Fréttablaðið - 05.11.2015, Page 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Daði Einarsson var svokallaður tækni-
brellustjóri kvikmyndarinnar Everest
sem frumsýnd var fyrir skömmu.
Myndin, sem Baltasar Kormákur leik-
stýrði, hefur slegið í gegn um heim
allan og þá hafa tæknibrellurnar í
myndinni fengið mikið lof.
Krefjandi gagnvart aðstand-
endum þeirra sem létust
Daði segir verkið hafa verið
einkar krefjandi sökum
þess að allt þurfti að vera
mjög raunverulegt til
að gera söguna
raunverulega
og trúverð-
uga. „Þetta
va r ó t r ú -
lega krefjandi
verkefni og þess
vegna mjög gaman.
Ábyrgðin var líka mjög
mikil gagnvart framleið-
anda, leikstjóra, áhorfendum
og ekki síst gagnvart aðstand-
endum þeirra sem létust í slysinu.
Það var líka mikilvægt að gera þetta
vel gagnvart fjallafólki og það mátti
ekki skálda mikið í kringum þetta.
Það var mikil pressa að ná þessu rétt
og við vorum mjög nákvæmir í öllum
okkar aðgerðum,“ segir Daði spurður
út verkefnið.
Everest kom eins og fyrr segir út fyrir
skömmu en hún hefur þó átt hug Daða
í um tvö ár. „Þetta var mjög langt ferli.
Ég kem mjög snemma inn í ferlið og
það eru eiginlega fáar deildir sem koma
jafn snemma inn í ferlið og okkar deild.
Við byrjuðum að undirbúa þetta árið
2012 og fórum í vettvangskannanir
árið 2013. Sumarið 2013 vorum við
að festa niður tökustaði og svo hófust
tökur í janúar 2014. Við skilum svo af
okkur í byrjun júní 2015, þannig að
þetta eru um tvö ár sem hafa alveg farið
í verkefnið,“ útskýrir Daði.
Að mestu unnið á Íslandi
Sem tæknibrellustjóri setur Daði upp
plan og hefur yfirsýn en með honum
starfar fjöldi fólks. „Megnið af tækni-
brelluvinnunni fór fram á Íslandi og
og þetta eru mest allt Íslendingar sem
vinna að þessu. Við unnum þó einnig
verkefni með fyrirtæki í London og
Svíþjóð.“
Everest er byggð á sönnum atburð-
um sem gerðust í maí árið 1996, þegar
öflugur stormur skall skyndilega
og algjörlega óvænt á fjallinu
með þeim afleiðingum að
átta fjallgöngumenn sem
voru komnir á toppinn
eða rétt að komast
þangað fórust.
Hvernig fer
maður að
því að búa
ti l s l íkan
storm í kvik-
mynd? „Að búa til
storm byrjar á mikilli
rannsóknarvinnu. Við
leitum að myndskeiðum
af alvöru stormum, förum
á YouTube og skoðum alvöru-
fyrirbærið. Svo hönnum við okkar
storm með concept-artista, gerum
skissur og skoðum með leikstjóra.
Þegar við erum sammála um hvernig
þetta á að líta út förum við í þá vinnu
að búa til storm sem hreyfist og virð-
ist raunverulegur. Þar notumst við
meðal annars við hugbúnað sem líkir
eftir náttúrufyrirbærum og skeytum
saman við tölvuteiknuð ský. Við reyn-
um að nota mikið af samanskeyttum
ljósmyndum eða kvikmyndatökum
og reynum af fremsta megni að halda
okkur í sama heimi og óbreyttu tök-
urnar. Það er alveg sama hversu vel
tæknibrellur eru gerðar, ef þær eru
stílbrot við óbreyttu tökurnar þá eru
þær misheppnaðar,“ útskýrir Daði.
