Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 28

Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 28
 28 sk‡ Rík hefð fyrir stjórnmálastarfi BIrkIr Jón Jónsson hefur alla tíð átt lögheimili sitt á Siglufirði en hann ólst upp að Laugarvegi 31. Hann var aðeins 24 ára gamall þegar hann settist á þing árið 2003 fyrir Framsóknarflokkinn og er því einn af yngstu starfandi stjórnmálamönnum hér á landi. Dvelur þú mikið fyrir norðan? „Ég er í sveitarstjórn Fjallabyggðar og er því mikið fyrir norðan. Hins vegar er kjördæmið gríðarlega víðfeðmt, nær allt austur að Djúpavogi. Það tekur því einnig mikinn tíma að sinna kjördæminu í heild sinni og því mikilvægt að skipuleggja tíma sinn vel til að komast yfir sem mest, í þeim önnum sem starf þingmanns af landsbyggðinni krefst.“ Byrjaðir þú snemma að taka þátt í hinu pólitíska lífi á Siglufirði? „Það hefur alla tíð verið mikil pólitík á Siglufirði. Ég man eftir mér við að bera út blöð fyrir framsóknarfélagið heima en toppurinn var að sendast eftir listum á kjörstað þegar kosið var. Þá var alsiða að flokkarnir fylgdust með hverjir væru búnir að kjósa og hverjir ekki. Þetta var spjaldskrárvinna og mikill hamagangur síðustu tvær til þrjár klukkustundirnar áður en kjörstöðum var lokað, að hafa samband við þá sem ekki voru búnir að kjósa. Þetta fyrirkomulag er sem betur fer aflagt í dag en það gerðist þó fyrst við síðustu sveitarstjórnarkosningar, ótrúlegt nokk!“ Af hverju heldur þú að hið fjölbreytta og virka pólitíska landslag hafi verið svo ráðandi í heimabæ þínum í gegnum tíðina? „Eins og ég sagði áðan þá er rík hefð fyrir stjórnmálastarfi á Siglufirði sem ég efa ekki að hafi haft áhrif á þessa þróun. Siglfirðingar hafa einnig stutt sína frambjóðendur dyggilega, til dæmis í prófkjörum, stundum þó þannig að mörgum þykir nóg um! En hins vegar er staðreyndin sú að Siglufjörður var mjög stórt bæjarfélag á sínum tíma og ótrúlega margt fólk sem getur rakið ættir sínar í fjörðinn fagra, ætli það skýri ekki að stærstum hluta þann fjölda stjórnmálamanna sem teljast til Siglfirðinga.“ Þú byrjaðir ungur í stjórnmálum, kom ekkert annað til greina? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum, sem og félagsmálum almennt. Ég var formaður nemendafélagsins við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 1998-1999. Þá var komið að máli við mig um að taka þátt í prófkjöri framsóknarmanna fyrir alþingiskosningarnar 1999, sem ég gerði. Þegar ég lít til baka þá hef ég aldrei verið neitt annað en framsóknarmaður, enda ólst ég upp í því umhverfi, á Siglufirði og Sauðárkróki, innan um frábært og eftirminnilegt fólk.“ LAUGARVEGUR 31 - Birkir Jón Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.