Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 4
Evrópumeistaramótið
í Brtissel.
FYRSTI DAGUR:
Fjörutíu og þriggja ára gamall
Breti sigraði í Maraþonhlaupinu.
— Haukur, Finnbjörn og Guð-
mundur í undanúrslitum.
Maraþonhlaupið var fyrsta
keppnisgrein þessa 4. E.M.-móts.
Alls voru 24 skráðir, en 21 lögðu
af stað og það ótrúlega hratt, með
Norðmanninn Systad í fararbroddi.
Hann hélt þó forustunni ekki lengi,
því að eftir 12 mín. voru fremstir
Frakkamir Joset og Cerou, ásamt
Leblonde og Gailly frá Belgíu, en
Gailly er mjög frægur Maraþon-
hlaupari, varð t. d. 3. á Ólympíu-
leikunum í London 1948. Eftir 18
km. er Gailly fyrstur, Brefinn
Holden um 25 m. á eftir, en Joset
gefur sig. Þegar hlaupið er rúm-
lega hálfnað tekur Holden forust-
una og fer allgreitt, Rússinn Vanin
er þó aðeins 15—20 metrum á eftir.
Bretinn hélt forustunni það, sem
eftir var af hlaupinu og vann með
töluverðum yfirburðum. Karvonen
hafði góðan endasprett og tókst að
yfirbuga Vanin.
Rússinn Scherbakov, sem álitinn
var öruggur með þrístökkið, byrj-
aði mjög illa og slapp með naum-
indum í úrslit með 14.29 m. stökki.
Leit lengi vel út fyrir, að E.M.-
meistarinn frá 1946, Rautio, Finn-
landi, ætlaði að halda titli sínum,
en í fimmtu tilraun sýndi Scherba-
kov fyrst hvað í honum bjó og
náði 15.39 m. Annars var hann ó-
viss og átti þrjú stökk ógild. Norð-
maðurinn Nielsen var jafn og átti
ógilt stökk ca. 14.70 m. Aftur á
móti átti Ruho aðeins eitt stökk
yfir 14 metra.
Eins og allir bjuggust við vann
Zatopek 10 þús. metra hlaupið með
miklum yfirburðum, þrátt fyrir
mjög þunga braut og var aðeins
tæplega 10 sek. frá hinu nýsetta
heimsmeti sínu. Stokken og Mim-
oum voru álitnir næststerkastir og
milli þeirra stóð baráttan um ann-
að sætið, en Stokken reyndi um of
að elta Zatopek og fyrir vikið hafn-
aði hann í 6. sæti. Hringavörður-
inn ruglaðist eitthvað í hringatöl-
unni og þar af leiðandi þurftu
margir að taka tvo endaspretti. *
Það hafði auðvitað slæm áhrif á
tímann.
í dag var einnig keppt til
úrslita í spjótkasti og kúluvarpi
kvenna, en þar sigruðu rússnesku
stúlkumar með miklum yfirburð-
um. Ólympíusigurvegaramir
Bauma frá Austurríki og Oster-
meyer frá Frakklandi vom þó
meðal þátttakenda. Rússnesku
stúlkumar em mjög kröftugar og
4
IÞRÓTTIR