Fréttablaðið - 05.11.2015, Side 20
Fermingar börn
safna fyrir
brunnum
Upplýsingar frá skólastjórnendum
í 92 grunnskólum í landinu sýna
að verulega hallar á kennslu í nor-
rænum tungumálum í skólum
landsins. Þetta segir Brynhildur
Anna Ragnarsdóttir, deildarstjóri
Tungumálavers sem þjónar grunn-
skólanemendum sem læra sænsku,
norsku og pólsku.
Samkvæmt viðmiðunarstunda-
skrá sem birt er í aðalnámskrá eru
1.380 mínútur ætlaðar hverjum
nemanda í kennslu í erlendu tungu-
máli á viku, ensku og dönsku. Nið-
urstöður könnunar á vegum
Tungumálavers sýna að innan við
40 prósent þess tíma eru nýtt til
kennslu í norrænu tungumáli. „Tutt-
ugu og þrír skólar af 92 bjóða nem-
endum 110 til 150 mínútna minni
kennslu í norrænum tungumálum á
viku en viðmiðunarstundaskrá segir
til um. Það er alltaf verið að tala um
að börn læri svo mikla ensku af því
að hún er svo mikil í umhverfinu. Í
stað þess að jafna stöðuna virðast
skólarnir hafa látið nemendur fá
færri tíma í dönsku.“
Brynhildur segist ekki vera að
atast út í ensku, eins og hún orðar
það. „Það er hins vegar ástæða til
að skoða þennan halla. Í námskrá
er gert ráð fyrir að við lok grunn-
skóla hafi nemendur náð hæfni á
þriðja stigi í bæðu ensku og dönsku
eða öðru Norðurlandamáli. Sömu
kröfur eru gerðar til allra nemenda
en það er illmögulegt að verða við
þeim ef börnin fá ekki jafn mikla
kennslu. Það getur munað þremur
til fjórum kennslustundum á viku.“
Tungumálaver hefur einnig, í
samvinnu við Færeyinga og Græn-
lendinga, kannað viðhorf 10. bekk-
inga til náms í dönsku. „Af þeim sem
svöruðu finnst 63 prósentum gott
að hafa dönsku sem fag. Yfir 70 pró-
sent telja mjög líklegt að þau þurfi
að nota dönsku við störf og nám í
framtíðinni,“ greinir Brynhildur frá.
Þeir grunnskólanemendur sem
hafa bakgrunn í norsku og sænsku
eiga rétt á að fá kennslu í þessum
tungumálum. „Níundu og tíundu
bekkingar eru í fjarnámi og fara í
tölvu þegar aðrir nemendur fara
Hallar á kennslu í norrænum
tungumálum í grunnskóla
Sömu kröfur gerðar til hæfni allra í lok grunnskóla. Erfitt að verða við þeim ef kennslan er ekki jafnmikil.
Getur munað 3 til 4 kennslustundum á viku, segir Brynhildur A. Ragnarsdóttir, deildarstjóri Tungumálavers.
Birta Rakel Óskarsdóttir og Embla Eir Haraldsdóttir í verkefnavinnu í Tungumálaveri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hvað er
Tungumálaverið?
Tungumálaverið er þjónustu-
stofnun þar sem veitt er ráðgjöf
í norsku og sænsku til skóla og
sveitarfélaga um allt land og er
ætluð til stuðnings nemendum
sem ekki hafa aldur til að stunda
netnám.
Staðbundin kennsla í norsku,
pólsku og sænsku fyrir nemendur
í 7. og 8. bekk í Reykjavík og ná-
grannasveitarfélögum.
Boðið er upp á netnám í
norsku, pólsku og sænsku fyrir
nemendur í 9. og 10. bekk innan
bæjar og utan.
Tuttugu og þrír skólar af 92 bjóða nem-
endum sem svarar 110 til 150 mínútna
minni kennslu í norrænum tungumálum á viku
en viðmiðunarstundaskrá segir til um.
Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, deildarstjóri Tungumálavers
Tilvonandi fermingarbörn ganga þessa
dagana í hús og safna fé til vatnsverk-
efna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku.
„Áður en börnin ganga í hús fá þau
fræðslu um það hvernig vatnsþró,
vatnstankur eða brunnur með hreinu
vatni getur gjörbreytt lífi fólks til hins
betra,“ segir Kristín Ólafsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
Söfnunin í ár er sú sautjánda í
röðinni. Að sögn Kristínar söfnuðust
í nóvember í fyrra yfir átta milljónir
króna til vatnsverkefna Hjálparstarfs-
ins í Eþíópíu og Úganda.
Á vef Hjálparstarfsins segir að með
því að taka þátt í fjáröflunarverkefninu
fái börnin innsýn í líf jafnaldra sinna á
starfssvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar
í Afríku og kynnist erfiðleikum sem þau
búa við. Fermingarbörnin fá jafnframt
tækifæri til að ræða um ábyrgð allra á
því að allir jarðarbúar fái lifað mann-
sæmandi lífi. – ibs
Barn við brunn í Malaví.
MyNd/HjáLpARsTARF kIRkjuNNAR
í dönskutíma. Í Reykjavík hittast
nemendur í fimmta til áttunda bekk
á níu stöðum einu sinni í viku. Þau
eru á okkar vegum en það er reynt
að láta þau koma saman í skóla sem
er sem næst þeirra eigin skóla til að
þeir verði fyrir sem minnstu raski.“
Nú fá um 400 nemendur einstak-
lingskennslu í tungumálaverinu,
að sögn Brynhildar. „Breiddin er
gríðarlega mikil og eru kennarar
meðvitaðir um það.“
Til þess að geta fengið kennslu
í norsku og sænsku í stað dönsku
þurfa nemendur að uppfylla ákveð-
in skilyrði. „Þeir þurfa að geta talað
viðkomandi tungumál og lesið
bækur fyrir sinn aldurshóp. Þeir
þurfa einnig að geta verið í sam-
skiptum án teljandi erfiðleika.“
1.380
mínútur ætlaðar hverjum
nemanda í kennslu í erlendu
tungumáli á viku, ensku og
dönsku.
Samkvæmt viðmiðunarstundaskrá sem
birt er í aðalnámskrá
40%
þess tíma sem ætlaður er í
erlend tungumál í grunn-
skóla eru nýtt til kennslu í
norrænu tungumáli.
Skv. niðurstöðum könnunar á vegum
Tungumálavers
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
ibs@frettabladid.is
40.000 fréttaþyrstirnotendur
Smelltu þér á
Fréttablaðsappið
og lestu blaðið
hvar sem er og
hvenær sem er.
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna
og snjallsímann með Fréttablaðsappinu.
Stór hluti danskra framhaldsskóla-
nema, eða 39 prósent, segist aðallega
drekka áfengi til að reyna að gleyma
sorgum sínum. Stjórnandi rann-
sóknarinnar og starfsmaður dönsku
Lýðheilsustofnunarinnar, Janne Schur-
mann Tolstrup, segir þetta alltof hátt
hlutfall.
Tolstrup segir nemendur líta svo á
að þeir verði glaðir af áfengisdrykkju
og opnari. Hann getur þess að áfengi
geti átt þátt í að vandamálin gleymist.
Það sé hins vegar skammtímalausn.
Auk þess verði maður ekki alltaf glaður
þótt maður sé drukkinn. Menn geti
orðið leiðir þegar þeir eru ölvaðir.
Samkvæmt dönskum fjölmiðlum
kemur hið mikla magn sem nemendur
drekka vísindamanninum á óvart.
Drekka til
að gleyma
vandamálum
fjölskyldan
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r20 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
D
6
-2
8
B
C
1
6
D
6
-2
7
8
0
1
6
D
6
-2
6
4
4
1
6
D
6
-2
5
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K