Fréttatíminn - 30.01.2015, Side 46
46 matur & vín Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015
É g held að nú sé rétti tíminn til að kynna Íslendingum hvað handverksbjór (e. craft beer)
er og leyfa þeim að bragða á þeim
bestu í heimi,“ segir Mikkel Borg
Bjergsø, stofnandi og eigandi brugg-
hússins Mikkeller í Danmörku.
Ekki hugsaður fyrir ferðamenn
Mikkel opnar nýjan bar, Mikkeller
& Friends, í Reykjavík í lok næsta
mánaðar. Barinn verður á þriðju
hæð að Hverfisgötu 12, fyrir ofan
nafnlausa pítsustaðinn. Mikkeller &
Friends er samstarfsverkefni Mikk-
els, vina hans í danska brugghúsinu
To Øl og rekstraraðila Kex Hostels,
áðurnefnds pítsustaðar og Dills.
Tuttugu bjórdælur verða á staðnum
með veigum frá Mikkeller, To Øl og
fleiri míkró-brugghúsum.
„Við ætlum að koma með eitthvað
nýtt til Íslands. Við erum með bari í
nokkrum löndum og þekkjum það
vel að kynna þessa nýju menningu.
Handverks-bjórmenningin er frekar
ung á Íslandi en ég hef fylgst með
henni frá upphafi. Fyrst voru bara
bjórar eins og Lava en það hefur
mikið gerst síðustu ár,“ segir Mikkel.
Heldurðu að Íslendingar séu til-
búnir fyrir þetta?
„Já, algjörlega. Það eru allir til-
búnir, ef þetta er vel gert er mark-
aður fyrir svona bar. Fólk er forvitið
og ef það kemur einu sinni, þá kem-
ur það aftur.“
Ferðamönnum á Íslandi hefur
fjölgað mikið síðustu misseri og út-
lit er fyrir enn meiri fjölgun. Spilar
það ekki inn í?
„Nei, alls ekki. Þetta er ekki bar
fyrir túrista, hann er fyrir heima-
Bjór Mikkel Borg Bjergsø spenntur fyrir opnun Mikkeller & friends í reykjavík
Íslendingar
tilbúnir að
drekka besta
bjór í heimi
Danski farandbruggarinn Mikkel Borg Bjergsø opnar bar í
miðborg Reykjavíkur í næsta mánuði þar sem í boði verða 20
tegundir af besta handverksbjór heims á krana. Hann segir að
bjórmenningin hér hafi þróast í rétta átt og landsmenn séu
nú tilbúnir fyrir alvöru veigar. Mikkel vonast til að Björk verði
fastagestur á barnum og ætlar að stofna útibú frá hlaupa-
klúbbnum sínum hér á landi.
Brugga húsbjór Dill
Dönsku farandbruggararnir í To Øl
hafa bruggað nýjan húsbjór á veit-
ingastaðinn Dill. Bjórinn var kynntur
í vikunni. Annar eigandi To Øl, Tobias
Emil Jensen, kom hingað til lands af
þessu tilefni.
Dill-bjórinn er af Saison-gerð og
inniheldur meðal annars íslenskt
birki. „Ég er ekki hrifinn af sætum
bjórum, við viljum gera þurra bjóra.
Þessi Dill-bjór er því þurr en með smá
ávaxtakeim,“ segir Tobias.
„Við notum þýska humla og birkisíróp
úr íslensku birki. Bjórinn er núna
aðeins tíu daga gamall en ef fólk
kemur aftur á Dill eftir ár eða fimm
ár verður þessi bjór ennþá frábær,“
sagði Tobias á kynningu í vikunni.
„Humlarnir munu kannski dofna með
tímanum en þá verður bara meira
pláss fyrir birkið.“ -hdm
menn. Það er auðvitað gott að ferða-
mennirnir komi líka en þetta er hugs-
að fyrir heimamenn. Við opnuðum
til dæmis bar í Bangkok sem er alls
ekki hugsaður fyrir túrista. Ég væri
vonsvikinn ef ég kæmi þar inn og þar
væru bara vestrænir gestir. Mark-
miðið er að kynna handverksbjór (e.
craft beer) fyrir heimamönnum.“
Má búast við að þú bruggir hér á
landi? Eigum við von á „íslenskum“
Mikkeller-bjór?
