástfangin. En það
getur verið flókið. Til dæmis er hægt að vera ástfangin af fleirum
en einum í einu. Þá getur verið þægilegt og praktískt að hafa
viðföngin í mörgum löndum! Ég mæli með því.“
Ertu ástfangin núna?
„Nei, eiginlega ekki. En það er ekkert mál. Maður reynir
ekkert að verða ástfanginn. Það bara hellist yfir, þegar það gerist.
Þá kemur maður engum vörnum við.“
Það hefur vakið athygli að Birna tekur virkan og áberandi þátt í
Gay Pride-hátíðahöldunum. Þegar hún er spurð um það svarar hún
að það skipti engu máli þótt fólk haldi að hún sé „gay“ eða „bi“.
„Ég spyr annað fólk aldrei um slíkt. Þetta er einkamál. Og ég ætla
bara að leyfa þjóðinni að vera forvitin um þetta áfram. Gleðigangan
er spurning um mannréttindi og þeim legg ég ævinlega lið. Þar fyrir
utan skiptir engu máli hver kynhneigð mín er.“
Eru karlmenn hræddir við þig - eða kannski fólk yfirleitt?
„Stundum. En ég get ekkert pælt í því. Þegar við Guðmundur
kynntumst hafði hann verið langdvölum erlendis og vissi nánast
ekkert um mig og mitt orðspor sem stórhættulegs lögguskelfis
og hann hafði algjörlega farið fram hjá mér. Við mættumst því
með hreint borð sem var ofboðslega fínt. En það er alveg rétt:
Stundum hitti ég fólk og eftir smáspjall segir það; Ja, hérna, þú
ert bara eins og hver önnur manneskja! Það er mér að meinalausu
ef fólk dundar sér við að búa til hugmyndir um mig; það gerir þá
ekkert verra af sér á meðan.“
Við hvað ertu sjálf hrædd?
„Einna helst við sjálfa mig. Ég get stundum farið óþarflega
fram úr sjálfri mér. Þá verð ég að bíta í það súra epli. Og ég
óttast stundum heimsku og fordóma í víðu samhengi. Það er svo
hættulega auðvelt að ala á slíku, hvort heldur er til að upphefja
sjálfan sig og komast út úr eigin vanmætti eða safna fólki saman
til illvirkja.“
Ljóð og lífsgleði
Birna sendi frá sér ljóðabókina Birna/BIRNA fyrir þremur árum.
Hún segist ekki hafa ort lengi. „Ég hef alla tíð verið hrifin af
ljóðum en ég byrjaði að skrifa sjálf stutta ljóðræna texta fyrir
áhrínisorð
strjúki fingur þínir
húð annarrar
minnast gómarnir
mýktar húðar minnar
kyssi varir þínar
annarrar varir
fyllast þær söknuði
eftir kitlandi tungu minni
þreifi hendur þínar
brjóst annarrar
villast þær
tómar án brjósta minna
spenni armar þínir
lendar annarrar
stirðna þeir
af löngun í lendar mínar
leitirðu fullnægju í sköpum annarrar
hverfur geta þín
limur þinn hjaðnar
ekkert lifir
utan endalaus þrá
eftir líkama mínum
rökum og ilmandi
þannig
og þannig
verður
um eilífð alla
Úr ljóðabókinni Birna/BIRNA
eftir Birnu Þórðardóttur.