Fréttablaðið - 05.11.2015, Page 8

Fréttablaðið - 05.11.2015, Page 8
Vaktin 3. október samkvæmt frásögn hjúkrunarfræðingsins 3. október 8.00 Dagvakt hefst á svæfingadeild l Hjúkrunarfræðingurinn er beðinn um að taka aukavakt 15.30 kvöldvakt hefst á gjörgæsludeild l Sagt að hún eigi að sjá um hinn látna í stuttri yfirferð l Sagt að hún eigi að fara á vökn- unardeild á mesta álagspunkt- inum l Fer á stofu hins látna og kynnir sig, gerir öryggisathugun en sleppir að skoða mónitorinn sem mælir súrefnismettun, blóð- þrýsting og annað. l Beðin um að fara á vöknunar- deild. Leggur ábyrgð á hinum látna á annan hjúkrunarfræðing. l Send strax til baka af vöknunar- deild. Ekki þörf fyrir hana strax. l Fer aftur á gjörgæsludeild. l Aðstoðar við aðhlynningu annars sjúklings. Hleypur með öndunar- vél frá annarri hæð og niður í kjallara. l Meðan á aðhlynningu stendur er hún kölluð yfir á vöknunardeild. l Fer af vöknunardeild og sinnir sjúklingum á kvennadeild. l Fær símtal frá öðrum hjúkrunar- fræðingi um hvort gefa megi sjúklingnum verkjalyf og setja í öndunarvél að nýju. Öndunin orðin hröð og sjúklingur slappur. 18.30 kemur aftur á gjörgæsludeild l Leysir samstarfsfólk af sem fer í mat. 19.30 Fer sjálf í mat. tekur korter í það. l Ættingjar hins látna koma í heim- sókn. Um 20.00 Hún hefur aðhlynningu. Setur á hinn látna talventil, tannburstar hann og þvær í framan. Aðhlynn- ing tekur rúmlega fimm mínútur. l Beðin um að koma á aðra sjúkra- stofu til að aðstoða. l Eftir nokkrar mínútur kallar annar hjúkrunarfræðingur á aðstoð. Sjúklingurinn orðinn blágrár í andliti. l Endurlífgun hefst. Ákærða sér um að kalla út neyðarteymi og gefa adrenalín. 4. október. 9.30 Deildarstjóri hringir. l Hjúkrunarfræðingurinn fer í viðtal og segir frá vaktinni. l Fær taugaáfall. 5. október l Fyrsta viðtal við lögreglu. Maí 2014 Ákæra gefin út. Hjúkrunarfræðingurinn er ákærður fyrir að að hafa ekki tæmt loft úr kraga barkaraufartúbu þegar hún setti upp talventilinn. Talventlar eru notaðir svo sjúklingar geti talað, en það geta þeir ekki í hefð- bundinni öndunarvél. Sé loftið ekki tæmt getur sjúklingur andað að sér lofti en ekki frá sér. Fyrir dómi sagðist hjúkrunar- fræðingurinn ekki muna hvort hún hefði tæmt loftið eða ekki. Í hennar huga hefði sjúklingurinn verið of veikburða til að fá talventil en reyndari hjúkrunarfræðingur hefði verið búinn að taka ákvörðunina og hún fylgt því eftir. Hún sagði að í hennar huga væri ekki ólíklegt að hún hefði tæmt loftið en sjúk- lingurinn kafnað á slímtappa sem gæti myndast fyrir ofan ventilinn. Dómsmál Gríðarlegt álag á starfs- fólk Landspítalans er meðal annars ástæðan sem hjúkrunarfræðingur- inn, sem ákærður er fyrir mann- dráp af gáleysi, gaf fyrir því að fyllstu öryggisreglum og verkferlum var ekki fylgt að kvöldi 3. október 2012 þegar Guðmundur Már Bjarnason lést á gjörgæsludeild Landspítalans. Komið var fram á seinni hluta tvö- faldrar vaktar hjúkrunarfræðingsins þegar Guðmundur lést. Það var sérstakt andrúmsloft í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Til að styðja ákærðu voru komnar um tíu konur, sam- starfskonur og vinkonur, og fylgdust með réttarhöldunum. Ákærða virtist buguð vegna málsins og grét. Hún lýsti því meðal annars að síðastliðin þrjú ár hafi verið helvíti í hennar huga; hjónaband hennar væri ónýtt, tólf ára barn hennar ætti erfitt upp- dráttar og hún hefði oft hugsað um að deyja. Það var í raun lítið þjarmað að ákærðu og allt bar þess merki að sak- sóknari, dómari og verjendur hefðu samúð með hjúkrunarfræðingnum. Þann 3. október hefði orðið slys en vafi væri uppi um hvort slysið væri hennar sök eða hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það. Vitni í málinu sagði að í raun væri ómögu- legt að segja til um hver hefði átt við belginn sem ákærðu er gert að sök að hafa láðst að tæma. Málið er einstakt sinnar teg- Var í taugaáfalli við yfirheyrslu Hjúkrunarfræðingur sem er ákærður fyrir manndráp hafði hlaupið á milli margra deilda og gefist lítill tími til að sinna sjúklingi sem lést. Sjálfsásakanir hafi valdið því að hún neitaði ekki sök í fyrstu skýrslutöku. Hjúkrunarfræðingurinn naut stuðnings vina og samstarfskvenna í dómsal í gær. Hún var algjörlega buguð vegna málsins. FréttAblAðið/VilHelm mögulegur slímtappi kraginn sem átti að tæma talventill barki Talventill í barka undar á Íslandi. Aldrei áður hefur hjúkrunarfræðingur verið ákærður fyrir að sýna af sér gáleysi í vinnu. Heilbrigðisstarfsfólk er uggandi yfir ákærunni og þáverandi land- læknir, Geir Gunnlaugsson, sagðist hafa efasemdir um að fara dóm- stólaleiðina við mistök heilbrigðis- starfsfólks. Ekkja Guðmundar Más féll frá bótakröfu sinni þegar málið var þingfest á síðasta ári. Hún sagði meðal annars: „[Hjúkrunarfræðing- urinn] er kona á aldur við börnin mín og ég get ekki hugsað mér að líf hennar sé eyðilagt, nóg þarf hún að bera. Enda hlýtur fólk að vera samábyrgt þegar svona gerist.