Fréttablaðið - 05.11.2015, Síða 38
Fólk| tíska
Þetta er í annað sinn sem við höldum markað. Við-tökurnar í fyrra komu okkur
skemmtilega á óvart en þá mætti
fjöldi manns og stemmingin var
frábær. Við ákváðum því að gera
þetta aftur,“ segir Gréta Hlöð-
versdóttir, framkvæmdastjóri
íslenska barnafatamerkisins As
We Grow, en aðstandendur As We
Grow blása til PopUp-markaðar
um helgina í samvinnu við merkin
Tulipop og Fló.
Markaðurinn verður haldinn á
vinnustofu Tulipop að Fiskislóð 31
á laugardaginn milli klukkan 12 og
16 og lofar Gréta góðri skemmtun.
„Okkur langaði að gera eitthvað
skemmtilegt fyrir yngstu kynslóð-
ina og við verðum með smá for-
skot á jólin. Það verða piparkökur
í boði og léttar veitingar, andlits-
málning fyrir börnin og kennsla í
fingraprjóni. Svo verður veglegur
vinningur fyrir heppinn gest. Það
verður einnig hægt að gera góð
kaup en þarna verða ýmis góð
tilboð og sala á sýniseintökum.
Það er komin mikil jólastemming í
okkur,“ segir Gréta.
Ásamt Grétu standa að barna-
fatamerkinu As We Grow Guðrún
Ragna Sigurjónsdóttir og María
Th. Ólafsdóttir hönnuðir. Merkið
var sett á laggirnar
fyrir þremur
árum og
hefur vaxið
hratt.
„Í dag
er As We
Grow í
fjörutíu og
fimm versl-
unum í tíu löndum. Við vorum í
Japan á sýningum í ágúst og sept-
ember síðastliðnum og bara þar
í landi er As We Grow komið inn í
sautján verslanir. Nú erum við að
hanna fyrir næsta vetur og þær
vörur verða kynntar á sýningu í
París í janúar,“ segir Gréta. „Við
hönnum alltaf undir sömu for-
merkjum, gæði, falleg hönnun úr
fyrsta flokks garni og flíkurnar
framleiddar við góðar aðstæður.
Sá hópur fer alltaf stækk-
andi sem velur vörur
sem standa fyrir sjálf-
bærni og umhverfis-
vitund.“
Fingraprjón og
Fjör á Fiskislóð
popUp-markaðUr/ Þrjú barnaFatamerki standa að hressilegum
popup-markaði um helgina. As We Grow, Tulipop og Fló taka forskot á jóla-
stemminguna með kennslu í fingraprjóni, andlitsmálningu og piparkökum.
as We groW Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir hönnuður og Gréta Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri As We Grow. Merkið er komið í
45 verslanir í tíu löndum en það var stofnað 2012. Blásið verður til PopUp-markaðar á laugardaginn. mynd/gva
prjónalína
As We Grow hannar prjónaföt á börn.
mynd/vigfús Birgisson
Vinsælt As We Grow er vinsælt í Japan
en þar er merkið komið inn í sautján
verslanir. mynd/vigfús Birgisson
tUlipop Vörur Tulipop verða á mark-
aðnum, púsluspil, skólatöskur, veggspjöld
og lampinn Bubble. mynd/tulipop
krútt „Fred er krúttlega skógardýrið
sem þráir að vera ógnvaldur Tulipop en
það sem stendur honum fyrir þrifum í
þeim efnum er að hann er alltof góður inn
við beinið.” mynd/tulipop
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Flott föt, fyrir flottar konur
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
kinahofid.is
8 rétta
hlaðborð
í hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.790.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga,
ekki um helgar.
365.is
Sími 1817
FÁRÁNLEGA
FLOTTUR PAKKI
Vandað sjónvarpsefni og fjarskipti á frábæru verði
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-3
C
7
C
1
6
D
6
-3
B
4
0
1
6
D
6
-3
A
0
4
1
6
D
6
-3
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K