Fréttatíminn - 30.01.2015, Síða 18
LAGERSALA
20 – 80%
afsláttur
Yusuf Koca kom til Íslands árið 2001 til að safna peningum.
Hann missti vinnuna í hruninu og ákvað í kjölfarið að feta í
fótspor föður síns og hefja verslunarrekstur. Hann segir það
töluvert flóknara er reka verslun hér en í Tyrkalandi. Hann
rekur verslunina Istanbul Market með konu sinni, Neclu Koca,
og oftar en ekki eru synir þeirra, Kaan og Ali, á hlaupum um
búðina. Hjónin eru þakklát fyrir að þeir geti alist upp á þessu
friðsæla landi þar sem þeir læri fjölda tungumála og munu ekki
þurfa að gegna herskyldu.
B róðir pabba míns varð ást-fanginn af íslenskri konu og nú hafa þau verið gift í 25 ár.
Það var þess vegna sem mér datt
í hug að koma hingað og vinna,“
segir Yusuf Koca, eigandi Istanbul
Market í Ármúla, en hann hefur
verið búsettur hér á landi siðan árið
2001.
„Mig langaði til að ná að safna
peningum en það var ekki hægt í
Tyrklandi, þar rétt náði ég að lifa af
mánuðinn en aldrei safna neinu. Ég
fékk fína vinnu í byggingariðnað-
inum og fór svo alltaf til Tyrkalands
á sumrin í frí.“
Eitt sumarið giftust þau Necla.
„Við höfðum þekkst í mörg ár því
feður okkar eru vinir. Við fórum að
hittast og enduðum á því að giftast
sumarið 2006 og mánuði síðar var
ég flutt til Íslands. Það var mjög
mikið áfall fyrir mig í byrjun. Mér
var alltaf kalt,“ segir Necla og hlær.
Missti vinnuna í kreppunni
„Ég missti vinnuna í kreppunni og
sama ár fæddust tvíburarnir. Það
var mjög erfitt. Sérstaklega því
það er ekkert grín að eiga tvíbura,
fyrsta árið er svo erfitt. Við fengum
algjört sjokk í sónarnum,“ segir
Yusuf og þau hlæja bæði. „Systir
mín kom hingað til okkar í sex
mánuði og hjálpaði okkur mikið,“
segir Necla. „Ég var að vinna í
Bónus fyrstu tvö árin mín hér en
hætti þegar þeir fæddust. Í dag er
þetta ekkert mál, þeir hafa alltaf
félagsskap af hvor öðrum og eru
mjög góðir vinir. Ef annar er veikur
og kemst ekki skólann þá vill hinn
vera heima.“
Klukkan er að verða fimm og
það er rólegt í búðinni enda hríð
fyrir utan. Við sitjum öll saman á
uppstöfluðum tyrkneskum teppum
sem eru til sölu í versluninni. Tví-
burarnir þeirra, Kaan og Ali, vilja
sýna mér allt sem þeim þykir gott
að borða í búðinni. Súkkulaðihúðuð
svampbolla með bananafyllingu er
í algjöru uppáhaldi og þeir gefa mér
eina til að smakka.
Ólst upp við verslunarrekstur
„Ég var búinn að hugsa um þetta
lengi og svo ákváðum við að gera
þetta í ágúst 2013,“ segir Yusuf.
„Og það gekk bara strax mjög vel
þrátt fyrir að það sé oft flókið að
reka verslun á Íslandi. Það er mjög
erfitt að flytja fjölbreyttar mat-
vörur til Íslands því það er mikið af
tollum og erfitt að finna heildsala.
Ég panta mest frá heildsölum í Dan-
mörku og Þýskalandi og stundum
kemur eitthvað allt annað en ég
pantaði eða vitlaus fjöldi,“ segir
Yusuf og bendir mér á stafla af
einnota frauðplast ílátum undir mat
sem hann pantaði aldrei en komu
með síðustu sendingu.
„Innflutningur á mjólkur-og kjöt-
vörum er mikil vinna út af öllum
leyfunum. Þetta er mjög ólíkt því
sem ég þekki frá Tyrkalandi. Þar
koma heildsalarnir bara reglulega
í heimsókn og fylla í hillurnar hjá
manni ef eitthvað vantar,“ segir Yu-
suf en hann ólst upp við verslunar-
rekstur í verslun föður síns. Hann
byrjaði ungur að hjálpa til og hafði
alltaf gaman af og segist líklega
Flókið að
reka verslun
á Íslandi
Hjónin Yusuf og Necla Koca reka verslunina Istanbul Market í Ármúlanum. Sonum
þeirra Mehmet Kaan og Mert Ali finnst gaman að rétta foreldrunum hjálparhönd.
18 viðtal Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015