Fréttatíminn - 08.02.2013, Side 2
Bíttu í Þorragráðaostinn, áður
en hann bítur í þig. Sterkur,
bragðmikill og sómir sér vel á
þorrahlaðborðinu.
Þorragráðaosturinn er
konungur gráðaostanna
og fæst núna tímabundið
í verslunum.
Þorragráðaostur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Milljarður rís alþjóðleg bylting
e inn sjúklingur af fjórtán sem liggja á blóðlækningadeild Landspítalans hefur verið greindur með spítala-
bakteríu sem er ónæm fyrir flestum sýkla-
lyfjum og hefur deildinni verið lokað. Hinir
13 sjúklingarnir hafa einnig gengið undir
rannsókn en ekki er gert ráð fyrir að niður-
stöður úr þeim liggi fyrir fyrr en á mánu-
dag. Samkvæmt heimildum Fréttatímans
hefur sjúklingurinn verið veikur af þessari
bakteríu í rúmar tvær vikur.
Bakterían nefnist VRE (Vancomycin-res-
istant Enterococcus) en í fyrradag sýndu
niðurstöður rannsókna fram á að þessi til-
tekni stofn VRE er næmur fyrir einni teg-
und sýklalyfja og hefur meðferð með þeim
því hafist. Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir
á blóðsjúkdómadeild, er bjartsýn á að tak-
ast muni að ráða niðurlögum bakteríunnar.
Að sögn Björns Zoëga, forstjóra Land-
spítalans, koma spítalasýkingar sjaldnar
upp hér á landi en á spítölum erlendis en
þegar þær greinist sé gripið til ákveðinna
viðbragða: deildinni er lokað og sjúklingar
settir í einangrun, allt er þrifið og tekin
yfirborðssýni af deildinni og einnig frá
öllum sjúklingum.
Bakterían er ekki skaðleg heilbrigðu
fólki, einungis fólki með bælt ónæmis-
kerfi og er á miklum sýklalyfjum, líkt og
þeim sjúklingum sem liggja á blóðlækn-
ingadeild og eru í meðferð við sjúkdómum
á borð við hvítblæði og eitlakrabbamein.
„Sýking af völdum þessarar tegundar
bakteríu hefur komið upp tvisvar á deild-
um á Landspítalanum en okkur tókst að
ná tökum á henni svo hún breiddist ekki
út,“ segir Hlíf.
Björn segir að Landspítalinn hafi ekki
nákvæmar tölur yfir fjölda sjúklinga sem
veikst hafa af völdum spítalasýkinga und-
anfarin ár þar sem erfitt sé oft að segja
til um hvort sýkingin hafi átt sér stað á
spítalanum eða hvort sjúklingarnir hafi
fengið þær annars staðar frá og komið
með þá inn á spítalann. Síðastliðið haust
greindust spítalasýkingar í rúmum 6 af
hverjum 100 sjúklingum en á öðrum há-
skólasjúkrahúsum á Norðurlöndunum er
tíðnin oft í kringum 9-10 prósent, að sögn
Björns.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
HeilbrigðisMál blóðlækningadeild lokuð vegna vre spítalasýkingar
Einn með alvarlega
spítalasýkingu
Eitt af þeim úrræðum sem beita má til að draga enn frekar úr spítalasýkingum er að fjölga einbýlum og salernum þannig að
einungis sé einn sjúklingur um hvert salerni en í nýjum spítala er gert ráð fyrir því.
Einn sjúklingur á blóðsjúkdómadeild Landspítalans er nú í meðhöndlun vegna alvarlegrar spítala-
bakteríu sem upp er komin á deildinni. 13 aðrir sjúklingar bíða niðurstaðna rannsókna en þar til
þær liggja fyrir, á mánudag, verður deildin lokuð.
Sýking af
völdum þess-
arar tegundar
bakteríu
hefur komið
upp tvisvar
á deildum á
Landspítal-
anum en
okkur tókst
að ná tökum
á henni svo
hún breiddist
ekki út.
Eftirfarandi flugfélög
munu annast áætlunar-
og leiguflug á Keflavík-
urflugvelli í sumar:
Air Berlin
Air Greenland
Austrian Airlines
Avion Express (WOW Air)
Delta Air Lines
Deutsche Lufthansa
easyJet
Edelweiss Air
Germanwings
Icelandair
Niki Luftfahrt
Norwegian Air Shuttle
Primera Air
Scandinavian Airlines System
Thomas Cook Airlines
Transavia.com
FerðaMál FraMkvæMdir í leiFsstöð vegna áFraMHaldandi Fjölgunar Farþega
Sextán flugfélög fljúga hingað næsta sumar
Alls munu 16 flugfélög annast áætlunar- og leiguflug á Keflavíkurflugvelli næsta sumar og er gert ráð fyrir 10 prósenta
aukningu í umsvifum á flugvellinum milli ára. Farþegafjöldi í janúar jókst um rúm 20 prósent enda eru tvöfalt fleiri
flugfélög með starfsemi í vetraráætlun til og frá landinu en í fyrra, alls sex talsins.
