Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 34
Íslenska geitin
Kipptu liðunum í lag með Omega 3 liðamíni
• Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
• Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi
vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum.
• Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt
höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt.
SKJÓTARI EN
SKUGGINN
www.lidamin.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
U pphafsmaður hreyfingar-innar er lífsnautnamaðurinn Carlo Petrini, en hann starf-
aði sem blaðamaður og matargagn-
rýnandi áður en hann helgaði líf sitt
Slow Food. Í blaðaviðtölum rifjar
hann gjarnan upp æskuminningar úr
ítölsku sveitinni og þá aðallega úr eld-
húsi ömmu sinnar og mömmu. Þar
komu vinir og fjölskylda saman til að
elda alvöru mat úr héraðinu sem var
svo setið yfir langt fram eftir degi und-
ir spjalli og jafnvel gítarspili og söng.
Á Ítalíu hefur hjarta menningarinnar
alltaf slegið í eldhúsinu og skyndibita-
menningin kom seint til landsins. Þeg-
ar fyrsti McDonalds staður landsins
opnaði við spænsku tröppurnar í Róm
árið 1986 mætti Petrini þangað ásamt
matarelskandi föruneyti og eldaði
heimagert pasta við tröppurnar frægu
í mótmælaskyni. Slow Food hreyfing-
in varð til upp úr þessum sama hópi
fólks árið 1989 með það að markmiði
að vernda ítalska matararfleifð fyrir
útbreiðslu iðnaðarframleidds matar
og bragðlauss skyndibita.
Endurvakning bragðlaukanna
McDonalds er ekki bara dæmi um
vondan og næringarsnauðan mat að
mati Petrini, heldur lifandi sönnun
þess hversu firrtur nútímamaðurinn,
sem hefur ekki tíma fyrir heima-
gerða máltíð, er orðinn. Samtökin
vilja minna fólk á hversu gott það
er að borða góðan mat. Endurlífgun
bragðlaukanna ætti þó ekki bara að
kenna okkur að slaka á og njóta góðs
matar heldur gera okkur á sama tíma
meðvituð um framleiðsluaðferðir og
uppruna. Á bak við hugmyndafræði
Slow Food samtökin urðu til eftir að hópur Ítala, með ástríðu fyrir matarmenningu, mótmælti
opnun fyrsta McDonalds veitingahússins á Ítalíu. Hugmyndafræði samtakanna snýst ekki bara um
mat og bragð heldur miðar fyrst og fremst að því að breyta heiminum með því að breyta viðhorfi
fólks til matar. Í dag berjast samtökin fyrir því að góður og líffræðilega fjölbreyttur matur hverfi
ekki af yfirborði jarðar vegna offramboðs af fjöldaframleiddum og genabreyttum mat.
stefna slow food
n Að bjarga tegundum og afurðum
í útrýmingarhættu og vernda hefð-
bundnar matreiðslu-og framleiðslu
aðferðir.
n Að kenna fólki að njóta góðs, hreins
og sanngjarns matar. Góðum í þeim
skilningi að hann sé í senn bragðgóður
og næringarríkur, hreinn á þann hátt
að framleiðsla hans skaði náttúru og
dýr sem minnst og sanngjarn er hann
ef tekið er tillit til alls fólksins sem
stendur að framleiðslu hans.
n Að fagna matarhefðum og mat
hinna ýmsu landa með því að standa
fyrir mörkuðum og ráðstefnum.
n Auka meðvitund um náttúruvernd
og dýravelferð.
n Að tengja saman fólk sem hefur
ástríðu fyrir matarmenningu.
Íslenska landnámshænan. Slow-food
samtökin á Íslandi vinna nú að því að fá
íslensku landnámshænuna í Bragðörkina.
Auk þess er unnið að því að fá hverabrauð,
laufabrauð, rúllupylsu, magál, siginn fisk
og reyktan rauðmaga í verndarflokk Slow
Food.
samtakanna er þannig ekki bara sú
hugsun að matgæðingar geti fengið
sem ljúffengastan mat heldur sú að
með því að halda lífi í gömlum matar-
og framleiðsluhefðum höldum við lífi
í menningunni og fólkinu sem byggir
afkomu sína á þessum hefðum.
