Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.01.2015, Síða 8

Fréttatíminn - 30.01.2015, Síða 8
Í sátt og samlyndi við náttúru og menn Reykjavíkurborg styður Reykjavíkurskákmót næstu ára og leggur einnig til hús- næði fyrir Evrópumót skák- landsliða sem haldið verður í Reykjavík 2015. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gunnar Björnsson, for- seti Skáksambands Íslands, skrifuðu undir samstarfs- samning þess efnis á þriðju- daginn. Borgin mun styrkja EM 2015 með endurgjalds- lausum afnotum af húsnæði Íþrótta- og sýningarhallar- innar í Laugardal. Mótið hér- lendis verður kynning fyrir Reykjavík og mun Skáksam- band Íslands kynna borgina sem best í aðdraganda móts- ins. Sérstakri samstarfs- nefnd verður komið á lagg- irnar vegna viðburðarins. Þá styrkir Reykjavíkur- borg árleg Reykjavíkurskák- mót til ársins 2017 og nemur heildarfjárhæð stuðnings- ins tæplega 11,5 milljónum króna.  skák reykjavíkurskákmót og evrópumót skáklandsliða Borgin styður Skáksambandið Dagur og Gunnar semja í réttu umhverfi. B lönduð miðborgarbyggð er fyrir-huguð á svokölluðum Kirkjusand-sreit, atvinnu- og íbúðarhúsnæði þar sem gert er ráð fyrir um 300 nýjum íbúðum, en í gær, fimmtudag, var undir- ritaður samningur milli Íslandsbanka og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu, skipulag og skiptingu reitsins. Um er að ræða heildarskipulag fyrir lóðirnar Kirkjusand 2, þar sem höfuðstöðvar Ís- landsbanka eru í dag og Borgartún 41, sem oft er kölluð Strætólóð. Vinna við nýtt deiliskipulag fyrir reit- inn er þegar hafin og verður það kynnt fyrir hagsmunaaðilum og almenningi á næstu vikum og mánuðum, samhliða formlegu auglýsingarferli. „Á Kirkjusandsreit er fyrirhuguð blönduð miðborgarbyggð. Reitnum verð- ur skipt upp í nokkrar lóðir og er bygg- ingarmagn í heild áætlað um 75 – 85 þúsund fermetrar. Um helmingur bygg- ingarmagns verður atvinnuhúsnæði, skrifstofur og þjónusta, en gert er ráð fyrir um 300 nýjum íbúðum á svæðinu. Reykjavíkurborg mun ráðstafa þremur íbúðarhúsalóðum. Allar núverandi bygg- ingar á reitnum, fyrir utan aðalskrif- stofuhúsnæði Íslandsbanka, munu víkja til að rýma fyrir uppbyggingu. Markmið með deiliskipulagi svæðis- ins er gera mannvænt og fallegt um- hverfi í samræmi við áherslur í Aðal- skipulagi Reykjavíkur. Göturými verða hönnuð jafnt fyrir alla ferðamáta og lögð verður áhersla á fjölbreytt græn svæði, nærþjónustu og gæði byggðar. Gert er ráð fyrir almenningstorgi og listaverk- um á svæðinu. Bílageymsla verður stað- sett undir torginu og mun hún nýtast íbúum utan skrifstofutíma í bankanum,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar. Íslandsbanki hyggst sameina alla höfuðstöðvastarfsemi sína á einum stað á Kirkjusandi. Til þess að það megi verða ætlar bankinn að byggja um 7.000 fermetra viðbyggingu við suðvesturenda núverandi skrifstofuhúsnæðis. Áætlað er að framkvæmdir við viðbyggingu hefjist í lok þessa árs og að þær taki um 2 ár. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  skipulag samstarf reykjavíkurBorgar og íslandsBanka Um 300 nýjar íbúðir og at- vinnuhúsnæði á Kirkjusandi Allar núverandi byggingar á Kirkjusandsreitnum, fyrir utan aðalskrifstofuhúsnæði Íslandsbanka, munu víkja til að rýma fyrir uppbyggingu. Um helmingur byggingar- magns verður atvinnu- húsnæði, skrifstofur og þjónusta, en gert er ráð fyrir um 300 nýjum íbúðum á svæðinu. Allar núverandi byggingar á reitnum, fyrir utan aðalskrifstofuhúsnæði Íslandsbanka, munu víkja til að rýma fyrir uppbygg- ingunni. Ljósmynd/Hari 5. febrúar kl. 9 -11 í aðalskrifstofum Póstsins, Stórhöfða 29. Á fundinum verður farið yfir hvernig hægt er að stofna netverslun með einföldum hætti, koma henni á framfæri og önnur tengd efni eins og hvernig tollamál virka og fleira. Fundurinn hentar vel einstaklingum sem hyggjast stofna netverslun og fyrirtækjum sem hafa velt fyrir sér að setja upp netverslun en ekki tekið skrefið til fulls. Fyrirlestrar Hvernig er hægt að stofna vefverslun með einföldum hætti? Garðar H. Eyjólfsson, smartmedia.is Hvernig á að koma vefverslunum á framfæri? Sigrún Ásta Einarsdóttir, Hvíta húsið Hinir ýmsu afhendingarmöguleikar Elvar Bjarki Helgason, Pósturinn Útflutningur – Einfalt mál? Halla Garðarsdóttir, Pósturinn Hvernig á að selja á Ebay? – Reynslusaga Gylfi Gylfason, Símabær PÓSTURINN BÝÐUR Á MORGUNVERÐARFUND UM NETVERSLUN Skráning á irisa@postur.is 8 fréttir Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.