Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 46
handbolti „Ég kann ekkert í ung-
versku og það er engin pressa á mér
að læra hana. Það er töluð enska á
æfingum og svo tala margir í liðinu
þýsku. Það dugar alveg og ég reikna
nú ekki með því að læra ungversk-
una,“ segir Aron Pálmarsson en
hann ákvað að breyta um umhverfi
síðasta sumar.
Þá yfirgaf hann þýska stórliðið
Kiel, eftir sex ára dvöl þar, og fór til
ungversku meistaranna í Veszprém.
Það er einnig stórlið sem fór alla
leið í úrslit Meistaradeildarinnar á
síðustu leiktíð.
Býr í ferðamannaparadís
„Ég kann mjög vel við mig í Ung-
verjalandi. Lífið utan handboltans er
yndislegt. Ég bý við Balaton-vatnið
sem er aðeins fimmtán mínútur frá
Veszprém. Það er frábær staður,“
segir handboltastjarnan brosandi
en hann býr þar í glæsilegu húsi.
Balaton-vatnið er mikil paradís og
vinsæll sumarleyfisstaður þannig að
það væsir ekki um okkar mann þar.
„Ég er búinn að koma mér virki-
lega vel fyrir þar en þetta er aðeins
að breytast í draugabæ núna þar
sem sumarið er búið. Svo tekur mig
aðeins klukkutíma að keyra til Búda-
pest og ég er mikið þar.“
Leikmenn Veszprém eru frá níu
þjóðlöndum og þjálfari liðsins,
Xavi Sabate, er Spánverji og sá ágæti
maður verður seint sakaður um of
mikla enskukunnáttu. Leikhléin hjá
liðinu fara fram á ensku og eru oft á
tíðum algjörlega kostuleg.
Tala ensku eins og sex ára
„Það er einn Svíi með mér í liðinu
og við Skandínavar erum yfir höfuð
nokkuð góðir í ensku. Þar sem fáir
eru þannig hefur maður þurft að
kúpla sína enskukunnáttu niður og
nánast tala eins og sex ára svo maður
sé skiljanlegur. Þetta er pínu erfitt og
stundum hefur maður nánast drep-
ist úr hlátri á fundum. Þetta venst
þó merkilega vel. Ég skil þjálfarann
stundum og stundum ekki. Aðalhlut-
irnir komast þó til skila.“
Eins og áður segir er Veszprém
stórlið og þar er gerð krafa um árang-
ur. Það fékk fráfarandi þjálfari liðsins,
Antonio Carlos Ortega, að reyna er
hann var rekinn eftir að liðið gerði
jafntefli í fyrsta leik sínum í Meistara-
deildinni. Það var í lok september.
Aðstoðarmaður hans, Sabate, tók
við og leit að nýjum þjálfara stendur
enn yfir.
„Þetta var mjög sérstakt því hann
hafði komið liðinu í úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar nokkrum mánuðum
áður. Það voru einhverjir leikmenn
sem voru ekki of sáttir við þetta. Ég
persónulega var nú ekkert að gráta
þetta þar sem hann notaði mig lítið
í byrjun tímabilsins,“ segir Aron og
glottir en bætir við að Ortega hafi
verið fínn náungi engu að síður.
„Þeir verða að fara að gera eitthvað
í þessu. Sabate er ekkert kominn til
að vera. Hann vill ekkert vera aðal-
þjálfari. Var með Ortega og maður sér
að honum líður ekkert allt of vel. Það
er sérstakt umhverfi að vinna undir
þessum köllum og hann er kannski
ekki alveg tilbúinn í það.“
Þarf ekki að hugsa um neitt
Aron viðurkennir að hraðinn á öllu
og allt umhverfið í kringum hand-
boltann hjá Veszprém sé ansi ólíkt
því sem hann átti að venjast hjá Kiel.
