Allt um íþróttir - 01.09.1950, Síða 13
FIMMTI DAGUR E.M. í BRUSSEL:
Ásmundur 5. í 200 m. — Boð-
hlaupssveitin varð 5. í röðinni —
ísland hlaut 28 stig og varð átt-
unda í röðinni í karlagreinum af
22 þátttökuþjóðum.
Hástökkið var mjög jafnt og
skemmtilegt, en ekki náðist að
sama skapi góður árangur. Pater-
son fór t. d. ekki yfir 1.96 m. fyrr
en í annarri tilraun og 1,90 og
Alan Paterson, Bretl., Evrópumeistan í hdstökki
Síðasti dagur þessa Evrópu-
meistaramóts er runninn upp
bjartur og fagur. Alls verður keppt
til úrslita í 11 greinum í dag og
eru íslenzkir þátttakendur í tveim
þeirra, þ. e. 200 m. hlaupi og boð-
hlaupi 4X100 metra.
Englendingurinn Shenton, sem
keppti í fyrsta sinn í enska lands-
liðinu og er aðeins tuttugu ára,
var í sérflokki í 200 m. Ásmundur
hljóp mjög vel og fékk sama tíma
og þriðji maður, hann vann t. d.
Frakkan Camus, sem hefur hlaup-
ið á 21.5 í ár.
1.93 felldu flestir keppendumir
einu sinni og tvisvar. Það var
vissulega synd, að Skúli skyldi
ekki geta verið með.
Loksins fengu frændur okkar
Norðmenn gullverðlaun, en það sá
hinn ungi og efnilegi Strandli um
í sleggjukastinu. Lengi leit þó út
fyrir, að hinn næstum ferkantaði
ítali, Taddia ætlaði að sigra, því að
sigurkast Strandlis kom ekki fyrr
en í 5. umferð.
ítalinn Filiput var langbeztur í
400 m. grindahlaupi og hljóp á
nýju EM-meti. Það var næstum
IÞRÖTTIR
13