Allt um íþróttir - 01.09.1950, Síða 21
islandske laget Valur“. Valur sigr-
aði með 4:0, en hefði skotleiknin
verið nokkurn veginn í hlutfalli
við hinn leikandi góða samleik,
hefði markatalan náð tveggja
stafa tölu“. Ellert skoraði eftir 14
mín. Sveinn annað nokkru síðar,
en Gunnlaugur tók síðan við og
skoraði 2 mörk í síðari hálfleik.
í Flekkefjord varð Valur að
berjast fyrir sigrinum, því að
heimamennirnir tóku leikinn strax
í sínar hendur. Það var ekki fyrr
en í síðari hálfleik að Valur fór
að koma við sögu og um stundar-
fjórðungi fyrir leikslok skoraði
Gunnlaugur eina mark leiksins.
Eftir leikinn áttu héraðsblöðin
ekki nógu sterk orð til að lofa leik
Vals, sem talinn var einhver sá
bezti, sem sézt hefði þar um slóð-
ir. Sérstaklega geta þau leiks Sig-
urðar Ólafssonar, „klippen, som
de fleste Flekkef jord-angreb stran-
dede pá.“
Sama sagan endurtók sig í
Haugasundi, blöðin þar töldu leik
Vals einhvern hinn bezta sem leik-
inn hefði verið þar í sumar. Enda
þótt úrslitin, 7:3, bendi til að leik-
urinn hafi verið einhliða, þá náði
Valur ekki afgerandi tökum á
leiknum fyrr en í síðari hálfleik.
Fyrri hálfleikur endaði með 5:3
Val í hag.
Síðasti leikurinn fór svo fram
í Sandnes skammt frá Stafangri,
gegn Úlf. Lauk honum með sigri
Vals, 2:1.
Leikmenn Vals vöktu sérstaka
eftirtekt fyrir prúðmannlega fram-
göngu, áunnu sér hvarvetna fylgi
og hylli áhorfenda. Var alls staðar
viðkvæðið, að vonandi sæi Valur
sér fært að leika sem fyrst aftur
í Noregi.
SPREYTTU ÞIG — !
Sá, sem getur svarað 8 spum-
ingum réttum, hefur góða þekk-
ingu á íþróttum og íþróttamálum.
1. Hvaða íslendingur hljóp fyrst-
ur 800 m. undir 2 mínútum?
2. Hvaða félag er Reykjavíkur-
meistari í handknattleik
kvenna?
3. Hve mörg mörk skoruðu Vals-
menn í utanferð sinni til Nor-
egs í sumar?
4. Hver er skákmeistari íslands?
5. Hver er formaður Knatt-
spyrnufél. Þróttur?
6. Hvaða þjóð varð þriðja í
knattspyrnu á Ólympíuleikun-
um í London 1948?
7. Hvar voru íslendingar í röð-
inni að stigafjölda á E.M. í
Osló 1946?
8. Hver er formaður FRÍ?
9. í hvaða íþróttagrein fengu
Svíar þrjá fyrstu menn á Ól-
ympíuleikunum 1948?
10. Hvað á að lesa úr U.Í.A.?
Svör við spurningum á bls. 25.
Ármann hraðkeppnismeistari.
Nýlega fór fram í Engidal í
Hafnarfirði hraðkeppni í hand-
knattleik kvenna. Úrslit urðu þau,
að Glímufélagið Ármann sigraði.
Alls tóku f jögur félög þátt í keppn-
inni og þar á meðal íslandsmeist-
ararnir Fram.
IÞRÓTTIR
21