„Það er allt miklu hægara og
rólegra hér. Í Þýskalandi var alltaf
allt á fullri ferð. Þetta á ágætlega við
mig en ég er mjög þakklátur fyrir
að hafa byrjað í Þýskalandi en ekki
Ungverjalandi. Ég væri algjör haugur
ef ég hefði byrjað í Ungverja-
landi,“ segir Aron og hlær
dátt. Hann er þakklátur
fyrir það uppeldi sem
hann fékk hjá Kiel
áður en hann fór
í ljúfa lífið í Ung-
verjalandi. Hjá
Veszprém er hugs-
að um allar þarfir
leikmannsins.
„Í Þýskalandi
fékk maður launin
sín og svo fór maður
að greiða reikningana
sína. Borga húsnæðis-
og bílalán sem og annað.
Ég hef ekki fengið einn póst eftir
að ég flutti til Ungverjalands. Jú,
reyndar hef ég fengið tvö bréf. Þau
voru frá þýska tryggingafyrirtækinu
mínu,“ segir skyttan og hlær. Hann
kann því greinilega vel að hugsað sé
um hann.
„Þeir borga alla reikningana og
svona. Þeirra heimspeki er sú
að leikmaðurinn eigi ekki
að þurfa að standa í
neinu óþarfa ves-
eni. Ég er til að
mynda búinn að
fá nokkrar heim-
sóknir frá vinum
og fjölskyldu en
hef aldrei þurft
að fara út á flug-
völl. Þeir sjá bara
um þetta. Þeir vilja
að ég slaki sem best
á og geti bara hugsað
um handboltann. Þetta á
betur við mig og ég fíla þetta
hrikalega vel en sem betur fer byrjaði
ég ekki í þessu.“
Duglegur í heilsulindunum
Miðað við dekrið á landsliðsmann-
inum þá hefur hann nægan frí-
tíma. Hann er ekki með fjölskyldu
heldur og því er eðlilegt að spyrja
hvað hann geri við allan þennan
frítíma?
„Ég fer oft eftir morgunæfingar
til Búdapest og er þar kannski
yfir nótt. Keyri svo eldsnemma
morguninn eftir á æfingu. Ég og
Svíinn Andreas Nilsson erum
mikið saman. Erum báðir einir og
á sama aldri. Við náum helvíti vel
saman og erum duglegir að gera
eitthvað saman. Hvorugur okkar
hefur afsökun fyrir því að komast
ekki eitthvað,“ segir Aron og hann
hefur líka verið duglegur að njóta
ljúfa lífsins við Balaton-vatnið.
„Maður hefur verið duglegur að
fara í heilsulindirnar þarna á hótel-
unum og hugsa um líkamann. Svo
á forseti félagsins nokkrar skútur
við vatnið og við megum alltaf
fara á þær ef þær eru á lausu. Ég er
búinn að fara nokkrum sinnum út
á vatnið með honum. Ég get ekki
neitað því að þetta er lúxuslíf. Ég
get alls ekki kvartað.“
Fyrir utan allt þetta er miklu
minna leikjaálag í Ungverjalandi
og mun færri erfiðir leikir enda er
Veszprém með mikið yfirburðalið.
Saknar Aron samt ekki Þýskalands
að einhverju leyti?
„Nei, í rauninni ekki. Ég sakna
Þýskalands eiginlega ekki neitt. Ég
var að spila þrjá leiki um daginn á
viku gegn frekar slökum liðum og
þá saknaði ég svolítið handboltans
og samkeppninnar í Þýskalandi.
Svo kíkti ég á mánaðarplanið hjá
Kiel og þá fékk ég bara í hnén,“
segir Aron Pálmarsson og brosir
allan hringinn er hann uppgötvar
líka að hann fær loksins jólafrí sem
er ekki í Þýskalandi.
