Fréttatíminn - 30.01.2015, Side 20
E ggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, hélt í vikunni erindi á ráðstefnu sem bar yfirskrift
ina Árangur og ábyrg fyrirtæki:
Samfélagsábyrgð hjá íslenskum
fyrirtækjum. Það lá því beinast við
að spyrja hann út í samfélagslega
ábyrgð olíufélaga á Íslandi. „Stjórn
endur olíufélaga þurfa ekki síst að
hugsa um samfélagslega ábyrgð,“
segir Eggert. „Við erum í geira sem
tengist mengun, og þótt við séum
ekki sjálf að menga þá seljum við
eldsneyti sem á endanum mengar.
Þannig að það mæðir á okkur að
vega á móti. Hvernig vegur olíu
félag á móti mengunarhættu? Það
er margt sem við getum gert,“ segir
Eggert. „Við bjóðum upp á endur
nýjanlega orkugjafa og vorum
miklir tilraunamenn þegar við
byrjuðum með metan, til dæmis.
Fórum þar í samstarf með Sorpu og
Orkuveitunni,“ segir Eggert.
Heimahagarnir toga alltaf
Eggert er 51 árs, menntaður raf
magnsverkfræðingur, og hefur
verið forstjóri N1 í tvö og hálft ár.
Áður en hann gekk til liðs við N1
hafði hann unnið hjá HB Granda
en hann byrjaði sinn starfsferil 15
ára við það að dæla bensíni á bíla.
„Ég er gamall bensíntittur,“
segir Eggert. „Það var mín sumar
vinna þegar ég var 1519 ára að
dæla bensíni og ég var að telja það
saman um daginn að í þessu 600
manna félagi eru 12 starfsmenn
sem byrjuðu á undan mér,“ segir
Eggert. „Ég er þó tiltölulega nýr
í annarri umferð. Áður var ég hjá
HB Granda í ein 8 ár og þar áður
hjá Philips Electronics í Belgíu og
Kaliforníu. Það hefur loðað við mig
að fara reglulega í eitthvað nýtt
umhverfi og ég tek öllum skemmti
legum áskorunum með ánægju.
Það var mjög gaman í sjávarútveg
inum hjá HB Granda, og mér finnst
það heillandi atvinnugrein,“ segir
Eggert.
Er ekki alger vitleysa að flytja
heim frá Kaliforníu?
„Það er svolítið klikkað. Það fór
mjög vel um okkur í þessi fjögur
ár. Við vorum í San José í Kísil
dalnum og þar er vor allt árið. Ef
maður mundi búa til skilgreiningu
á því hvað maður vill hafa í borg
þá mundi maður enda með þennan
stað ofarlega á blaði,“ segir Eggert.
Togar samt alltaf í mann að
koma í heimahagana?
„Það er nefnilega svo magnað,“
segir Eggert. „Þegar við vorum í
Kaliforníu umgengumst við mikið
Íslendinga og það var gegnum
gangandi umræðuefni hvenær
fólk ætlaði að fara heim, alltaf. Í
dag er eiginlega allur hópurinn
kominn heim og við hittumst
reglulega á þakkargjörðarhátíðinni
og höldum hópinn. Þetta tengist
oftast börnunum, það togar í fólk
að ala börnin sín upp heima,“
segir Eggert. „Reyndar er dóttir
mín núna flutt til Bandaríkjanna
til að læra leiklist, svo þetta snýst
við, segir Eggert en dóttir hans
er söng og leikkonan Unnur Egg
erts sem hefur um árabil verið í
gervi Sollu stirðu í Latabæ og tók
þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins
við miklar vinsældir. Eggert er
kvæntur Jónínu Lýðsdóttur og auk
Unnar eiga þau synina Jakob og
Hallgrím.
Fær að troða upp með dóttur-
inni
Eggert er mikill tónlistaráhuga
maður og þykir lunkinn gítar
leikari. Hann segir gítaráhugann
hafa byrjað á unglingsárum og
Rokkstjörnu-
draumurinn
deyr aldrei
Eggert Benedikt Guðmundsson er söngelskur gítarsafnari sem
stýrir stærsta olíufyrirtæki landsins, N1. Hann segir starfið
mjög skemmtilegt og um leið mikla áskorun. Hann hefur fengið
að gutla á gítar með dóttur sinni, söngkonunni Unni Eggerts, og
segir drauminn um rokkstjörnuna aldrei deyja.
sé baktería sem ekki sé hægt að
venja sig af.
„Ég hef alltaf hlustað mikið á
músík,“ segir Eggert. „Ég hef þó
ekki verið nógu duglegur að hlusta
á nýja músík og dett alltaf í gömlu
klassíkina eins og Queen, Stones,
Pink Floyd og slíkt. Ég gutla á
gítarinn og svo syng ég í Karlakór
Reykjavíkur. Ég hef alltaf verið
viðloða þetta gítargutl en aldrei
af neinu viti, bara til þess að hafa
gaman af.“
Það er nú stutt lína þarna á milli
samt, ekki satt?
„Jú, jú, mér finnst gaman að
þessu og starfsfólkið leyfir manni
stundum að troða upp á samkom
um,“ segir Eggert. „Ég sagði ein
hvern tímann að ef maður ætlaði
að fá að spila á böllum eða slíku
þá væru tveir kostir í stöðunni.
