Fréttablaðið - 05.11.2015, Side 56
Frumsýningar
Hanaslagur
Teiknimynd
Aðalhlutverk: Bruno Bichir,
Carlos Espejel og Angélica Vale
IMDB: 6,0
Frumsýnd: 13.11. 2015
spectre
Hasar, spenna, ævintýri
Aðalhlutverk: Daniel Craig,
Christoph Waltz, Léa Seydoux,
Ben Whishaw, Naomie Harris,
Dave Bautista, Monica Bellucci,
Ralph Fiennes, Andrew Scott og
Rory Kinnear
IMDB: 7,5
Frumsýnd: 6.11. 2015
steve Jobs
Drama
Aðalhlutverk: Michael
Fassbender, Kate Winslet, Seth
Rogen, Jeff Daniels og Katherine
Waterston
IMDB: 7,7
Frumsýnd: 13.11. 2015
Síðan það spurðist út fyrr á árinu
að Spike Lee ætlaði að gera mynd
undir titlinum Chi-Raq hafa full-
trúar borgaryfirvalda í Chicago
keppst við að tala myndina niður.
Titillinn snertir viðkvæma taug þar
í borg, en vegna hárrar glæpatíðni
í borginni hefur hún fengið þetta
viðurnefni, sem vísun í Írak og
stríðið þar í landi. Hefur þetta nafn
iðulega verið notað í rapptextum
frá mörgum af þeim fjölmörgu
röppurum sem eru frá borginni,
sérstaklega suðurhlutanum.
Gamansemi
Spike Lee tjáði sig opinberlega um
deilurnar við borgaryfirvöld í lok
síðasta mánaðar. Var þetta í fyrsta
sinn sem hann gerði það. Lee sagði
frá því að Rahm Emanuel, borgar-
stjóri Chicago, hefði beðið hann að
breyta titlinum á fundi þeirra í apríl
og gengið ansi hart fram. „Hann
getur ekki ráðskast með mig,“ sagði
Lee í viðtali við Chicago Mag.
Hann sagðist hafa tjáð borgar-
stjóranum að sagan myndi dæma
hann fyrir að taka þessa afstöðu
gegn tjáningunni. Lee benti á að
titillinn væri ekki hans uppfinning,
heldur upplifun þeirra sem byggju í
borginni. Upplifun listamanna sem
endurspegla þann veruleika sem
þeir þekkja.
Byggt á grískum skopleik
Myndin er byggð á einum þekktasta
skopleik Aristófanesar, Lýsiströtu.
Þessi gríski skopleikur var skrifaður
411 fyrir Krist, en fær nú nútíma-
legri blæ. Með hlutverk Lýsiströtu
fer Teyonah Parris, sem er á mikilli
uppleið í kvikmynda- og sjón-
varpsbransanum. Parris lék í Mad
Men og er nú í þáttunum Survivor's
Remorse. Hún er þó líklega þekkt-
ust fyrir hlutverk sitt í myndinni
Dear White People. Fyrir frammi-
stöðuna í henni fékk hún Black
Reel-verðlaunin sem besti nýi
leikarinn. Hún var einnig tilnefnd
sem besta leikkonan í aðalhlutverki
á sömu hátíð.
Reynsluboltarnir Samuel L. Jack-
son, Wesley Snipes og John Cusack
fara einnig með hlutverk í Chi-
Raq. Þúsundþjalasmiðurinn Nick
Cannon leikur líka stórt hlutverk í
myndinni og ljóst að leikarahópur-
inn er breiður og sterkur.
Frá Brooklyn
Titillinn á myndinni er ekki eina
þrætuefnið sem Lee hefur þurft að
svara fyrir. Hann hefur til dæmis
fengið gagnrýni fyrir að reyna að
segja þessa viðkvæmu glæpasögu
Chicago-borgar þótt hann sé sjálf-
ur frá Brooklyn í New York.
Lee hefur svarað gagnrýninni
þannig að hann hafi verið lengi í
bransanum, gert myndir um við-
kvæma hluti eins og fellibylinn
Katrínu. Hann sé margverðlaun-
aður leikstjóri og sé hæfur til
verksins.
Myndin fjallar um hugmyndir
Lýsiströtu, sem fær stríðandi menn
til þess að leggja niður vopnin
með því að fá konur til að hóta
þeim kynlífsbanni. Í skopleiknum
gríska var Lýsistrata búin að fá nóg
af stríðinu á milli Trójumanna og
Spartverja. En í Chi-Raq er hug-
myndin sett í nútímalegan búning;
þar sem Lýsistrata reynir að koma
á friði í suðurhluta Chicago-borgar.
Lee segist vilja segja viðkvæma
sögu með skoplegum hætti, það sé
oft frábær frásagnarmáti.
Þekkt nafn
Rappsenan frá Chicago er blómleg.
Þaðan er auðvitað ein skærasta
stjarna rappsins, Kanye West. En
þaðan eru líka ungir rapparar sem
hafa verið á mikilli uppleið. Menn
á borð við Chief Keef, Lil' Durk
og Lil' Herb. Þeir segja á hispurs-
lausan hátt frá erfiðu lífi í fátækra-
hverfum borgarinnar. Segja má
að þeir veiti innsýn inn í nokkuð
lokaðan menningarkima. Tónlistin
sem þeir gera hefur verið kölluð
„Drill“. Blaðamenn vestra hafa
keppst við að skilgreina tónlistar-
stefnuna. Samnefnarinn er dimm
og hörð tónlistin, með textum
sem lýsa gjarnan erfiðu líferni.
Stefnan er sögð hafa fæðst í
Woodlawn-hverfinu í suður-
hluta Chicago. „Drill“ er gamalt
slangur yfir vélbyssur, sem „gang-
sterarnir“ í Chicago notuðu á
bannárunum í Bandaríkjunum.
Segja má að harðneskjan sé
það sem einkenni stefnuna.
Kvikmyndin Chi-Raq er væntanleg
í kvikmyndahús í Bandaríkjunum
í byrjun desember. Til stendur að
sýna hana í völdum kvikmynda-
húsum, áður en hún fer í sýningu
á myndveitunni Amazon Instant
Video. kjartanatli@365.is
Titillinn fer enn í taugarnar á yfirvöldum
væntanleg mynd eftir spike lee, chi-raq, hefur vakið reiði borgaryfirvalda í
chicago. lee segist vilja segja erfiða sögu með gamansömum hætti. Hann byggir
þessa kvikmynd, sem fjallar um gengin í chicago, á gríska verkinu um lýsiströtu.
FÁRÁNLEGA
FLOTTUR PAKKI
FÁÐU ÞÉR
ÁSKRIFT
á 365.is
Aðeins 310 kr. á dag
365.is
Sími 1817
Vandað sjónvarpsefni og fjarskipti á frábæru verði
Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar. Spennandi íslenskir og erlendir þættir,
kvikmyndir og vandað talsett barnaefni. Að auki fá áskrifendur internet, heimasíma, Stöð 2
Maraþon og aðild að Vild. Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM.
Spike Lee segir frá rifrildi við borgarstjóra Chicago.
Hann sagðist Hafa
tJáð borgarstJór-
anum að sagan myndi dæma
Hann fyrir að taka þessa
afstöðu gegn tJáningunni.
lee benti á að titillinn
væri ekki Hans uppfinning,
Heldur upplifun þeirra sem
byggJu í borginni. upplifun
listamanna sem endur-
spegla þann veruleika sem
þeir þekkJa.
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r44 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
bíó
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-3
2
9
C
1
6
D
6
-3
1
6
0
1
6
D
6
-3
0
2
4
1
6
D
6
-2
E
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K