Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Daði Einarsson var svokallaður tækni- brellustjóri kvikmyndarinnar Everest sem frumsýnd var fyrir skömmu. Myndin, sem Baltasar Kormákur leik- stýrði, hefur slegið í gegn um heim allan og þá hafa tæknibrellurnar í myndinni fengið mikið lof. Krefjandi gagnvart aðstand- endum þeirra sem létust Daði segir verkið hafa verið einkar krefjandi sökum þess að allt þurfti að vera mjög raunverulegt til að gera söguna raunverulega og trúverð- uga. „Þetta va r ó t r ú - lega krefjandi verkefni og þess vegna mjög gaman. Ábyrgðin var líka mjög mikil gagnvart framleið- anda, leikstjóra, áhorfendum og ekki síst gagnvart aðstand- endum þeirra sem létust í slysinu. Það var líka mikilvægt að gera þetta vel gagnvart fjallafólki og það mátti ekki skálda mikið í kringum þetta. Það var mikil pressa að ná þessu rétt og við vorum mjög nákvæmir í öllum okkar aðgerðum,“ segir Daði spurður út verkefnið. Everest kom eins og fyrr segir út fyrir skömmu en hún hefur þó átt hug Daða í um tvö ár. „Þetta var mjög langt ferli. Ég kem mjög snemma inn í ferlið og það eru eiginlega fáar deildir sem koma jafn snemma inn í ferlið og okkar deild. Við byrjuðum að undirbúa þetta árið 2012 og fórum í vettvangskannanir árið 2013. Sumarið 2013 vorum við að festa niður tökustaði og svo hófust tökur í janúar 2014. Við skilum svo af okkur í byrjun júní 2015, þannig að þetta eru um tvö ár sem hafa alveg farið í verkefnið,“ útskýrir Daði. Að mestu unnið á Íslandi Sem tæknibrellustjóri setur Daði upp plan og hefur yfirsýn en með honum starfar fjöldi fólks. „Megnið af tækni- brelluvinnunni fór fram á Íslandi og og þetta eru mest allt Íslendingar sem vinna að þessu. Við unnum þó einnig verkefni með fyrirtæki í London og Svíþjóð.“ Everest er byggð á sönnum atburð- um sem gerðust í maí árið 1996, þegar öflugur stormur skall skyndilega og algjörlega óvænt á fjallinu með þeim afleiðingum að átta fjallgöngumenn sem voru komnir á toppinn eða rétt að komast þangað fórust. Hvernig fer maður að því að búa ti l s l íkan storm í kvik- mynd? „Að búa til storm byrjar á mikilli rannsóknarvinnu. Við leitum að myndskeiðum af alvöru stormum, förum á YouTube og skoðum alvöru- fyrirbærið. Svo hönnum við okkar storm með concept-artista, gerum skissur og skoðum með leikstjóra. Þegar við erum sammála um hvernig þetta á að líta út förum við í þá vinnu að búa til storm sem hreyfist og virð- ist raunverulegur. Þar notumst við meðal annars við hugbúnað sem líkir eftir náttúrufyrirbærum og skeytum saman við tölvuteiknuð ský. Við reyn- um að nota mikið af samanskeyttum ljósmyndum eða kvikmyndatökum og reynum af fremsta megni að halda okkur í sama heimi og óbreyttu tök- urnar. Það er alveg sama hversu vel tæknibrellur eru gerðar, ef þær eru stílbrot við óbreyttu tökurnar þá eru þær misheppnaðar,“ útskýrir Daði. Til þess að setja sig inn í aðstæð- urnar þurftu Daði og Baltasar að fara til Everest og skoða svæðið vel. „Við fórum til Everest og fórum þar um í þyrlu og þurftum að kynna okkur þetta og átta okkur á aðstæðum. Við þurftum að finna þá tilfinningu sem við vildum setja á tjaldið. Eftir á að hyggja var það mjög mikilvægt og allar ákvarðanir voru teknar út frá þessari upplifun.“ Daði segir myndina frábrugðna ævintýramyndum hvað varðar tækni- brellur að því leytinu til að ekkert mátti út af bregða í Everest. „Myndin er sérlega erfið að því leyti að það má ekkert út af bregða í mörgum til- fellum. Ef þetta væri ævintýramynd þá væri meira frelsi til að skálda og hafa eitthvað sem er kannski frekar fallegt heldur en að það sé endilega raunverulegt. Everest varð að vera raunveruleg til að halda öllu inni í sögunni. Í grunninn til var bara eitt stórt vandamál og það var að búa til fjallgarð. Þegar við sáum að við gátum búið til raunverulegt og fallegt Everestfjall var þetta komið að mestu leyti,“ útskýrir Daði. Fleiri stór verkefni í pípunum Myndin er tekin upp víð, í Katmandú og víðar í Nepal en þegar komið var að grunnbúðum Everest var farið í kvik- myndastúdíó í Róm og víðar og notast við Greenscreen. „Við tókum mikið upp í Dólómíta-fjöllunum á Ítalíu og náðum þar að nýta okkur snjóinn og kuldann en við skiptum samt út fjöllunum fyrir Himalaya-fjöllin. Við vorum þarna í þrjú þúsund metra hæð þannig að þetta voru ekkert þægilegar innitökur,“ bætir Daði við. Daði og Baltasar hafa nú unnið að fjórum kvikmyndum saman og eiga saman fyrirtækið RVX. RVX hefur í nógu að snúast og hefur fyrirtækið fengið mikið af fyrirspurnum eftir að Everest kom út. „Við erum á fullu með eitt og annað. Það er eitt stórt verk- efni á döfinni sem er spennandi. Eftir að Everest kom út hafa menn verið að spyrjast fyrir um hvernig við gerðum þetta. Annars erum við núna að bera saman og skoða næstu myndir. Þess á milli erum við alltaf með fullt af smærri verkefnum og erum til dæmis að vinna að þáttunum Ófærð um þess- ar mundir.“ gunnarleo@frettabladid.is Þurfti að búa til fallegt Everestfjall Daði Einarsson stýrði tæknibrellugerðinni í kvikmyndinni Everest en brellurnar eru að mestu unnar á Íslandi. Mjög krefjandi verkefni. Daði Einarsson sá meðal annars um að búa til fjallgarð og stórhríð í myndinni Everest. FRÉTTABLAÐIÐ/GvA Helstu verkefni Daða undanfarin ár Everest - 2015 Fúsi  - 2015 Metalhead - 2013 Gravity - 2013 2 Guns - 2013 Boardwalk Empire - 2012 Djúpið - 2012 Contraband - 2012 Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið Skrímslið litla systir mín Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds Aðeins örfáar sýningar: Sun. 1. nóv. kl . 13.00 Sun. 15. nóv. kl . 13.00 Sun. 22. nóv. kl . 13.00 Barnasýning ársins Sproti ársins Gríman 2015 - DV - S.J. Fréttablaðið *Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 31. desember halda þessum kjörum í eitt ár. Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is FÁÐU STÖÐ 3 Á BETRA VERÐI Í VETUR STÖÐ 3 +ENDALAUST TAL +1 GB Í GSM 1.990 kr. til 31. desember* 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r58 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 D 6 -2 D A C 1 6 D 6 -2 C 7 0 1 6 D 6 -2 B 3 4 1 6 D 6 -2 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.