Fréttatíminn - 30.01.2015, Qupperneq 19
Það eru svo mikil
forréttindi að alast
hér upp. Hér er gott
skólakerfi, börnin
okkar læra tungu-
mál og eru örugg.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4-
24
46
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Vetrarríkið er þitt
Mercedes-Benz GLA sportjeppinn nýtur sín ekki síður í hálku og sköflum vetrarríkisins en á auðu
og þurru malbiki. Þar kemur 4MATIC aldrifskerfið sterkt inn og skilar þér þangað sem þú ætlar.
Mercedes-Benz GLA er búinn öllum nýjasta öryggis- og akstursbúnaði sem Mercedes-Benz
hefur kynnt undanfarið auk þess sem öll hönnun bílsins er til fyrirmyndar.
Komdu og reynsluaktu GLA-Class og upplifðu íslenskt vetrarríki á nýjan hátt
Mercedes-Benz GLA-Class 4MATIC kemur þér þangað sem þú vilt
GLA 200 CDI, 4MATIC aldrifsbúnaður, 7 þrepa
sjálfskipting, 136 hö., dráttargeta 1.800 kg.
Eyðsla frá 4,9 l/100 km í blönduðum akstri.
Verð frá 6.420.000 kr.
hafa endað með eigin búð vegna
þess. Hann bjóst samt aldrei við að
það yrði á Íslandi.
Selja allt sem þau sakna mest
„Við tókum eftir því að því að
eftir því sem úrvalið var meira
því fleiri fóru að koma og betur
fór að seljast. Svo við ákváðum að
stækka þegar okkur bauðst þetta
pláss hérna,“ segir Yusuf en þau
opnuðu nýja rýmið í síðustu viku.
„Í fyrstu voru þetta allar þær vörur
sem ég saknaði alltaf mest, svartar
ólífur, búlgur, feta-ostur, grísk
jógúrt, þurrkaðir ávextir, krydd og
tyrkneskt kaffi,“ segir Yusuf. „Og
svo bætum við smátt og smátt við.
Kúnnarnir okkar benda okkur líka
á hvað þá langar í.“
„Flestar vörurnar hér eru frá
Balkanskaganum og Tyrkalandi en
matarmenning okkar er mjög lík.
Mig langaði til að selja tyrkneskt
sætabrauð sem kallast Baklava hér
í versluninni, en það er svo flókið
því það þarf þá að merkja og setja
í sérstakar umbúðir,“ segir Necla
sem eldar smárétti fyrir tyrkneska
veitingahúsið Meze þegar hún er
ekki að vinna í búðinni. Yusuf segir
hana vera frábæran kokk. „Já, því
þú ert svo latur í eldhúsinu,“ segir
hún þá og bæði skellihlæja.
Feginn að synirnir þurfa ekki
að sinna herskyldu
„Við pöntuðum allar hillurnar frá
Tyrklandi því það var meira en
helmingi ódýrara en að kaupa þær
hér,“ segir Necla. „Svo gerðum við
bara allt sjálf, máluðum og settum
allt upp. Yusuf getur gert flest allt og
er mjög vanur því að vinna mikið.“
„Já ég er vanur því að vinna allt
að tólf tímum að er svo gott að vinna
inni að mér er alveg sama þó tím-
arnir séu stundum margir. Þegar
maður hefur unnið í útivinnu á Ís-
landi þá er maður bara feginn að
vera inni,“ segir hann og hlær.
„Það er svo gott að búa á Íslandi.
Við söknum auðvitað stundum fjöl-
skyldunnar en það er samt eiginlega
bara nóg að hitta þau einu sinni á
ári,“ segir Necla og þau hlæja bæði.
„Það eru svo mikil forréttindi að alast
hér upp. Hér er gott skólakerfi, börnin
okkar læra tungumál og eru örugg.“
„Í þorpinu mínu eru núna milljón
flóttamenn frá Sýrlandi, ástandið
er óöruggt og ég væri hræddur um
strákana mína þar,“ segir Yusuf. „Hér
er heldur enginn her og ég þakka fyrir
það að synir mínir þurfi ekki að sinna
herskyldu. Ég þurfti að vera í hernum
í tvö ár og það var bara tómt rugl. Í
byrjun hugsaði ég bara um að vera hér
til að safna peningum en í dag hugsa
ég ekkert um að safna. Í dag hugsa ég
aðallega um að veita börnunum mínum
gott líf, hér og nú,“ segir Yusuf.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Mehmet Kaan og Mert Ali á hlaupum
um búðina. Ljósmyndir/Hari
viðtal 19 Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015