Fréttatíminn - 30.01.2015, Síða 10
Vor 3 21. apríl - 3. maí
Sardinía & Korsíka
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Glæsileg eyjaferð til Sardiníu og Korsíku, þar sem við
ferðumst um stórbrotna náttúru með mikilli gróðursæld
milli lítilla krúttlegra þorpa. Gullinn sandur, sægrænt
haf og ilmur frá Macchia gróðri rammar inn ótrúlega
upplifun um þessar fögru eyjar.
Verð: 298.100 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
Þ að versta við leigumark-aðinn er óvissan. Maður veit ekkert hvenær manni
verður næst sagt upp,“ sagði einn
af viðmælendum Fréttatímans
aðspurður hvernig væri að vera
á leigumarkaðinum í Reykjavík
í dag. „Við erum með tvö börn á
leikskólaaldri sem bráðlega byrja í
skóla svo það skiptir okkur miklu
máli að þurfa ekki að flytja á næst-
unni. Við vorum í heilt ár að finna
þessa íbúð og höfum verið hér í
tvö ár, en nú hefur okkur verið
sagt upp leigunni og þurfum að
fara út innan þriggja mánaða.“
Viðmælandinn býr í 85 fermetra,
þriggja herbergja íbúð í Vesturbæ
Reykjavíkur með sambýlismanni
og tveimur börnum. Íbúðina leigja
þau á 190.000 krónur og segja það
vel sloppið.
Ekki mikill munur milli hverfa
Í könnun sem Capacent gerði fyrir
Reykjavíkurborg í nóvember á
síðasta ári kom fram að 56% að-
spurðra vildu búa í mið- og vest-
urbæ Reykjavíkur og að á næstu
þremur árum yrði mest eftirspurn
eftir tveggja herbergja íbúðum
á þessu svæði. Það er í takt við
stöðuna á markaðinum í dag en
langmesta eftirspurnin er eftir
litlum, eins til tveggja herbergja,
íbúðum á svæðinu vestan Kringlu-
mýrarbrautar. Meðalverð á því
svæði er samkvæmt Þjóðskrá um
115.000 krónur fyrir 40 fermetra.
Meðalverð í sveitarfélögum höfuð-
borgarsvæðisins fyrir þriggja her-
bergja íbúð er frá 1635 krónum í
Kópavogi og upp í 1990 krónur í
Reykjavík, sem þýðir að það kostar
að meðaltali um 170.000 að leigja
85 fermetra íbúð í vesturhluta
Reykjavíkur en tæpar 140.000
krónur í Kópavogi.
„Það fer virkilega í taugarnar
á mér þegar fólk spyr af hverju
ég flytji ekki bara í Breiðholt,“
segir annar viðmælandi. „Það er
skítt að geta ekki lengur búið þar
sem maður ólst upp en auk þess
er ekkert mikið ódýrara að leigja
í öðrum hverfum. Það er alls-
staðar dýrt að leigja. Þetta er bara
ömurlegt ástand og við sjáum
ekki hvernig við komumst úr því.
Það er ódýrara að borga af íbúðal-
ánum en leigu en við getum ekki
lagt krónu í sparnað því leigan er
svo há.“
Lítið af leiguíbúðum í byggingu
Lengi hefur legið ljóst fyrir að
brýn þörf er fyrir leiguíbúðir
á höfuðborgarsvæðinu. Viljinn
virðist vera til staðar hjá ráða-
mönnum, samningar hafa verið
undirritaðir en ekki hefur mörgu
verið hrint í framkvæmd. Reykja-
víkurborg gerir ráð fyrir byggingu
2500 til 3000 leigu- og búseturétt-
aríbúða á næstu árum í samstarfi
við einkaaðlila. Stærstur hluti
þeirra er hugsaður fyrir náms-
menn og aldraða, en þær eru enn á
skipulagsstigi. Á þessu ári stefnir
borgin á að byggja 1.900 íbúðir,
bæði til leigu og sölu. Nú þegar
hefur 16 reitum á vinsælasta svæði
borgarinnar, vestan Kringlumýrar-
brautar, verið úthlutað til ýmissa
einkaaðila. Þar af er einn reitur
fyrir fyrir búseturéttaríbúðir og
einn fyrir námsmannaíbúðir. Hús-
næðissamvinnufélagið Búseti
er langt komið með 203 búsetu-
réttaríbúðir við Smiðjuholt og
undibúningur er hafinn fyrir 60
námsmannaíbúðir sem borgin
byggir í samvinnu við Valsmenn
við Hlíðarenda. Í samningum
borgarinnar við byggingaraðila
hinna reitanna er gert ráð fyrir því
að 25% íbúðanna verði til útleigu en
ekki sölu.
Leigufélög
Fjöldi fólks á leigumarkaði hefur
aukist töluvert á milli ára. Hag-
stofan gerði síðast neyslurann-
sókn á útgjöldum heimilanna í
desember árið 2013 þar sem fram
kom að á árunum 2010 til 2012
voru 43% heimila í eigin húsnæði
en 27% í leiguhúsnæði. Í þessari
sömu könnun er árið 1995 nefnt
til samanburðar en þá voru 19% í
leiguhúsnæði. Til að mæta þörfum
þessa sístækkandi hóps rekur
velferðarráðuneytið Leigjendaað-
stoðina í samstarfi við Neytenda-
samtökin. Á þeim þremur árum
sem hún hefur verið starfandi hafa
borist yfir 6000 erindi varðandi
réttindi og skyldur í leigumálum.
Nokkrar leigumiðlanir eru nú
starfræktar á höfuðborgarsvæð-
inu, sem vinna að því að tryggja
öruggar leiguíbúðir með trygga
langtímaleigu. Má þar nefna Klett,
sjálfstætt starfandi leigufélag í
eigu Íbúðalánasjóðs, Almenna
leigufélagið og Gamma/Leigu-
félag Íslands. „Við erum á fullu að
leita á þessum leigumiðlunum sem
eru í boði en það er ekkert fram-
boð,“ segir annar viðmælandi. „Ef
eitthvað kemur inn þá fer það sam-
dægurs.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ömurlegt
ástand á
leigumarkaði
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 7,5%
síðastliðna 12 mánuði. Vesturbær Reykjavíkur er vinsælasta
hverfið en þar kostar að meðaltali 170.000 að leigja 85
fermetra íbúð. Borgin stefnir á að byggja 1900 íbúðir á árinu í
samstarfi við einkaaðila, 25% þeirra eiga að vera leiguíbúðir.
Viðmælendur Fréttatímans segja ástandið ömurlegt.
Leigumarkaðurinn
Um 27% á leigumarkaðinum 2012. Um 19% á leigumarkaði 1995.
7,5% hækkun á leiguverði síðastliðna 12 mánuði. 56% vilja búa í mið-og vesturbæ
Reykjavíkur. 140.000 krónur fyrir 85 fermetra íbúð í Kópavogi. 170.000
krónur fyrir 85 fermetra íbúð í Reykjavík. 1.900 íbúðir stefnir borgin á að byggja í
samvinnu við einkaaðila á árinu, 25% til leigu. 203 búseturéttaríbúðir í byggingu í
Smiðjuholti. 60 námsmannaíbúðir við Hlíðarenda, undirbúningur hafinn.
56% leigenda vilja búa í mið-
og vesturbæ Reykjavíkur.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
10 fréttir Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015