Væri algjör haugur ef ég hefði byrjað
ferilinn í Ungverjalandi
Aron Pálmarsson segist njóta lífsins í botn hjá ungverska liðinu Veszprém og segir það vera lúxuslíf. Það er hugsað um allt fyrir íslenska
landsliðsmanninn sem þarf ekki einu sinni að ná í mömmu og pabba út á flugvöll. Hann er svo með aðgang að skútum forseta félagsins.
Aron hefur verið að spila vel fyrir Veszprém upp á síðkastið og hann er hér að fagna með Laszlo Nagy, fyrirliða liðsins. fréTTABLAðið/geTTy
Skrítið að Alfreð væri ekki að öskra á mig
„Ég ber sterkar tilfinningar til Kiel og
hef fylgst vel með þeim eftir að ég
fór. Ég pirra mig á því ef þeim gengur
ekki vel. Það kom mér aðeins á óvart.
Ég hélt þetta yrði bara eins og að rífa
plástur af og halda áfram,“ segir Aron
spurður um hvort hann sé búinn að
slíta naflastrenginn við þýska félagið
sem hann spilaði með í sex ár.
Hann spilaði svo í fyrsta skipti gegn
Kiel um daginn er þýska liðið kom í
heimsókn til Ungverjalands í Meistara-
deildarleik. Þeir sem sáu þann leik geta
staðfest að Aron hefur sjaldan verið
eins beittur í upphafi leiks.
„Ég var ótrúlega vel mótíveraður
fyrir þennan leik. Það var alveg á
hreinu að ég ætlaði ekki að tapa,“ segir
Aron og setur sig nánast í keppnisstell-
ingar er hann rifjar leikinn upp.
„Þetta var mjög sérstakt. Ég get ekki
neitað því. Nokkrir af mínum bestu
vinum eru í liði Kiel og svo var auðvitað
líka skrítið að spila gegn Alfreð. Kíkja
til hliðar og fatta að hann væri ekki
að öskra á mig. Þetta var því spes en
gaman,“ segir Aron og það skemmdi
líklega ekkert fyrir upplifuninni að
hans lið vann tveggja marka sigur í
leiknum.
Væri til í að fá Patta til Veszprém
Aron upplifði það í fyrsta skipti á
ferlinum hjá Vesprém að vera í liði
sem rekur þjálfarann sinn.
„Það var frekar steikt að korteri
eftir að ég kom þá var búið að reka
þjálfarann. Hjá Kiel hefði Alfreð
[Gíslason] aldrei verið
rekinn þó svo hann
hefði tapað öllum
leikjunum. Það var
sérstakt að upplifa
þetta. Það var allt
í lagi og gaman
að upplifa fyrst
ég græddi á því,“
segir Aron stríðinn.
Patrekur
Jóhannesson, lands-
liðsþjálfari Austurríkis,
er á meðal þeirra þjálfara
sem hafa verið orðaðir við stöðuna.
„Þeir hafa spurt mig út í Patta
og ég hef verið í ágætis sambandi
við hann út af þessu. Ég væri klár-
lega til í að fá Patta. Hann hefur
gert frábæra hluti með austurríska
landsliðið. Við þurfum líka alvöru
gaur,“ segir Aron en Patrekur
hefur ekkert viljað ræða
þennan möguleika við
fjölmiðla.
Fjölmargir aðrir
þjálfarar hafa einnig
verið orðaðir við
starfið enda eitt
það eftirsóttasta í
bransanum. „Maður
er búinn að heyra
mörg nöfn og nýjasta að
þeir ætli að bíða fram yfir
EM með að ráða þjálfara. Þetta
verður bara að koma allt í ljós.“
Ég er búinn að
fara nokkrum sinnum
út á vatnið með honum.
Ég get ekki neitað því að
þetta er lúxuslíf.
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F i m m t U d a G U r34 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-7
2
C
C
1
6
D
6
-7
1
9
0
1
6
D
6
-7
0
5
4
1
6
D
6
-6
F
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K