Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 45
ský 5
mala og mala“ eins og Bubbi söng svo vel um hér um árið eru ekki í
góðum málum. Ef þeir hafa skuldað fyrir hefur skuldin ekki lækkað
og þeir verða oft fyrir aðkasti inni í fangelsunum og eru oftar en ekki
barðir þegar því er við komið og oft eru þeir krafðir um skaðabætur,
jafnvel milljónir. Þeir eru minntir á þetta jafnvel áratugum seinna
og yfirleitt er þeim tekið með varúð. Þó eru til þeir sem hafa hlotið
uppreist æru en þá hafa þeir sjálfir komist yfir peninga og farið að
höndla með efni og reynst áreiðanlegir í því sem þeir eru að gera.
Þar með eru aðrir orðnir undir þeim og þá hefur í einstaka tilfellum
fennt yfir syndirnar.
Aftur á móti er stelpum í bransanum fyrirgefið meira en strákum
og þó að þær kjafti er það ekki litið jafnalvarlegum augum. Það
virðist vera meira af stelpum en strákum sem eru tilbúnar til að gerast
burðardýr og þær fá líka styttri dóma. Sumir segja að meiri líkur séu
á að þær komist í gegnum tollinn en að sama skapi er líklegra að þær
brotni saman í yfirheyrslum. Það er minni möguleiki á að hægt sé að
láta þær standa skil á tjóninu því það er ekki hægt að nota barsmíðar
á stelpur, slíkt er bara ekki gert.
Leið upp metorðastigann
- Burðardýr getur aðeins stundað sína iðju þar til það næst en þá
er gamanið búið. Margir sem byrjuðu eitt sinn sem burðardýr
eru orðnir „höfuðpaurar“ í málum í dag og því má segja að þetta
sé ein leið upp metorðastigann. Sem dæmi kemst ungur maður
sem er fíkniefnaneytandi og kaupir sín efni á götunni í kynni við
þá sem fyrir ofan hann eru. Síðan verða nokkrar ferðir úr þessum
kunningsskap inn og út úr landinu með efni fyrir þann sem selur
efnin. Þá fær viðkomandi oft einhverja peninga og oft ódýrari efni
á eftir. Þá fer hann að taka þátt í pökkum með öðrum, „leggja í
púkk“, og þar með á hann sitt eigið efni. Ef hlutirnir ganga upp (sem
oft gerist) notar hann hagnaðinn sem hann fékk út úr „púkkinu“
eftir einhvern ákveðinn tíma og finnur sér burðardýr til að smygla
efnunum fyrir sig og er þar með orðinn höfuðpaur.
Mér finnst þess vegna mjög villandi að tala alltaf um burðardýr
á þann hátt að aðrir séu að nota þau. Auðvitað er það oft þannig
en ekki nærri því alltaf. Jafnvel er það þekkt að burðardýrið á hlut í
annarri sendingu sem annað burðardýr er að koma með svo að þetta
á oft hvað í öðru (eins og íslensku fyrirtækin!).
Erlend burðardýr hafa það gott
- Erlendu burðardýrin sem hingað hafa komið og oft verið tekin
með gríðarlegt magn eru alveg sér á báti. Þeirra ferð er þaulskipulögð
frá upphafi til enda og það gerist allt erlendis (mikið í Litháen).
Þessu tengjast auðvitað Íslendingar oft sem eru búsettir erlendis. Af
þessum mönnum er það að segja að þeir hafa það afskaplega gott á
Litla-Hrauni. Þeim er séð fyrir fjármagni á meðan þeir eru að taka
út dóminn. Margir þeirra hafa setið inni í mörgum löndum fyrir
að vera burðardýr og þetta er beinlínis þeirra aðalatvinna. Fyrir
þessum mönnum er borin afskaplega mikil virðing og það er kannski
ekkert skrýtið því maður ber jú virðingu fyrir því sem er hættulegt
og margir þessara einstaklinga eru það. Sumir eru fyrrum hermenn
og flestir eiga það sameiginlegt að það er einhver maskína á bak
við þá sem sér um allt sem þá vantar, hvort sem það er að borga
lögfræðikostnað eða annað. Þeir vaða yfirleitt í peningum og skortir
ekkert á meðan þeir eru í steininum.“ sky,