Fréttatíminn - 30.01.2015, Side 42
Þ að þarf ekki að rölta lengi eftir Strikinu til að heyra ís-lensku og sennilega er óhætt
að fullyrða að ávallt sitji að minnsta
kosti tveir fulltrúar þjóðarinnar við
borð í Nýhöfn. Á sama tíma heyrist
okkar ástkæra ylhýra miklu sjaldnar
á matsölustöðunum í Gamla stan,
á Skansen eða við verslanirnar á
Biblioteksgatan. Það er alla vega
reynsla þess sem hér skrifar eftir að
hafa búið um árabil í þessum tveim-
ur borgum. Það eitt og sér er kostur
í huga margra.
Benny, Vasaskipið og karde-
mommubollur
Tölurnar sýna líka að það hallar
verulega á hlut Stokkhólms þó Ice-
landair fljúgi þangað allt að tvisvar
á dag. Á síðasta ári voru íslenskir
hótelgestir í Kaupmannahöfn til
að mynda nærri fjórfalt fleiri en í
Stokkhólmi. Það eru því sennilega
margir hér á landi sem eiga eftir
að heimsækja Vasasafnið, fá sér
kardemommubollu með kaffinu,
rölta milli safna og skemmtigarða
á Djurgården eða sigla út í hinn
rómaða skerjagarð. Einhverjir
gætu líka viljað kynna sér Söder-
malm sem skríbentar Vogue segja
svalasta hverfi í Evrópu, Drottn-
ingholm þar sem konungshjónin
halda til eða bara fá sér pylsu við
Karlaplan í von um að Benny úr
Abba eigi leið framhjá með hvíta
hundinn sinn.
Sú sænska gefur eftir
Það eru því nægar ástæður til að
gefa Stokkhólmi tækifæri og ekki
skemmir fyrir að í dag fæst nærri
fimmtungi meira fyrir íslensku
krónurnar í Svíþjóð en í fyrra og
hittifyrra. Danska króna hefur
lækkað minna og samkvæmt laus-
legri könnun munar stundum allt að
tíund á verðinu í verslunum H&M í
heimalandinu og í Danmörku þegar
reiknað er yfir í íslenskar krónur.
Verðskrár hótela og veitingastaða
eru hins vegar á mjög svipuðu róli
höfuðborgunum tveimur.
42 ferðalög Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015
Nægar ástæður til að heimsækja höfuðborg svíÞjóðar
Kominn tími á að rétta hlut Stokkhólms
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
ÍÐ
/
S
ÍA
1
5-
00
82
Að lifa í jafnvægi
Holl fæða hjálpar okkur að skapa
stöðugleika í líkamanum og lífinu.
Ab vörurnar stuðla að lifandi jafnvægi.
Nú líka í1 lítraumbúðum
Íslenskir ferðamenn eru miklu fjölmennari í Kaupmannahöfn en
Stokkhólmi. Þörfin fyrir tilbreytingu og lækkandi gengi sænsku
krónunnar gæti hins vegar lokkað fleiri til „Feneyja norðursins“
á kostnað heimsóknar til gömlu höfuðborgarinnar.
Stundum er hægt að skauta við ráðhúsið í Stokkhólmi líkt og í Reykjavík.
Miðborg Stokkhólms er mjög glæsileg og sérstaklega húsin sem standa við vatnið
og upp á hæðunum.
Það er nauðsynlegt að koma við í Gamla
stan þegar farið er um Stokkhólm.
l yon er miðstöð matar og vín-gerðar í Frakklandi og ómót-stæðileg borg fyrir sælkera.
Það er nóg að sjá, skoða og upplifa
í borginni blómlegu hvort sem það
er vínsmökkun, rölt um sjarmer-
andi stræti, búðaráp, heimsókn á
safn eða notaleg kvöldstund í leik-
húsinu.
Urmull af glæsilegum og fallega
skreyttum byggingum bíða eftir
listunnendum og öðrum áhugasöm-
um í Lyon. Musée des Beaux - Arts
de Lyon er aðalsafn borgarinnar en
þar má sjá verk eftir heilan haug
af frægum listamönnum, svo sem
Rubens, Monet, Picasso og fleiri.
Áhugafólk um kvikmyndir má alls
ekki láta Institute Lumiére framhjá
sér fara, en safnið geymir sögu Lu-
miére bræðranna sem tóku upp
fyrstu kvikmynd sögunnar.
Matargerðin í Lyon þykir á sér-
lega háu stigi, jafnvel á franskan
mælikvarða. Orðstírinn á sér ef til
vill ekki síst rætur í þeirri staðreynd
að í grenndinni eru tvö af þekktustu
vínræktarhéruðum landsins, Beau-
jolais í norðri og Côtes du Rhône í
suðri. Fyrir þá sem hafa áhyggjur
af því að passa ekki í buxurnar við
heimkomu eftir heimsókn til þess-
arar miklu matarborgar þá er tilval-
ið að ferðast um Lyon á kanó.
Það er frábær valmöguleiki að
fljúga til Lyon og keyra um Evrópu
meðan á dvölinni stendur. Það eru
til dæmis 470 km Parísar og 280 km
til Torínó. WOW air flýgur til Lyon
frá 13. júní og út ágúst, tvisvar í viku
í allt sumar. Verð frá 24.999 kr.
Unnið í samstarfi við
WOW air
Ljúfa Lyon