Allt um íþróttir - 01.09.1950, Síða 28
Norræna skákmótið:
Baldur Möller hélt velli.
fslendingar sigruðu í öllum flokkum.
íslenzkir skákmenn létu muna
um sigurinn á „Norræna skákmót-
inu“, sem fram fór um mánaða-
Norðurlandameistarinn
Baldur Möller
mótin júlí-ágúst hér í Reykjavík.
Þeir sigruðu í öllum flokkum og
það sem er eftirtektarverðara, þeir
skipuðu einnig annað sætið í hverj-
um flokki.
Norðurlandameistarinn 1948 —
Baldur Möller — átti í vök að
verjast, en hélt velli og þar með
titlinum. Var mikil óvissa ríkjandi
fram á síðustu stund um úrslitin
í landsliðsflokknum og fylgdist
mikill mannfjöldi með úrslitaskák
þeirra Vestöls frá Noregi og Bald-
urs Möllers, sem var djarflega
tefld og tvísýn. Baldur vann skák-
ina og tryggði sér með því efsta
sætið, en Guðjón M. -Sigurðsson
hafnaði í öðru sæti og er það vel
af sér vikið, þar sem hann er enn
ungur og átti í höggi við marga
þaulreynda skákmenn.
Annar enn yngri (15 ára) Frið-
rik Ólafsson, sigraði í meistara-
flokki og vann sér þar með rétt til
sætis í landsliði. Hann sigraði ör-
ugglega og tapaði engri skák. Ann-
ar varð Áki Pétursson. — í fyrsta
flokki A sigraði Birgir Sigurðsson,
en Þórir Ólafsson varð jafn hon-
um, og í fyrsta flokki B varð Ól-
afur Einarsson hlutskarpastur, en
næstir honum og jafnir urðu þeir
Haukur Kristjánsson og 0jvind
Larsen, Danmörku.
Þetta fyrsta Norðurlandaskák-
mót, sem haldið er hérlendis, fór
hið bezta fram og var það einkum
ánægjulegt að geta fylgzt með
skákunum á sérstökum sýningar-
borðum, sem svo viðurkenndir
skákmenn skýrðu jafnharðan og
gáfu þar með unnendum skák-
íþróttarinnar innsýn í undraheima
skáklistarinnar.
Hér fer á eftir skák þeirra Bald-
urs Möllers og Vestöls. Vestöl lék
á hvítt.
Úrslitin í landsliðsflokki:
28
IÞRÓTTIR