Annaðhvort að vera nógu góður
til þess að fólk vilji koma að hlusta
á þig, eða komast í þá aðstöðu
að ráða því hverjir spila. Ég réð
ekki við fyrri kostinn og því hefur
seinni kosturinn nýst mér mjög
vel,“ segir Eggert brosandi.
„Þegar við vorum í Bandaríkj
unum stofnuðum við hljómsveitina
Flóttamenn, við Íslendingarnir.
Hún hefur aldrei verið lögð niður
þó við hittumst ekki oft,“ segir
Eggert. „Þetta er hobbí sem maður
losnar ekki við. Ég hef oft hætt að
spila golf, en aldrei hætt að spila
á gítar. Ég held að það sé ekki
hægt,“ segir Eggert. „Rokkstjörnu
draumurinn deyr aldrei, hann
sefur bara.“
„Ég hef fengið að koma fram
með Unni nokkrum sinnum með
kassagítarinn og það er mjög
skemmtilegt,“ segir Eggert.
Finnst þér þú vera að fara langt
út fyrir rammann, sem forstjóri
olíufélags, að koma svona fram á
sviði?
„Nei, þetta er voða þægilegt
fyrir mig,“ segir Eggert. „Hún er
svo sjóuð í þessu að ég þarf bara að
vera fyrir aftan og gutla eitthvað á
gítarinn,“ segir Eggert.
Eggert hefur einnig troðið upp
með hljómsveit fyrirtækisins, sem
ber heitið Heavy Metan. „Hún hef
ur að vísu verið í smá hléi undan
farið en það fer nú að koma að því
að við tökum upp þráðinn,“ segir
Eggert. „Það eru margir frambæri
legir hljóðfæraleikarar innanborðs
hjá N1.“
Fagnar verðlækkun
Olíufélögin eru oft á milli tann
anna hjá landsmönnum og margir
sem líta á stjórnendur þeirra sem
„vonda karlinn“ í atvinnulífinu.
Eggert segir þetta þó vera að
breytast, sérstaklega með aukinni
samfélagslegri ábyrgð félag
anna. „Það hafa allir skoðanir á
olíufélögunum, það mun aldrei
breytast. Fólki finnst bensín
alltaf of dýrt,“ segir Eggert. „Það
hefur verið þannig alla tíð. Það
kaupir enginn eldsneyti vegna
áhugans á því. Fólk kaupir elds
neyti til þess að geta keyrt bíl og
þarf að fara eitthvert. Við sjáum
núna, þegar eldsneytisverð hefur
lækkað, að það hefur jákvæð áhrif
út um allt samfélagið,“ segir Egg
ert. „Við fögnum þessari þróun
og finnum fyrir því að fólk áttar
sig á því að við erum að reyna að
skila þessum lækkunum hratt út
í verðlagið. Það hefur tekið tíma
að útskýra fyrir fólki hvernig elds
neytisverð er reiknað og af hverju
lækkanirnar skiluðu sér ekki enn
hraðar út í verðlag og slíkt, en við
teljum okkur hafa staðið okkur í
því, sem skilar sér í ánægðum við
skiptavinum.“
Hver er stærsta áskorun forstjóra
olíufélags?
„Þetta er býsna stór spurning,“
segir Eggert. „Við rekum félag
sem hefur mjög víðtækar teng
ingar um allt þjóðfélagið. Við
erum að þjóna fólki í öllu því sem
það tekur sér fyrir hendur. Bæði
í einka og fyritækjageiranum.
Okkar hvatningarorð eru „Höldum
samfélaginu á hreyfingu.“ Til að
standa við það þurfum við annars
vegar að tryggja góða þjónustu og
rétt vöruúrval svo að kúnnarnir
séu ánægðir og hins vegar að sá að
sjá til þess að starfsfólkið sé ánægt
og vel þjálfað,“ segir Eggert.
3G
Eggert á skemmtilegt safn gítara
og hljóðfæra og kaupir yfirleitt
nýtt hljóðfæri í þeim löndum sem
hann heimsækir. „Þetta er eitthvað
sem hefur þróast,“ segir Eggert.
„Ég safna yfirleitt ekki dóti í kring
um mig en tengt gítaráhuganum
hef ég sankað að mér hinum ýmsu
hljóðfærum. Ég keypti bouzouki á
Krít og Charango í Perú. Svo var
ég í Pétursborg með Karlakórnum
og þar náði ég mér í balalaiku og
ég hef náð að gutla á þetta allt,“
segir Eggert.
„Ég get ekki sagt að ég spili vel,
en það er gaman að fikta í þessu.
Ég hef lengi ætlað að kaupa uku
lele og fór tvisvar til Hawaii þegar
við bjuggum í Kaliforníu en klúðr
aði því í bæði skiptin að kaupa það.
Mér finnst gaman að kaupa hljóð
færin í sínum heimalöndum, svo
mér sýnist ég neyðast til þess að
fara aftur til Hawaii,“ segir Eggert.
„Annars eru áhugamálin einnig
golfið og göngurnar. Ég kalla þetta
stundum Gin þrjú. Golf, göngur
og gítarar,“ segir Eggert Benedikt
Guðmundsson forstjóri N1.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég get ekki
sagt að ég spili
vel, en það
er gaman að
fikta í þessu,
segir Eggert
Benedikt Guð-
mundsson,
forstjóri N1, um
gítaráhugann.
Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015