Ský - 01.08.2007, Page 27
ský 27
Sólskin og
ævintýr
sIgríður anna ÞórðardóttIr, fyrrverandi
umhverfisráðherra, á góðar minningar af uppvaxtarárum sínum á
Siglufirði. Á þeim tíma var mikið vaxtarskeið í bænum og er Sigríður
Anna sannfærð um að tíðarandinn hafi mótað sig að miklu leyti.
„Bæjarbragurinn á Siglufirði var einstakur á uppvaxtarárum mínum
og ég tel að hann hafi haft mikil áhrif á mig sem einstakling. Það
voru mjög mikil umsvif í bænum, bjartsýni og trú á framtíðina,
síldarævintýrið í blóma og samfélagið sterkt. Margir öflugir einstaklingar
settu svip á bæinn, konur ekkert síður en karlar. Víðsýni, kraftur og
athafnasemi ásamt samskiptum við útlendinga mótuðu fólkið. Allt var
þetta veisla í farangrinum fyrir okkur sem vorum svo lánsöm að alast
upp á Siglufirði,“ segir Sigríður Anna með bros á vör.
Heimsbær með stórborgarbrag
Móðir Sigríðar Önnu, Margrét A. Árnadóttir, sem er 84 ára gömul,
býr enn á Siglufirði og nýlega flutti yngsta systir hennar þangað aftur
eftir nokkurra ára fjarveru. Sigríður Anna kemur af og til í stuttar
heimsóknir en viðurkennir að þær mættu vera fleiri.
„Siglufjörður er í mínum huga sólskin og ævintýr. Ég er fædd
árið 1946, elst sjö systkina og get á vissan hátt kallast afsprengi
síldarævintýrisins. Á æskuárum mínum var gífurleg uppbygging í
bænum og atvinnulíf og mannlíf í miklum blóma. Fyrstu æviárin
átti ég heima á Túngötunni skáhallt á móti Alþýðuhúsinu, við hlið
Mjölverksmiðju S.R., svo að með sanni má segja að ég hafi átt heima
í hringiðunni,“ útskýrir Sigríður Anna og segir jafnframt:
„Ég hef alltaf verið afar stolt af því að vera Siglfirðingur. Bærinn
er einstakur í atvinnusögu landsins og var í uppvexti mínum einn
stærsti kaupstaður landsins, stærsta útflutningshöfnin og í landlegum
fylltu áhafnir hundraða síldveiðiskipa götur bæjarins. Siglufjörður
var heimsbær með stórborgarbrag og fjölskrúðugt mannlíf á sumrin
en skóla- og menningarbær á veturna.“
Móðirin virk í flokksstarfi
Sigríður Anna var átta ára gömul þegar hún fluttist á Laugarveginn
þar sem börn bjuggu í hverju húsi og alltaf var eitthvað við að vera.
„Laugarvegurinn stendur við stórkostlegan stað. Við krakkarnir
ólumst upp við mikið frelsi og vorum úti svona nokkurn veginn
frá morgni til kvölds. Fjaran var ævintýrið við húsvegginn, fjöllin
fjársjóður leikja og mikið sótt í Hólsdal og Skútudal á góðviðrisdögum.
Svo var líka gaman að fá að fara með pabba á sjóinn og út á Siglunes
á æskustöðvar hans. Á Laugarveginum voru börn í nánast hverju húsi
og mörg þeirra á svipuðum aldri svo það var oft mjög glatt á hjalla
og mikil athafnasemi fékk útrás í leikjum okkar krakkanna,“ segir
Sigríður Anna.
En hvernig kviknaði svo áhugi þinn á
stjórnmálum?
„Ég var mjög forvitið barn og fylgdist vel með stjórnmálaumræðu,
bæði heima hjá mér og einnig las ég blöðin. Mogginn var í uppáhaldi
og staðarblöðin en allir stjórnmálaflokkar á Siglufirði gáfu út blöð.
Mamma tók virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og pabbi starfaði
nánast alla ævi við eigin rekstur. Mér var snemma kennt að taka
ábyrgð og standa á eigin fótum og það hefur alltaf komið sér vel fyrir
mig, jafnt í stjórnmálum sem öðru.“
fjórir stjórnmálamenn
LAUGARVEGUR 35 - Sigríður Anna Þórðardóttir.
Foreldrar hennar byggðu þetta hús
og móðir hennar býr þar enn.