Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.01.2015, Side 6

Fréttatíminn - 30.01.2015, Side 6
8.990 FULLT VERÐ: 11.990 – fyrir lifandi heimili – R e y k j a v í k o g A k u r e y r i E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0 w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s Riii i i i i isa AFSLÁTTUR % LOK A- HEL GIN ÚTSALA 70 ALLT AÐ SYLVESTER borðstofustólar. Svartir, hvítir og gráir. Með svörtum löppum COSMO TUNGUSÓFI 35% AFSLÁTTUR ÚTSALA 129.993 FULLT VERÐ: 199.990 Svart bundið leður á slitflötum. Stærð: 224 x 146 H:86 cm Hægri- eða vinstri tunga 184.995 FULLT VERÐ: 369.990 50% AFSLÁTTUR ÚTSALA Stærð: 220x84 H:75 cm. Vandað dökkbrúnt leður og viðarfætur CLARK 3JA SÆTA LEÐURSÓFI 25% AFSLÁTTUR ÚTSALA EMPIRE La-z-boy stóll. Ljóst áklæði. B:80 D:70 H:102 cm. 49.990 FULLT VERÐ: 89.990 44% AFSLÁTTUR ÚTSALA líklega besta sæti í heimi!  Tækni Íslensku vefverðlaunin veiTT Í Gamla bÍói Í daG Endalausir möguleikar í vefhönnun „Þetta er stór dagur og mikil stemning,“ segir Rósa Stefáns- dóttir, formaður SVEF, Samtaka vefiðnaðarins, sem veita Íslensku vefverðlaunin í dag. „Flokkarnir eru 12 í ár og hafa aldrei verið jafn margir. Mest spennandi flokkur- inn er án efa „Besti íslenski vef- urinn“ sem eru mjög eftirsóknar- verð verðlaun. Einnig vekur alltaf athygli hvaða vefur er kosinn með besta útlitið og viðmótið, það eru þeir vefir sem þykja fallegastir á að líta,“ segir Rósa. Breytingarnar í vefhönnun taka hröðum breyting- um og segir Rósa þetta vera mjög spennandi vinnuumhverfi. „Mestu breytingarnar urðu með snjallsímunum fyrir vefhönnuði og forritara,“ segir Rósa. „Í dag fara allir á netið í símanum og því þurfa allir vefir að vera með snjallsíma- útgáfu af sínum vefjum. Það er gríðarlega hröð þróun í tækninni og á hverju ári kemur eitthvað nýtt í tísku. Í dag þykir til að mynda mjög f lott að vera með stærri myndir, stærra letur og að vefur- inn hreyfist með þínum aðgerðum eins og skrolli,“ segir Rósa. „Vef- hönnuðir þurfa að fylgjast vel með og það er hreinlega krafist þess að þeir læri fagið upp á nýtt á nokk- urra ára fresti,“ segir hún. „Þetta er mikil ögrun og um leið mjög skemmtilegt.“ Íslensku vefverðlaunin verða veitt í Gamla bíói í dag klukkan 17. -hf Stór dagur í dag, segir Rósa Stefáns- dóttir, formaður Samtaka vefiðnaðar- ins. Ljósmynd/Hari Byrjað er að taka við skráningum í forprófanir á hugbúnaði sem gerir fólki kleift að fylgjast með verðlagsþróun í verslunum í rauntíma. Verkefnið kallast Strimillinn og taka notendur mynd af kassastrimlinum sínum og senda inn í gagnagrunn. Notendur geta einnig notað hugbúnaðinn til að fylgjast með eigin innkaupum og meta hvort breyta þurfi kauphegðun.  neyTendur sTrimillinn fylGisT með verðbreyTinGum Í verslunum T aki margir þátt í verkefninu þýðir þetta að neytendur geta alltaf séð hvar lægsta verðið er á hverri vöru og hagað verslun samkvæmt því og séð hvort þróun verðlags er sanngjörn og eðli- leg. Síðan geta menn einnig notað kerfið til að fylgjast með eigin neyslu,“ segir Hugi Þórðarson hjá hugbúnaðarhúsinu Loftfar- ið sem stendur að þróun hugbúnaðar sem gerir neytendum kleift að fylgjast með verð- lagsþróun í verslunum í rauntíma. Um tvær vikur eru liðnar síðan byrjað var að taka við skráningum í forprófanir á hugbúnað- inum og hafa nokkur hundruð manns þegar skráð sig. Stofnendur og eigendur Loftfarsins eru þrír gamlir vinir sem ákváðu að taka höndum saman, þeir Sindri Bergmann sem sér um hönnun og þróun, og Lee Roy Tipton sem sér um hugbúnaðarþróun og ráðgjöf, ásamt Huga. Hugmyndin að baki Strimlinum kom upphaflega árið 2008 þegar verðlag hækkaði í verðbólguskoti og Hugi byrjaði að safna innkaupastriml- um. Það var hins vegar ekki fyrr en í kjöl- far breytinga á skattþrepum sem vinnan fór á fullt. Strimillinn virkar þannig að notendur taka mynd af innkaupastrimlinum sínum og senda í tölvupósti á mottaka@strimill- inn.is en þegar er byrjað að taka við striml- um. Brátt geta notendur skráð sig inn á vef Strimilisins og fylgst með því hvar, hvað og hvenær þeir hafa verslað, og hvort þeir geta háttað innkaupum með hagstæðari hætti. Þegar til lengri tíma er litið er stefnan tekin á að búa til sérstakt app fyrir Strimilinn. Enn er nokkuð í að verkefnið verði fullunn- ið en Hugi segir að ekki hafi staðið til að kynna það alveg strax. „Þetta spurðist út og fór að vinda upp á sig. Við lítum bara á þetta sem spark í rassinn,“ segir Hugi. Þeir hafa ennfremur skráð Strimilinn í frum- kvöðlakeppnina Gulleggið en tilkynnt verð- ur í febrúar hvaða verkefni komast í úrslit. „Akkúrat núna erum við að vinna að því að þetta verði algjörlega sjálfvirkt, að þegar menn senda inn strimil þá lesist hann rétt inn í kerfið og að unnið verði úr gögnunum þannig að fólk fái gagnlegar upplýsingar um sína neyslu og verðlag,“ segir hann. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Finnur alltaf besta verðið Aðstandendur Strimilsins og stofn- endur Loftfarsins, þeir Hugi Þórðarson, Sindri Bergmann og Lee Roy Tipton. Mynd úr einkasafni Neytendur geta alltaf séð hvar lægsta verðið er á hverri vöru og hagað verslun samkvæmt því. Með tilkomu Strimilsins verður mun auðveldara að fylgjast með verðlagi í verslunum og gera samanburð. Mynd/Hari 6 fréttir Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.