Að breyta heiminum með
nautnum
„Að breyta heiminum með nautnum“
var frá upphafi takmark Petrini og
það lítur út fyrir að samtökunum sé
að takast það á sinn hátt, hægt og ró-
lega. Þau horfa ekki til hraðra skyndi-
lausna því samkvæmt þeim eru þær
ekki til. Í dag starfa samtökin í 150
löndum og þeirra meginmarkmið er
að vernda líffræðilegan fjölbreyti-
leika, matarhefðir og framleiðsluað-
ferðir í útrýmingarhættu, auk þess
að upplýsa almenning. Þetta er gert
með alþjóðlegu samstarfi, með því að
styrkja litla framleiðendur og með því
að halda matarhátíðir víðsvegar um
heiminn þar sem fólk kemur saman
til að kynnast, fræðast og örva bragð-
laukana. Stærsta hátíðin er Salone
del Gusto & Terra Madre sem haldin
er annað hvert ár í Tórínó.
Slow Food á Íslandi
Í ár var þema hátíðarinnar í Tórínó
fjölskyldubúskapur, en árið 2014 var
yfirlýst ár fjölskyldubúskapar hjá
Matvæla-og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna, og það sem
kallast „Bragðörkin“. Í Bragðörk-
ina er safnað saman dýra- og jurta-
tegundum og afurðum víðsvegar
úr heiminum sem eru í útrýminga-
hættu eða þykja menningarlega
verðmætar. Til að komast um borð í
örkina verður afurðin að vera unnin
af smáframleiðenda, vera bundin
við ákveðið svæði eða land og að
vera gerð eftir hugmyndafræði Slow
Food. Um 2200 afurðir hafa nú kom-
ist um borð og þar má finna nokkr-
ar íslenskar afurðir; skyr, sólþurrk-
aðan saltfisk, salt, kæstan hákarl,
hjallaverkaðan harðfisk og hangi-
kjöt. Þar að auki er lúra og íslenska
geitin í örkinni. Dominique Plédel
Jónsson er yfir samtökunum á Ís-
landi og segir hún meginstarfsemi
hennar snúast í kringum Bragðörk-
ina. Nú síðast hafi íslenska geitin
komist um borð en unnið sé að því
að koma fleiru að, eins og land-
námshænunni, hverabrauði, laufa-
brauði, rúllupylsum, magál, signum
fiski og reyktum rauðmaga.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
MatarMenning slow food saMtökin
Að breyta heiminum, hægt
Í Bragðörkinni, sem er listi yfir
menningarlega mikilvægar tegund-
ir og afurðir sem sumar hverjar eru
í útrýmingahættu, eru sex íslenskar
afurðir og tvær dýrategundir.
n Hangikjöt, á gamla mátann.
n Hefðbundið skyr.
n Sólþurrkaður saltfiskur.
n Hjallaverkaður harðfiskur.
n Kæstur hákarl.
n Sjávarsalt, framleitt með jarðvarma.
n Íslenska geitin, elsti stofn Evrópu. Til
að viðhalda stofninum er mikilvægt að
koma afurðum geitarinnar á markað.
n Lúra, finnst aðeins í lóninu í Horna-
firði. Hefur samkvæmt gömlum
heimildum lengi verið búbót heima-
manna, oft hjallaþurrkuð, en er varla
veidd lengur.
að verða hægUr
1. Kauptu ferskt hráefni. Eldaðu það
og borðaðu.
2. Forðastu unnar matvörur. Borðaðu
alvöru mat.
3. Ræktaðu þinn eigin mat. Þó ekki sé
nema eina kryddjurt.
4. Reyndu að komast að sögunni á
bak við matinn þinn.
5. Kauptu úr heimabyggð og eftir
árstíðum.
6. Eldaðu og borðaðu með öðrum.
Það eykur gleði og víðsýni.
7. Taktu þátt í garðyrkju.
8. Taktu í höndina á þeim sem fæðir
þig.
9. Hittu fólkið sem ræktar matinn
þinn.
10. Lærðu að þekkja þínar matar-
hefðir.
Slow-food samtökin vilja opna augu
fólks fyrir því að matreiðsla snýst ekki
bara um mat og uppskriftir. Hún snýst
líka um bændur og landbúnað, eðlis-
fræði og efnafræði, hefðir og pólitík.
Með því að benda á sambandið milli
alls þessa vonast samtökin til að breyta
sambandi okkar við mat, fólk og um-
hverfi.
Rautt eggaldin. Fyrir 100 árum var þetta
mest ræktaða eggaldinið á Ítalíu en í dag
rækta það aðeins 15 bændur. Slow Food
berst fyirr líffræðilegum fjölbreytileika.
Carlo Petrini upphafsmaður Slow Food
samtakanna.
34 matur Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015