Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 22
Meðaltal heildarlauna viðskipta- og hagfræðinga er 860 þúsund krónur og hefur hækkað um 8,4 prósent frá árinu 2013. Staðalfrávik er þó 390 þúsund krónur. Miðgildi heildarlauna meðal viðskipta- og hagfræðinga er 777 þúsund, Þetta kemur fram í nýrri kjarakönnun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem kemur út í dag. Könnunin er byggð á launum félags- manna í febrúar, gild svör voru sam- tals 904. Ekki voru tekin svör frá félags- mönnum sem starfa erlendis. Samkvæmt könnuninni hafa laun hækkað meðal allra hópa eftir mennt- un og starfsaldri samanborið við árið 2013. Mesta hækkunin er meðal þeirra sem eru með 0-2 ára starfsreynslu en hún nemur 20 prósentum. Launa- hækkun frá 2013 var 8-11 prósent fyrir þá sem lokið hafa BS/BA-, masters- og cand. oecon-prófi, en tvö prósent hjá MBA og fjögur prósent hjá þeim sem hafa lokið doktorsprófi. Heildarlaun hækka með aukinni menntun, undantekningin er að þeir sem eru með mastersgráðu voru með lægri laun en þeir sem hafa cand. oecon-gráðu. Skýringin liggur m.a. í því að cand. oecon-hópurinn er eldri og með hærri starfsaldur en hópurinn með masterspróf. Töluverður munur er á launum kynjanna og hallar mikið á konur. Innan hópa þar sem a.m.k. fimm ein- staklingar voru í hverjum hópi kemur í ljós að laun karla eru hærri í 13 til- fellum og laun kvenna eru hærri í þremur tilvikum. Sú þróun virðist eiga sér stað að meðal þeirra sem lokið hafa BS/BA- og mastersnámi er launamunurinn mikill þegar starfs- aldur er lægstur en minnkar svo með auknum starfsaldri en virðist svo aukast á ný þegar líður á starfsaldur- inn. Launamunur kynjanna með BS/ BA-gráðu nemur 18 prósentum eftir 10 ára starfsreynslu og 31,1 prósenti hjá þeim sem eru með mastersgráðu eftir 6-10 ára starfsreynslu. Þetta er í samræmi við niðurstöður Hagstofu Evrópusambandsins, Euro- stat, sem hefur gefið það út að launa- munur kynjanna aukist með aldri, oft vegna áhrifa barneigna á starfsframa kvenna. Svo virðist sem konur geti hins vegar í sumum tilfellum endur- heimt hærri laun eftir að barnaupp- eldinu lýkur. Samkvæmt kjarakönn- uninni eru konur, sem eru með cand. oecon-gráðu og 30 ára eða meiri starfs- reynslu, með hærri laun en karlar með sömu menntun og reynslu. Lítið úrtak gæti hins vegar skýrt þetta. MBA-nám virðist skila konum hæstu laununum, konur með MBA- nám og 3-5 ára eða 11-20 ára starfs- aldur eru með hærri laun en karlar með sambærilega menntun. Konur með MBA-nám og 3-5 ára starfs- reynslu eru með 40% hærri laun en karlar. saeunn@frettabladid.is Átta prósent hærri laun á tveimur árum Meðal viðskipta- og hagfræðinga eru karlar oftast með hærri laun en konur, eftir menntun og starfsreynslu. Launamunur kynjanna dregst saman eftir meiri starfsaldur en eykst á ný þegar konur eru á barneignaaldri. Konur með MBA-gráðu eru launahærri en karlar. ✿ Launaþróun viðskipta- og hagfræðinga eftir kyni 1000 800 600 400 670 þ.kr. 970 þ.kr. 850 þ.kr. 850 þ.kr. 719 þ.kr. 593 þ.kr. 550 þ.kr. 0-2 ára starfsreynsla 3-5 ára starfsreynsla 6-10 ára starfsreynsla 11-20 ár a starfsreynsla 21-29 ára starfsreynsla þúsund krónur á mánuði Karlar konur BS/BA Master Launahæstu konurnar 1.001 þ.kr. MBA-nám og 21-29 ára starfsaldur Launahæstu karLarnir 1.104 þ.kr. Mastersnám og lengri en 30 ára starfsaldur 415 þ.kr. MBa borgar sig fyrir konur karLar 3-5 ár 720 þ.kr. 6-10 ár 900 þ.kr. 11-20 ár 830 þ.kr. konur 3-5 ár 1.000 þ.kr. 6-10 ár 850 þ.kr. 11-20 ár 885 þ.kr. Ítalía Samstarfsland Ambiente 201 6 12. – 16. 