Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 62
1 egg 2 msk. sykur 5 dl. hveiti 3 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 3 msk. smjör ( brætt) 4 dl mjólk (ef ykkur finnst deigið of þykkt þá bætið þið meiri mjólk út í) 1 tsk. vanilluextrakt 1. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt í skál. 2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið. 3. Hrærið mjólk og egg saman í annarri skál. 4. Setjið mjólkurblönduna út í hveiti- blönduna og hrærið vel saman. 5. Bætið smjörinu saman við í nokkrum pörtum og hrærið vel á milli. 6. Bætið vanilluextraktinu og sykrinum saman við í lokin. Þá ætti deigið að vera tilbúið. Hitið smá smjör á pönnu og setjið örlítið deig á, bakið svo á báðum hliðum þar til pönnukökurnar eru orðnar gullinbrúnar. Líklega nokkrar mínútur á hvorri hlið. Uppskrift Amerískar pönnukökur á fimmtudegi Uncharted: -The Drake Collection PlayStation 4 HHHHH NathanDrake og vinur hans og lærifaðir, Victor „Sully“ Sullivan, eru án efa meðal stærstu stjarna PlayStation undanfarin ár. Ævin- týri þeirra eru margvísleg og hafa Uncharted-leikirnir notið gífur- legra vinsælda og í raun má segja að þeir leikirnir hafi einkennt PlayStation 3. Í tilefni af útgáfu Uncharted 4 í mars á næsta ári, uppfærði Blue- point Games gömlu leikina þrjá fyrir PS4 og Naughty Dog gaf þá út í einu safni. Leikirnir hafa verið uppfærðir að miklu leyti og líta mun betur út, eins og sjá má hér á síðunni. Í leikjunum er blandað saman skotbardögum, þrautum og skemmtilegri sögufrásögn. Spilarar stýra Nathan Drake í gegnum fornar rústir allt frá frum- skógum Suður-Ameríku til Hima- layafjalla og Sádi-Arabíu, þar sem hann leitar fornra fjársjóða og berst við illmenni. Fyrsti leikurinn, Drake’s For- tune, er nú orðinn átta ára gamall og það sést á honum. Grafíkin lítur að vísu ágætlega út, en hreyfingar og skotkerfi ekki, þrátt fyrir að skotkerfið hafi verið bætt. Þá ger- ist það leiðinlega oft, þegar Drake þarf að klífa kletta og byggingar, að sjónarhornið hjálpar ekki til. Þá vill það gerast að maður hoppi fram af klettum og láti lífið á annan máta. Bæði Uncharted 2 og 3 virðast ekki eiga við þessi vandamál að stríða. Stýrikerfið virkar mun betur og bardagar virka bæði skemmti- legri og náttúrulegri. Það er að auðveldara að miða og jafnvel að fara í skjól. Önnur nýjung er að nú er búið að bæta við svokölluðu Speed Run. Þar geta spilarar keppst við að klára borð á sem skemmstum tíma og borið tíma sína saman við hve lengi vinir þeirra eru að klára borðin. Þá er einnig hægt að bera annars konar tölfræði saman við tölfræði vina. Það er hve marga óvini þú hefur fellt og slíkt. Uncharted-safnið er stórgóður sögupakki sem býður upp á mikla skemmtun. Það sem Uncharted- serían gerir alveg frábærlega er að segja skemmtilega sögu mjög áhugaverðs karakters. Nathan Drake er frábær og leikirnir eru allir stórskemmtilegir. Samúel Karl Ólafsson Endurfæddur Nathan Drake Uncharted: The Nathan Drake Collection gerir góða leiki betri. Uncharted: Drake’s Fortune Kom út árið 2007. Rúmlega 4,8 milljónir eintaka seldar. Var valinn PS3-leikur ársins af fjölmörgum miðlum. Uncharted 2: Among Thieves Kom út árið 2009. Rúmlega 6,6 milljónir eintaka seldar. Var valinn leikur ársins af fjöl- mörgum miðlum. Uncharted 3: Drake’s Deception Kom út árið 2011. Rúmlega 6,7 milljónir eintaka seldar. Var valinn leikur ársins af fjöl- mörgum miðlum. Nathan Drake kemst í hann krappann um allan heim. Útlit leikjanna allra hefur verið uppfært og eru þeir nú í háskerpu. Uppskrift fengin af evalaufeykjaran.com 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð Lífið 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 D 6 -6 D D C 1 6 D 6 -6 C A 0 1 6 D 6 -6 B 6 4 1 6 D 6 -6 A 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.