Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 4
4 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2007
Staða verslunar í miðborg
Reykjavíkur var rædd á Miðborg-
arþingi í Tjarnarsal Ráðhússins
í síðustu viku. Í ljós kom að rúm-
lega 40% höfuðborgarbúa sækja
nær aldrei verslun í miðborg
Reykjavíkur, og um fimmtung-
ur Reykvíkinga eða 20,9% sækir
aldrei verslun í miðborg Reykja-
víkur en 22,7% segjast gera það
sjaldnar en einu sinni í mánuði.
Þetta þýðir að samanlagt 43,6%
fara sjaldnar en einu sinni í mán-
uði eða aldrei í miðborgina til
að sækja verslun.
Þessar upplýsingar eru úr könn-
un Capacent Gallup sem kynnt
var á Miðborgarþinginu. Á mál-
þinginu var sjónum beint að mik-
ilvægi verslunar og þjónustu fyr-
ir miðborg Reykjavíkur og spurt:
„Hvernig eflum við verslun og
þjónustu í miðborg Reykjavíkur?”
Þegar horft er til íbúa nágranna-
sveitarfélaganna er svipað uppi
á teningnum og í höfuðborginni.
Þar segjast 23,0% aldrei sækja
verslun í miðborg Reykjavíkur
og 37,8% sjaldnar en einu sinni í
mánuði. Þetta þýðir að samanlagt
60,8% íbúa nágrannasveitarfélag-
anna sækja nær aldrei verslun í
miðborg Reykjavíkur.
Af landinu öllu segjast 26,2%
aldrei sækja verslun í miðborg-
inni og samanlagt 63,7% sjaldnar
en einu sinni í mánuði eða aldrei.
Miðborg Reykjavíkur,
nýtt félag
Á Miðborgarþinginu kynnti
Júlíus Vífill Ingvarsson Miðborg
Reykjavíkur, nýtt félag á vegum
borgaryfirvalda og hagsmuna-
aðila. Jan Olav Braaten, fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda ráð-
gjafafyrirtækisins Braaten+Peder-
sen, fjallaði um Reykjavík sem
hluta af alþjóðlegri þróun. Jan
Olav hefur um 20 ára reynslu af
þróun og uppbyggingu verslunar-
miðstöðva í Evrópu og verkefnum
tengdum smásöluverslun. Svava
Johansen, kaupmaður og eigandi
NTC, fjallaði um samstöðu í mið-
borginni sem lykil að árangri og
mikilvægi þess að hafa sameigin-
legan opnunartíma.
En hvað skyldi valda því að nú
er blásið til sóknar fyrir miðborg-
ina? Júíus Vífill segir aðspurður að
í upphafi hafi verið farið að skoða
með hvaða hætti Reykjavíkurborg
gæti komið að uppbyggingu, við-
gangi og vexti miðborgarinnar. Til
borgarstjóra og Júlíusar Vífils leit-
uðu rekstraraðilar í miðborginni
og óskuðu eftir því að Reykjavíkur-
borg tæki þátt í því samstarfi sem
þeir áttu þegar í sem miðaði að
því að setja enn meiri kraft í mark-
aðssetningu og ímyndarvakningu
fyrir miðborgina. Einnig vildu þeir
að upplýsingaflæði væri tryggt
milli hagsmunaaðila og Reykjavík-
urborgar og að félag sem héldu
utan um ýmislegt sem snýr að
miðborginni hefði beinan aðgang
inn í borgarkerfið.
“Ég gerði mér ekki grein fyrir
hvernig þessum málum væri hátt-
að fyrr en á stjórnarfundi Aust-
urhafnar um bráðabirgðagatna-
kerfi í tengslum við byggingu
tónlistarhússins, en þá spurði ég
hvort ekki væri örugglega búið að
kynna það fyrir hagsmunaaðilum
og setja það gegnum þeirra sam-
tök. Í ljós kom að slík eðlileg upp-
lýsingagjöf var ekki í gangi. Það
er mjög erfitt að reka fyrirtæki og
vera ekki upplýstur um hvað er
að gerast í nánasta umhverfi.”
- Er þetta nýja félag bæði hags-
munafélag þeirra sem reka verslun
og þjónustu í miðborginni og íbú-
anna?
“Það verður opnað fyrir ákveð-
na aðkomu íbúanna að félaginu
vegna þess að í miðborginni er
ekki bara rekstur, það kjósa ein-
nig margir að búa í miðborginni,
og það lítur út fyrir að í framtíð-
inni muni þeim fjölga talsvert. Á
jaðarsvæðum eins og í Mýrargötu-
skipulaginu er íbúum að fjölga og
á tveimur svæðum sem skipulögð
hafa verið við Laugaveginn er
gert ráð fyrir íbúum. Það er mikið
gleðiefni og einnig algjörlega nauð-
synlegt.”
Mikilvægt að samræma
opnunartíma
- Hefur miðborgin verið að láta
undan í samkeppninni við versl-
unarmiðstöðvarnar Kringluna og
Smáralind?
“Það er áhyggjuefni að þeir sem
fara að versla kjósa frekar að fara
í Kringluna eða Smáralind fremur
en í miðborgina. Þær tölur sem
nú hafa verið kynntar hvað það
varðar eru mjög sláandi og alvar-
legar og mun verri en ég átti von
á. Ég vissi að verslun hafði dregist
saman miðað við það sem hún
hafði verið áður sem hlutfall af
verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Þessi niðurstaða krefst þess að
spornað verði við fótum og henni
svarað.