2. 2016 Beint í mark: Ambiente 2016 veitir einstaka innsýn í alþjóðlegan markað. Á mikilvægustu vörusýningu á heimsvísu uppgötvar þú við hverju megi búast á næsta viðskiptaári. Afhjúpaðu framtíðina og fáðu innblástur af töfrandi vörufjölbreytni fyrir nýja vöruúrvalið þitt. Upplýsingar og miðar fást á ambiente.messefrankfurt.com Sími: +45 39 40 11 22 dimex@dimex.dk 61 31 1- 01 3_ A M _a llg _ Fr et te nb la di d_ 15 1x 20 0 • C D -R om • I S O 3 9 • C M Y K • t g: 1 6. 09 .2 01 5 D U : 2 0. 10 .2 01 5 Is la nd Seðlabankinn óttast að stýrivaxta- hækkanir muni hafa minni áhrif á útlánavexti og þar með möguleika bankans til að slá á þenslu í hag- kerfinu í kjölfar aukinna fjárfestinga erlendra aðila á skuldabréfamarkaði. Peningastefnunefnd tilkynnti í gær að stýrivextir hefðu verið hækkaðir um 0,25 prósentustig og eru þeir nú 5,75 prósent. Fjárfesting erlendra aðila sem nýta sér vaxtamun milli Íslands og útlanda hefur aukist verulega frá því í sumar. Þetta hefur meðal annars haft í för með sér að vextir á óverð- tryggðum ríkisskuldabréfum hafa lækkað talsvert. Í kjölfarið hafa Arion banki og Lífeyrissjóður versl- unarmanna lækkað vexti af íbúða- lánum, þvert á vaxtahækkanir Seðla- bankans. „Við óttumst það að þessi far- vegur peningastefnunnar, frá okkar vöxtum yfir í markaðsvexti og þaðan niður í vexti til heimila og fyrirtækja, sé að stíflast eða brotna,“ sagði Þór- arinn G. Pétursson, aðalhagfræðing- ur Seðlabanka Íslands. Þórarinn benti á að haldi þessi þróun áfram muni stýrivaxtahækk- anir frekar hafa áhrif á hagkerfið í gegnum styrkingu á gengi krón- unnar. Erfiðara sé að treysta á þá leið auk þess sem hún muni draga úr við- skiptaafgangi. Þess vegna sé brýnt að stjórnvöld vinni með Seðlabankanum við að slá á þenslu í hagkerfinu. Í yfirlýsingu peningastefnunefnd- ar kom fram að fjárlagafrumvarpið feli í sér slaka í aðhaldi ríkisfjármál- anna. „Það er að gerast á sama tíma og er að herða að í peningamálum. Þá erum við aftur komin með þessa óheppilegu hagstjórnarblöndu þar sem tveir armar hagstjórnarinnar eru að fara hvor í sína áttina og við höfum ekki góða reynslu af þessu,“ sagði Þórarinn. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af þess- ari óheppilegu hagstjórnarblöndu. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri sagði í gær að vegna þessarar þróunar myndi Seðlabankinn flýta vinnu sem snúi að reglum sem tak- marka eiga vaxtamunarviðskipti. Til- lögu frá Seðlabankanum sé að vænta á næstu mánuðum. – ih Seðlabankinn óttast að vaxtahækkanir bíti síður Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sagði lítið aðhald í ríkis- fjármálum áhyggjuefni. fréttABlAðið/Anton Brink Viðskipti 5 . n ó v e M B e r 2 0 1 5 F i M M t u D a G u r22 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 D 6 -3 C 7 C 1 6 D 6 -3 B 4 0 1 6 D 6 -3 A 0 4 1 6 D 6 -3 8 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.