„Ég er ekkert farinn að plana það
en ég býst við því, auðvitað. Ég mun
koma oftar til Íslands en áður svo það
verða tækifæri til þess. Við höfum
talað um það áður að brugga á Ís-
landi.“
Vill að Björk verði fastagestur
Mikkel er einhver þekktasti brugg-
ari heims, enda hefur hann sent frá
sér á milli 6-700 tegundir af bjór á að-
eins níu árum. Bjórar hans eru marg-
ir hverjir stórfurðulegir og hann er
óhræddur við að gera tilraunir. Mikk-
el tekur sjálfur ríkan þátt í undirbún-
ingnum fyrir opnun Mikkeller & Fri-
ends.
„Já, mér finnst mikilvægt að vera
með á öllum stigum uppbyggingar-
innar. Ég hef gert það með alla mína
bari. Þegar við opnum bar gerum við
það með samstarfsaðila á hverjum
stað. Þetta er ekki „franchise“. Við
þurfum einhvern til að reka barinn,
einhvern sem veit hvað Íslendingar
vilja og hvernig þeir hugsa.“
Mun þessum bar svipa til annarra
Mikkeller-bara?
„Barirnir eru alltaf mismunandi. Ef
þú ferð inn á Brew Dog-bar þá líta þeir
allir eins út en okkar gera það ekki.
Þeir vísa þó allir til hvers annars. En
tímarnir breytast líka. Það sem ég
vildi fyrir fimm árum finnst mér ekki
eins spennandi lengur.“
Talandi um hvað tíminn flýgur.
Þú byrjaðir með Mikkeller fyrir níu
árum. Hefðirðu getað séð fyrir þér
að reka bari í Reykjavík og Bangkok
þegar þú byrjaðir?
„Alls ekki. Þetta er frekar skrítið
allt saman en mjög skemmtilegt.
Mér finnst frábært að geta rekið bari
á stöðum sem ég elska að heimsækja.
Ég vel staðina eftir því. Ég setti það til
dæmis sem skilyrði að Kex-strákarnir
yrðu að redda því að Björk yrði fasta-
gestur hjá okkur,“ segir hann og hlær.
Hleypur af sér bjórinn
Mikkel kom fyrst til Íslands fyrir
fimm árum. „Konan mín vildi fara
hingað og við féllum alveg fyrir
landinu. Okkur fannst það einstak-
lega fallegt – eins og öllum.“
Hann ætlar að taka fjölskylduna
með sér hingað í næsta mánuði þeg-
ar Mikkeller & Friends verður opn-
aður. Verður það í fyrsta sinn sem
fjölskyldan fylgir honum á opnun
bars utan Danmerkur. En áður en
til þess kemur hefur Mikkel nóg
að gera heima fyrir. „Við erum líka
að undirbúa opnun bruggpöbbs í
Kaupmannahöfn í mars. Þar verður
bara bruggað fyrir staðinn en, já,
það gæti breytt eitthvað verklaginu
hjá okkur einn daginn,“ segir hann
spurður um hvort hann ætli sér að
fara að brugga í eigin brugghúsi –
öfugt við það sem hefur verið aðals-
merki hans; að leigja aðstöðu um
allan heim fyrir framleiðslu sína.
Hvernig er líf bruggarans, er
þetta ekki bölvaður ólifnaður?
„Jú, ég drekk auðvitað mikið því
ég verð að smakka marga drykki.
En ég verð hins vegar ekki oft full-
ur. Vandamál mitt er hins vegar
að ég elska fleira en bjór. Ég elska
líka mat og vín. Ég er því dugleg-
ur að hlaupa, ég verð bara að gera
það. Stefnan er að stofna útibú frá
hlaupaklúbbnum mínum á Íslandi.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Mikkel Borg Bjergsø stofnaði Mikkeller fyrir níu árum í Kaupmannahöfn. Síðan hefur hann bruggað á milli 6-700 tegundir af
bjór og opnað bari í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, San Francisco og Bangkok. Næst á dagskrá er Reykjavík og verður Mikkeller &
Friends opnaður 27. febrúar.
Tobias Emil Jensen kynnti nýja
Dill-bjórinn í vikunni. Ljósmynd/Hari