Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 26
jPýzk lm,attópyma
Sá siður hefur komizt á eftir
styrjöldina, að gömlu Reykjavík-
urfélögin fjögur hafa haft sam-
vinnu tvö og tvö um heimboð er-
lendra knattspyrnuflokka. Sumar-
ið 1948 sáu Fram og Víkingur um
móttökur sænska liðsins Djurgár-
den, 1949 tóku K.R. og Valur upp
enska atvinnuliðið Lincoln City og
í ár var því röðin aftur komið að
Fram og Víking.
Snemma í vor voru miklar lík-
ur til §8 hingað fengizt þýzkt lið
um mánaðamótin maí-júní, en er
að þeim tíma leið, komst allt í ein-
daga, vegna tafa á alls konar leyf-
um, og er leið að komu Dananna,
virtist alveg loku fyrir það skot-
ið, að af heimsókninni yrði í
sumar.
En í ágúst komu skilaboð um,
að lið væri reiðubúið til íslands-
ferðar og þ. 20. ágúst steig hér
á land úrvalslið frá Rínarlöndum,
þriðji þýzki knattspymuflokkur-
inn, sem hingað kemur.
Flokkurinn lék hér 5 leiki á
8 dögum, og er ekki undarlegt þótt
síðari leikir hans hafi staðið þeim
fyrstu á sporði. Það var eins með
þetta lið og sjálenzka úrvalið, að
það sýndi beztan leik fyrst, en
heldur dró af því, er frá leið.
Það lætur því nærri, að fyrstu tveir
leikirnir muni með nokkrum sanni
mega teljast mælikvarði á getu
þeirra.
Þá sýndi liðið einhverja áferðar-
arfallegustu og skemmtilegustu
knattspymu, sem hér hefur sézt
eftir stríðið, en skotmenn vantaði
tilfinnanlega. Hætti því framherj-
unum um of til að reyna að leika
knettinum inn í mark andstæðing-
anna, en þegar þeir raða sér á
vítateiginn, vill það verða erfitt.
í fyrri hálfleik gegn Fram lék
liðið vöm Fram sundur og sam-
an, en gat aldrei rekið smiðshögg
á upphlaupin, og er Ríkharði tókst
skyndilega að skora tvö mörk í
skyndiupphlaupum, komst liðið úr
jafnvægi, en jafnaði sig og bar sig-
ur úr býtum með 6 mörkum gegn 3.
I leiknum gegn styrktu liði Vík-
ings náði liðið ekki eins góðum
leik og má eflaust rekja það til
fjarveru fyrirliðans, Jupp Gauch-
els, sem kom inn á í hléi, og
skipti þá alveg um. Hafði Víking-
ur, sem lék nú einhvem sinn bezta
leik um áratug, betur í fyma hálf-
leik, en með tilkomu Gauchels í
síðari hálfleik tókst þýzka liðinu
að rétta við hlut sinn og sigraði,
5:4.
Liðið notar þá leikaðferð, sem
venjulega er kölluð meginlands-
knattspyrna, en í móðurlandi
íþróttarinnar er hún kennd við
Skotland. Gengur knötturinn í sí-
fellu mann frá manni með hraða
og nákvæmni, lítið um langar send-
ingar og einleik bregður sjaldan
26
IÞRÖTTIR