“ Ákærða lýsti því fyrir dómi að hún hefði verið með öllu grunlaus um að mistök hefðu átt sér stað þegar hún fór heim af vaktinni um kvöldið. Það var ekki fyrr en hún var kölluð inn til deildarstjóra dag- inn eftir, og upplifði mjög skrítna stemningu á þeim fundi, að sjálfs- ásakanirnar hófust. Þá strax gat hún ekki munað hvort hún hefði tæmt loftið og ásakaði sjálfa sig harkalega fyrir mistökin. Í kjölfarið fékk hún taugaáfall, að eigin sögn, og það var í því ástandi sem hún fór í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu. Hún segir að þegar henni hafi boðist að breyta eða bæta við fyrsta framburð sinn hjá lögreglu hafi verjandi hennar ráðlagt henni að gera það ekki. Það útskýri misræmi í frásögn hennar hjá lögreglu og nú fyrir dómi. Aðalmeðferð heldur áfram í dag. snaeros@frettabladid.is Heilbrigðismál Vænlegt væri að bíða með fyrirhugaðar framkvæmdir við nýjan Landspítala á lóð spítalans við Hringbraut. Á meðan yrði þjónustu- hlutverk og kjarnastarfsemi spítalans endurmetið. Ástæðan er sú að fyrir- hugaðar framkvæmdir á Landspítala- lóð eru taldar kosta yfir 87 milljarða á næstu fimm árum. Sú framkvæmd myndi bætast við mikla þenslu sem fram undan er. Þetta kemur fram í skýrslu Rann- sóknarstofnunar atvinnulífsins við Háskólann á Bifröst. Skýrslan var unnin fyrir Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu. Skýrsluhöfundur segir að með endurmati á þjónustuhlutverki og kjarnastarfsemi sé hann að leggja til að Landspítalinn sinni flóknari og dýrari læknisaðgerðum og meðferðum. „En eftirláti öðrum minni og ein- faldari aðgerðir og meðferðir,“ segir Gunnar Alexander Ólafsson heilsu- hagfræðingur. Þar á Gunnar við heilsugæslustöðvar og sérfræðinga utan spítalans. Nú þegar hafi heil- brigðisþjónusta á Íslandi þróast þann- ig að þjónusta utan spítalans hafi vaxið mikið. Til að mynda séu augnlækning- ar mikið til komnar út af spítalanum. Í skýrslunni er einnig talað um það að Hringbraut sé ekki raunhæf stað- setning fyrir spítalann. Gunnar segir eðlilegt að horfa til staðsetningar austar í borginni. „Mér er dálítið tíð- rætt um Sævarhöfða,“ segir hann. Þar er bílaumboðið BL með aðstöðu og frekara atvinnuhúsnæði að auki. Gunn- ar segir að það verði að horfa til þess að umferð muni aukast þegar staður fyrir spítalann er valinn. Ólafur Baldursson, framkvæmda- stjóri lækninga á Landspítalanum, segir byggingu nýs spítala öryggis- mál. Ábyrgðarhluti sé að afvegaleiða umræðuna um öryggi sjúklinga á grunni skýrslu sem sé í besta falli óná- kvæm. . Lögð sé allt of mikil áhersla á umræðuna um staðsetningu. Fjöl- margar fyrri skýrslur sýni að staðsetn- ingin við Hringbraut sé í það minnsta jafn góð og aðrar. Á Norðurlöndunum byggi menn sjúkrahús af þessari tegund á 20 til 30 ára fresti. Ákvörðun um bygg- ingu nýs sjúkrahúss sé því ekki ákvörð- un fyrir næstu öldina. „Í öðru lagi er lögð áhersla á það í þessari skýrslu að það þurfi að fresta þessum framkvæmdum vegna þenslu- áhrifa í samfélaginu,“ segir Ólafur. Auðvitað séu efnahagsmálin mjög mikilvæg en þegar búið sé að reka sjúkrahús í gegnum stórhættulegt efna- hagsástand og hrun hljóti að þurfa að spyrja hvenær öryggi sjúklinga verði sett á dagskrá. „Það er ekki í kreppu og ekki í upp- sveiflu heldur. Hvenær er það þá á dag- skrá? Hvenær ætla menn að sækja fram í heilbrigðiskerfinu?“ spyr Ólafur. - jhh Leggja til að nýr spítali verði ekki byggður á næstunni Það er ekki í kreppu og ekki í uppsveiflu heldur. Hvenær er það þá á dagskrá? Hvenær ætla menn að sækja fram í heilbrigðis- kerfinu? Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Land- spítalanum 5 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 F i m m T U D A g U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 D 6 -5 A 1 C 1 6 D 6 -5 8 E 0 1 6 D 6 -5 7 A 4 1 6 D 6 -5 6 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.