Á komandi sumri er ráðgert að
afgreiða 32 farþegaflug (komur
og brottfarir) um háannatíma að
morgni og síðdegis flesta daga
vikunnar en allmargar flugvélar
eru jafnframt afgreiddar um
hádegisbil og miðnætti, að sögn
Friðþórs Eydal, upplýsingafull-
trúa Isavia, rekstrarfélags flug-
valla á Íslandi. Búist er við að um
15.500 farþegar fari um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar daglega þegar
mest lætur í júní, júlí og ágúst.
Ráðist verður í nokkrar skipu-
lagsbreytingar og endurbætur
á flugstöðinni til þess að anna
þessari miklu umferð og auka
þægindi flugfarþega. Í norður-
byggingu verður tekið í notkun
nýtt brottfararhlið fyrir farþega
sem fluttir verða með rútum
til og frá flugvélum og umtals-
verðar breytingar
verða einnig gerðar
í suðurbyggingu, meðal annars
á svæðum sem áður voru ekki
hluti af almennu farþegarúmi.
Sjálfsinnritunarstöðvum
verður fjölgað enn til muna, en
þær hafa sannað gildi sitt og flýta
afgreiðslu við innritun, og tekin
verður upp sjálfvirk farþegaaf-
greiðsla við tvö brottfararhlið til
hægðarauka
og til þess að draga úr biðraða-
myndun. Þá er einnig unnið að
uppsetningu á þráðlausu net-
kerfi sem nær til allra farþega-
svæða í flugstöðinni og verður
notkun þess gjaldfrí.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Þann 14. febrúar kalla UN Women, V–dags-
samtökin og Lunch Beat eftir þátttöku
Íslendinga í alheimsbyltingu gegn kynbundnu
ofbeldi. Þá mun koma saman einn milljarður
kvenna, karla og barna um allan heim til þess
að dansa til stuðnings konum og stúlkum
og krefjast þess að kynbundið ofbeldi heyri
sögunni til.
„Við á Íslandi erum kannski ekki stór hluti
af milljarði en við getum látið fyrir okkur
fara. Tökum þátt í því að láta jörðina hristast
undan samtakamætti okkar,“ segir í tilkynn-
ingu samtakanna.
Atburðurinn verður í Hörpu þann 14.
febrúar og hefst byltingin stundvíslega
klukkan 12.15.
Milljarður rís er alþjóðleg bylting með Eve
Ensler í fararbroddi. Íslendingum gefst kostur
á að vera hluti af því þegar milljarður karla,
kvenna og barna kemur og dansar í sam-
einingu gegn kynbundnu ofbeldi. Markmiðið
er að ná saman einum milljarði jarðarbúa
til þess að taka þátt og skapa heim þar sem
ofbeldi þrífst ekki.
DJ Margeir mun sjá til að dansinn duni.
-mlþ
Dansað gegn kynbundnu ofbeldi
Hjálparsamtök
sauma öskupoka
Hjálparfélagið Sól í Tógó stend-
ur fyrir svokallaðri öskupoka-
saumastund í Iðukaffi í Zimsen-
húsinu á sunnudaginn. Gestum
og gangandi er boðið að setjast
við sauma og aðstoða við fram-
leiðslu á öskupokum sem seldir
verða til styrktar félaginu, sem
aðstoðar við rekstur á heimili
fyrir munaðarlaus börn í Tógó í
Afríku. Tóta og trúðurinn Gjóla
leiðbeina börnum og foreldrum
við saumaskapinn. Efni, skæri,
nál, tvinni og saumavélar eru
á staðnum en saumafólki er
velkomið að koma með perlur,
ösku eða ljóð í pokann. -sda
Viðurkenning vegna Skóla-
vörðustígs
Eggert Jóhannsson
feldskeri hlaut í
gær Freyjusómann,
hvatningarverðlaun
Reykjavíkurborgar,
fyrir ferskan andblæ
í ferðamannaverslun,
fyrir mikla félagslega
virkni í því að byggja
Skólavörðustíginn
upp sem skemmti-
lega og aðlaðandi
verslunargötu. Njarðarskjöldinn, sem ætlað er að
hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu fyrir
ferðamenn í Reykjavík, hlaut Sigurður Guðmundsson
verslunarmaður sem rekur fimm ferðamannaverslanir
í Reykjavík og þrjár á Akureyri. -sda
Yfirlýsing frá
samtökunum:
Við neitum að búa í heimi,
Þar sem nauðgunarmenning er
normið.
Þar sem konum er kennt að
hafa varann á sér þegar þær
eru einar úti.
Þar sem ungar stúlkur eru
þving aðar og seldar í hjónabönd.
Þar sem konur eru útskúfaðar
úr samfélaginu ef brotið er á
þeim kynferðislega.
Þar sem konur eru myrtar ef
þær eru taldar hafa kastað rýrð
á heiður fjölskyldunnar.
Þar sem konum er refsað fyrir
að kæra kynferðisbrot.
Þar sem refsileysi ríkir þegar
konur eru niðurlægðar í net-
heimum.
2 fréttir Helgin 8.-10. febrúar 2013