Til þess að setja sig inn í aðstæð-
urnar þurftu Daði og Baltasar að fara
til Everest og skoða svæðið vel. „Við
fórum til Everest og fórum þar um
í þyrlu og þurftum að kynna okkur
þetta og átta okkur á aðstæðum. Við
þurftum að finna þá tilfinningu sem
við vildum setja á tjaldið. Eftir á að
hyggja var það mjög mikilvægt og
allar ákvarðanir voru teknar út frá
þessari upplifun.“
Daði segir myndina frábrugðna
ævintýramyndum hvað varðar tækni-
brellur að því leytinu til að ekkert
mátti út af bregða í Everest. „Myndin
er sérlega erfið að því leyti að það
má ekkert út af bregða í mörgum til-
fellum. Ef þetta væri ævintýramynd
þá væri meira frelsi til að skálda og
hafa eitthvað sem er kannski frekar
fallegt heldur en að það sé endilega
raunverulegt. Everest varð að vera
raunveruleg til að halda öllu inni í
sögunni. Í grunninn til var bara eitt
stórt vandamál og það var að búa
til fjallgarð. Þegar við sáum að við
gátum búið til raunverulegt og fallegt
Everestfjall var þetta komið að mestu
leyti,“ útskýrir Daði.
Fleiri stór verkefni í pípunum
Myndin er tekin upp víð, í Katmandú
og víðar í Nepal en þegar komið var að
grunnbúðum Everest var farið í kvik-
myndastúdíó í Róm og víðar og notast
við Greenscreen. „Við tókum mikið
upp í Dólómíta-fjöllunum á Ítalíu
og náðum þar að nýta okkur snjóinn
og kuldann en við skiptum samt út
fjöllunum fyrir Himalaya-fjöllin. Við
vorum þarna í þrjú þúsund metra
hæð þannig að þetta voru ekkert
þægilegar innitökur,“ bætir Daði við.
Daði og Baltasar hafa nú unnið að
fjórum kvikmyndum saman og eiga
saman fyrirtækið RVX. RVX hefur í
nógu að snúast og hefur fyrirtækið
fengið mikið af fyrirspurnum eftir að
Everest kom út. „Við erum á fullu með
eitt og annað. Það er eitt stórt verk-
efni á döfinni sem er spennandi. Eftir
að Everest kom út hafa menn verið að
spyrjast fyrir um hvernig við gerðum
þetta. Annars erum við núna að bera
saman og skoða næstu myndir. Þess
á milli erum við alltaf með fullt af
smærri verkefnum og erum til dæmis
að vinna að þáttunum Ófærð um þess-
ar mundir.“ gunnarleo@frettabladid.is
Þurfti að búa til
fallegt Everestfjall
Daði Einarsson stýrði tæknibrellugerðinni í kvikmyndinni Everest
en brellurnar eru að mestu unnar á Íslandi. Mjög krefjandi verkefni.
Daði Einarsson sá meðal annars um að búa til fjallgarð og stórhríð í myndinni Everest. FRÉTTABLAÐIÐ/GvA
Helstu verkefni
Daða undanfarin ár
Everest - 2015
Fúsi - 2015
Metalhead - 2013
Gravity - 2013
2 Guns - 2013
Boardwalk Empire - 2012
Djúpið - 2012
Contraband - 2012
Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið
Skrímslið litla systir mín
Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds
Aðeins örfáar sýningar:
Sun. 1. nóv. kl . 13.00
Sun. 15. nóv. kl . 13.00
Sun. 22. nóv. kl . 13.00
Barnasýning ársins
Sproti ársins
Gríman 2015
- DV
- S.J. Fréttablaðið
*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 31. desember halda þessum kjörum í eitt ár.
Fáðu þér áskrift í
síma 1817 eða á 365.is
FÁÐU STÖÐ 3
Á BETRA VERÐI
Í VETUR
STÖÐ 3
+ENDALAUST TAL
+1 GB Í GSM
1.990 kr.
til 31. desember*
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r58 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-2
D
A
C
1
6
D
6
-2
C
7
0
1
6
D
6
-2
B
3
4
1
6
D
6
-2
9
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K