Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 62
1 egg
2 msk. sykur
5 dl. hveiti
3 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
3 msk. smjör ( brætt)
4 dl mjólk (ef ykkur finnst deigið of
þykkt þá bætið þið meiri mjólk út í)
1 tsk. vanilluextrakt
1. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt í
skál.
2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.
3. Hrærið mjólk og egg saman í annarri
skál.
4. Setjið mjólkurblönduna út í hveiti-
blönduna og hrærið vel saman.
5. Bætið smjörinu saman við í nokkrum
pörtum og hrærið vel á milli.
6. Bætið vanilluextraktinu og sykrinum
saman við í lokin.
Þá ætti deigið að vera tilbúið.
Hitið smá smjör á pönnu og setjið örlítið
deig á, bakið svo á báðum hliðum þar til
pönnukökurnar eru orðnar gullinbrúnar.
Líklega nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Uppskrift
Amerískar pönnukökur á fimmtudegi
Uncharted: -The Drake Collection
PlayStation 4
HHHHH
NathanDrake og vinur hans og
lærifaðir, Victor „Sully“ Sullivan,
eru án efa meðal stærstu stjarna
PlayStation undanfarin ár. Ævin-
týri þeirra eru margvísleg og hafa
Uncharted-leikirnir notið gífur-
legra vinsælda og í raun má segja
að þeir leikirnir hafi einkennt
PlayStation 3.
Í tilefni af útgáfu Uncharted 4 í
mars á næsta ári, uppfærði Blue-
point Games gömlu leikina þrjá
fyrir PS4 og Naughty Dog gaf þá
út í einu safni. Leikirnir hafa verið
uppfærðir að miklu leyti og líta
mun betur út, eins og sjá má hér
á síðunni.
Í leikjunum er blandað saman
skotbardögum, þrautum og
skemmtilegri sögufrásögn.
Spilarar stýra Nathan Drake í
gegnum fornar rústir allt frá frum-
skógum Suður-Ameríku til Hima-
layafjalla og Sádi-Arabíu, þar sem
hann leitar fornra fjársjóða og
berst við illmenni.
Fyrsti leikurinn, Drake’s For-
tune, er nú orðinn átta ára gamall
og það sést á honum. Grafíkin lítur
að vísu ágætlega út, en hreyfingar
og skotkerfi ekki, þrátt fyrir að
skotkerfið hafi verið bætt. Þá ger-
ist það leiðinlega oft, þegar Drake
þarf að klífa kletta og byggingar,
að sjónarhornið hjálpar ekki til.
Þá vill það gerast að maður hoppi
fram af klettum og láti lífið á
annan máta.
Bæði Uncharted 2 og 3 virðast
ekki eiga við þessi vandamál að
stríða.
Stýrikerfið virkar mun betur
og bardagar virka bæði skemmti-
legri og náttúrulegri. Það er að
auðveldara að miða og jafnvel að
fara í skjól.
Önnur nýjung er að nú er búið
að bæta við svokölluðu Speed
Run. Þar geta spilarar keppst við
að klára borð á sem skemmstum
tíma og borið tíma sína saman við
hve lengi vinir þeirra eru að klára
borðin. Þá er einnig hægt að bera
annars konar tölfræði saman við
tölfræði vina. Það er hve marga
óvini þú hefur fellt og slíkt.
Uncharted-safnið er stórgóður
sögupakki sem býður upp á mikla
skemmtun. Það sem Uncharted-
serían gerir alveg frábærlega er
að segja skemmtilega sögu mjög
áhugaverðs karakters. Nathan
Drake er frábær og leikirnir eru
allir stórskemmtilegir.
Samúel Karl Ólafsson
Endurfæddur Nathan Drake
Uncharted: The Nathan Drake Collection gerir góða leiki betri.
Uncharted: Drake’s Fortune
Kom út árið 2007.
Rúmlega 4,8 milljónir eintaka
seldar.
Var valinn PS3-leikur ársins af
fjölmörgum miðlum.
Uncharted 2: Among Thieves
Kom út árið 2009.
Rúmlega 6,6 milljónir eintaka
seldar.
Var valinn leikur ársins af fjöl-
mörgum miðlum.
Uncharted 3: Drake’s Deception
Kom út árið 2011.
Rúmlega 6,7 milljónir eintaka
seldar.
Var valinn leikur ársins af fjöl-
mörgum miðlum.
Nathan Drake kemst í hann krappann um allan heim.
Útlit leikjanna allra hefur verið uppfært og eru þeir nú í háskerpu.
Uppskrift fengin af
evalaufeykjaran.com
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
Lífið
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-6
D
D
C
1
6
D
6
-6
C
A
0
1
6
D
6
-6
B
6
4
1
6
D
6
-6
A
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K