Það er mjög mikilvægt að versl-
unartíminn í miðborginni verði
samrýmdur vegna þess að við-
skiptavinurinn vill geta gengið
að því vísu verslanir á ákveðnu
svæði séu opnar á ákveðnum
tímum með svipuðum hætti og
gerist í verslunarkjörnum. En ég
vildi einnig sjá meiri fjölbreytni
í verslunarrekstri í miðborginni,
og vonandi kemur það. Áður fyrr
voru margar smáar matvöruversl-
anir, t.d. á Bræðraborgarstíg, en
nú eru þar engar verslanir. Fólk
gerir stærri innkaup, það tíðkast
aðrir innkaupahættir, menn fara
yfirleitt ekki út í matvöruverslun
fyrir minna en fjóra til fimm plast-
poka og setja þá í skottið á bíln-
um sem stendur fyrir utan versl-
unina. Ég er ekki viss um að það
sé í takt við nútíma innkaupavenj-
ur að hafa stórar matvöruversl-
anir eins og Hagkaup eða Bónus
í miðborginni. Bílastæðaskortur
er eitt af þeim vandamálum sem
við er að glíma en á móti hefur
miðborgin upp á margt að bjóða,
mikill fjölbreytileiki og mannlíf-
ið fjölbreytt. Í miðborginni eru
margar verslanir og einnig margir
mjög áhugaverðir veitingastaðir.
Í kaffihúsaflórunni hefur miðborg-
in afgerandi sérstöðu og forystu,
enda þar ákveðið útsýni og upplif-
un sem fólk sækist eftir með því
að fara í miðborgina.”
- Það kom fram á ráðstefnunni
ákveðin ósk um að gömul og hrör-
leg hús yrðu fjarlægð og að byggt
yrði yfir gangstéttir. Hvað finnst þér
um það?
“Það er mjög áhugaverð hug-
mynd enda eru ekki allir húseig-
endur nægilega samála í því að
útlit Laugavegarins sé með þeim
hætti eins og maður vill sjá hann.
Það kostar að halda gömlum hús-
um við, og húseigendur verða
að gera ráð fyrir því og það er
sú skylda sem maður verður að
ætlast til af þeim sem eiga þessi
gömlu hús að þeir haldi þeim þan-
nig við að sómi sé að.”
- Á fundinum var kynnt að stofn-
uð yrðu íbúasamtök miðborgar-
innar. Er það jákvæð viðbót við
nýstofnað uppbyggingafélag mið-
borgarinnar?
“Það eru mjög góðar fréttir og
ég vona að þarna verði stofnuð
virk íbúasamtök. Íbúasamtök eru
í eðli sínu grasrótarsamtök og því
ekki eðlilegt að Reykjavíkurborg
komi að stofnun þeirra með sama
hætti og þessa nýstofnaða upp-
byggingarfélags miðborgarinnar.”
- Þú ert formaður þessa nýstofn-
aða uppbyggingarfélags miðborgar-
innar. Verslar þú sjálfir þar?
“Já, talsvert. Ég bý ekki langt frá
miðborginni og á góðum dögum
að kvöldlagi eða um helgar geng
ég oft niður í bæ og nálgast þar
það sem ég vil fá. Mér finnst oft
gott að þurfa að versla eitthvað,
þá á ég erindi. Svo vinn ég einnig
niður í bæ og geng þar oft á milli
húsa. Það kom líka fram á fund-
inum að mjög stór hluti Reykvík-
inga, eða um 80%, ber mjög hlýj-
an hug til miðborgarinnar og vill
sjá hann vaxa. Það voru kannski
jákvæðustu niðurstöður þessarar
könnunar og í því felast gríðarleg
tækifæri sem við ætlum að nýta
okkur. Það liggur fyrir meiri upp-
bygging í miðborginni en nokkru
sinni fyrr. Þegar árið 2010 verður
töluvert öðru vísi umhorfs en er í
dag,” segir Júlíus Vífill Ingvarsson
borgarfulltrúi.
Frá háborðinu á þingi um verslun og þjónustu í miðborg Reykjavíkur.
Miðborg Reykjavíkur, félag borgaryfirvalda og hagsmunaaðila:
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
Við erum hér!
Ar ar GuðborgDagný
Rakel KongaSilla
SALON REYKJAVÍK
Grandagarði 9 • Reykjavík • S. 568 5305
salon@salon.is
Vertu velkomin(n)!
Við er flutt
út á Granda!
Hárgreiðslustofan Salon Reykjavík hefur
flutt sig um set úr Glæsibæ út á Grandagarð 5,
gegnt gamla Ellingsen húsinu.
Grandagarði 5 • Reykjavík • S. 568 5305
Setja á kraft í markaðssetningu og
ímyndarvakningu fyrir miðborgina
“Það er áhyggjuefni að þeir sem fara að versla
kjósa frekar að fara í Kringluna eða Smáralind
fremur en í miðborgina. Þær tölur sem nú hafa
verið kynntar hvað það varðar eru mjög sláandi
og alvarlegar og mun verri en ég átti von á. Ég vissi
að verslun hafði dregist saman miðað við það sem
hún hafði verið áður sem hlutfall af verslun á höf-
uðborgarsvæðinu. Þessi niðurstaða krefst þess að
spornað verði við fótum og henni svarað.”
AUGL†SINGASÍMI
511 1188 & 895 8298
www.borgarblod.is