Ský - 01.08.2007, Qupperneq 71
Það er örugglega lítill vandi að koma af stað fjörugum umræðum um það hvor sé flottari og klárari, James Bond eða Jason Bourne. Þeir sem telja að James Bond sé útbrunninn og hafi ekkert nýtt
að fram að færa hafa tekið Jason Bourne fagnandi á meðan hörðustu
aðdáendur James Bond fá fyrir hjartað sé Jason Bourne nefndur eins
og um jafningja sé að ræða. Matt Damon, sem leikur Jason Bourne,
kastaði olíu á eldinn þegar hann sagði að Bond yrði alltaf bundinn
við sjöunda áratuginn og persónan væri byggð á gildi þess tíma. Tók
hann fram að James Bond ætti ekki heima í nútímanum en sagði um
leið að Bourne væri hvorki betri né verri en Bond. Og Damon lauk
umsögn sinni á að segja að Bond sé heimsvaldasinni og kvennabósi
sem drepi fólk með bros á vör, drekki martini og segi brandara.
Bourne sé aftur á móti óforbetranlegur einkvænismaður, eigi erfitt
með að drepa og þótt unnustan hafi verið myrt geti hann ekki sleppt
hendinni af henni.
Þarna er kannski komist að meginkjarnanum þegar James Bond
og Jason Bourne er líkt saman, þeir eru andstæður og eiga ekkert
sameiginlegt nema að hafa verið leyniþjónustumenn og vera með
sömu upphafsstafi í nöfnum sínum. James Bond er toppmaðurinn í
bresku leyniþjónustunni en Jason Bourne er hundeltur af fyrrverandi
atvinnurekendum. Bond fær alltaf stúlkuna í lokin en Bourne missti
sína í fyrstu myndinni og hefur ekki jafnað sig enn sem komið er. Og
loks vefst ekki fyrir Bond að drepa óvininn á meðan Bourne er með
martraðir yfir því sem hann hefur gert.
Það er því ekki nema von að spurt sé: Hvernig getur nokkrum
manni dottið í hug að bera þá saman? Svarið er fyrst og fremst
að finna í þeirri staðreynd að kvikmyndir með þeim köppum eru
gífurlega vinsælar og ljóst er að James Bond og Jason Bourne munu
einoka kvikmyndamarkaðinn fyrir njósnamyndir í framtíðinni. Það
að kvikmyndahúsgestir skiptist í tvo hópa, með eða á móti, er ósköp
eðlilegt þegar um er að ræða hvor er meiri hetja en að bera þá saman
að öðru leyti er ekki raunhæft.
Í áratugi hafa alltaf verið að koma fram kvikmyndapersónur sem
líkt er við James Bond. Þær hafa fljótlega horfið á meðan James Bond
heldur áfram að vera til. Nú er ljóst að Jason Bourne er kominn til að
vera, kjósi þeir sem standa að seríunni að halda henni áfram. Fyrstu
þrjár myndirnar náðu allar miklum vinsældum svo ætla má að áfram
verði haldið á sömu braut.
Höfundur James Bond, Ian Fleming, og höfundur Jason Bourne,
Robert Ludlum, áttu einnig fátt sameiginlegt. Fleming var gamaldags
Breti með skólavist að baki í breskum heimavistarskólum og vann í
leyniþjónustunni í síðari heimsstyrjöldinni. Robert Ludlum var
uppgjafa leikari sem lifði rótlausu lífi þegar hann skrifaði sína fyrstu
bók 1970. Hvorugur þeirra lifði að sjá sköpunarverk sína verða
ofurhetjur kvikmyndanna. Fleming náði að vísu að sjá fyrstu tvær
myndirnar, Dr. No og From Russia With Love, en þá var Bond ekki
orðinn að þeirri goðsögn sem hann er í dag og Ludlum dó ári áður
en The Bourne Identity leit dagsins ljós. Þess má geta að þriggja tíma
sjónvarpsmynd var gerð eftir The Bourne Identity árið 1988 sem sýnd
var víða um heim og var tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna. Þá
lék Richard Chamberlain Jason Bourne. Þeir Fleming og Ludlum
áttu það sameiginlegt að vera miklir reykingamenn og létust báðir
vegna hjartaáfalls. Ian Fleming var 56 ára þegar hann lést 1964 og
Robert Ludlum 73 ára þegar hann lést 2001.
kvikmyndir
James Bond
Jason Bourne&
Þeir eiga lítið sameiginlegt en samt er verið að
bera Þá saman og deilt um hvort Jason bourne sé
verðugur arftaki James bond.
Texti: Hilmar Karlsson
sky
,
ský 71