Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 41

Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 41
 ský 1 elva: Lögin sem komu út á diskinum okkar Herra ég get tjúttað eru allt þekkt erlend dægurlög sem við snerum yfir á íslensku. Það leynist mikil kaldhæðni í að þýða svona beint en okkur finnst það mjög fyndið. Þegar við semjum sjálfar erum við held ég allar að semja. Við erum auðvitað misflinkar en æfingin skapar meistarann stendur einhvers staðar. Eins og er æfum við ekki mikið. Við æfðum vel fyrir túrinn okkar út á land til að fylgja disknum eftir. Hópurinn samanstendur af fimm drottningum, karríer-konum sem allar eru á fullu í alls konar vinnum þannig að oft reynist erfitt að ná okkur saman til að spila. Það breytir svosem ekki miklu fyrir okkur, þess meira fjör er þegar við náum loks saman. Við gætum verið að spila miklu meira ef við vildum, ef við værum ekki alltaf svona uppteknar. Þetta er fínt eins og þetta er og við njótum hverrar sekúndu þegar við hittumst. Hafið þið ekki lent í skemmtilegum atvikum á tónlistarferlinum? elva: Þau eru nokkur en við vorum til dæmis að spila í afmælisveislu í sumar og skiptum um hljóðfæri eftir eitthvert lagið. Katla sest við trommurnar og spyr mig af hverju þessi kápa liggi ofan á trommunum. Ég man ég svaraði henni að ég hefði ekki hugmynd um það, nema hvað, svo byrjar lagið og það heyrist óvenjulágt í trommunum, eiginlega bara ekkert svo mér er litið á Kötlu sem djöflast á trommunum en kápan liggur þar ennþá kyrr og óhreyfð. Við náðum að tala um þetta eftir lagið og þá kom ástæðan í ljós. Vigga hafði verið á trommunum í laginu á undan og verið kalt á fótleggjunum svo hún lagði yfir þá kápuna. Svo þegar við skiptum um hljóðfæri, gleymdi Vigga að taka með sér kápuna og lagði hana svona frá sér. Aumingja Katla hélt að kápan væri þarna til að dempa trommurnar svo hún lét að sjálfögðu bara vaða. katla: Jú, við höfum heldur betur lent í skondnum atvikum, á sviði sem og utan sviðs. Eitt sinn slitnaði bassastrengur hjá Elvu Ósk í Stapanum í Keflavík. Hún var ekki með neinn aukastreng og við sátum í bakherberginu í miklum vangaveltum. Pásan orðin helst til löng og við að reyna að finna út hvort hægt væri að spila á þrjá strengi. Það gekk ekki upp svo sá slitni var þræddur upp og þannig var spilað eftir hlé. Ekki var það nú hljóð sem sagði sex og við hálfskömmustulegar það sem eftir lifði. Þannig að það er greinilega ýmislegt óvænt sem getur gerst? elva: Já, það má nú segja og það finnst okkur bara skemmtilegt. Við eigum aðdáendur á öllum aldri og það er svo gaman. Stúdíóvinnan á Herra ég get tjúttað var frábær því upptökustjórinn Gunni Árna er besti vinur okkar og oftast kallaður sjötti heimilistónninn af okkur stelpunum. Það fylgir þessum stelpum svo mikil gleði að ég gæti talið endalaust upp fyndin og eftirminnileg atvik. katla: Ég er alveg sammála Elvu í því, Heimilistónar eru ein stór skemmtun frá A til Ö. Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að vera í hljómsveitinni? katla: Það er rosalega gaman í þessari hljómsveit og þetta samstarf veitir mikla lífsfyllingu fyrir mig. Við erum allar góðar vinkonur og höfum upplifað ótrúlega hluti í þessu samstarfi. elva: Það hefur mikla þýðingu fyrir mig að vera í Heimilistónum. Við erum miklar vinkonur og fáum mikið út úr því að hittast. Við gerum bara það sem okkur finnst skemmtilegt. Andinn er mjög jákvæður og það er alltaf fjör og mikil gleði í kringum okkur, sem sagt BARA jákvætt. Svo er líka svo gott að kúpla frá dramatíkinni í leiklistinni og geta fengið útrás í tónlist og hlátri. sky,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.