Fréttatíminn - 08.02.2013, Page 4
FYRSTA SVANSVOTTAÐA
VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is s. 599 6660
FYRSTA
SVANSVOTTAÐA
VEITINGAHÚSIÐ
Á ÍSLANDI
10 ár í að sauma 80 metra Njálurefil
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
S 5-13 m/S en hveSSSir með Sv-Ströndinni.
Slydda í fyrStu annarS rigning hlýnandi.
höfuðborgarSvæðið: Suðlæg átt, 5-10 og
rigning. Hlýnandi og Hiti 2 til 5 Stig.
a og Sa-átt og úrkoma Sa-landS en
hveSSir. þurrt na-til. hiti 0 til 5 Stig.
höfuðborgarSvæði : SuðauStan 5-10 m/S
og rigning SíðdegiS, milt í veðri.
Sa 3-10 m/S og rigning S-til. dálitlar Skúrir eða
Slydduél. kólnar og fryStir víða um kvöldið.
höfuðborgarSvæðið: SuðauStan 3-10 og Skúrir
eða Slydduél eftir Hádegi. kólnandi.
hitastigið á uppleið
Suðlægar áttir og vætusamt á Suður og Suð-
austur landi um helgina, og einnig vestantil á
morgun en þurrt lengst af á norðausturlandi.
Hitastigið er á uppleið, það hlýnar talsvert með
skilunum og hiti víðast vel yfir frostmarki, en
kólnar svo smám saman á sunnudag. Suðægar
áttir og rigning um mest allt
land sums staðar slydda í
fyrstu. Þurrt á norðaustur-
landi fram á sunnudag.
Hlýnandi veður og hiti
vel yfir frostmarki
á láglendi, en um
frostmark á fjöllum.
3
1 0
0
4
4
3 4 4
5
2
1 3 3
3
elín björk Jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
I ngólfur V. Gíslason lektor hélt erindi um þróun síðustu ára í fæðingarorlofstöku foreldra, í háskólanum í gær. Þar
fór hann yfir tíðni í fæðingarorlofstöku
foreldra. Athygli vekur að allt að 92% karla
nýta nú rétt sinn að einhverj
um hluta og hefur sú tala
hækkað mikið á síðustu 10
árum, en sem dæmi má nefna
að á árinu 2000 voru þeir
aðeins um 30% sem orlofið
nýttu. Ingólfur segir jafn
framt þá feður sem ekki
nýta neinn rétt yfirleitt
vera þá sem ekki eru
í neinum tengslum
við móður utan þess
að vera líffræðilegir
feður barns.
Talsverður munur
er ennþá á kynjunum
og fjölda daga sem
þau nýta af orlofinu en
það er að sögn Ingólfs
vegna þess að kon
ur nýta í lang
flestum tilfellum sameiginlegan rétt for
eldra. Breytingar á fæðingarorlofi gengu
í gegn um áramót þar sem sameiginlegur
tími var styttur en orlofið til beggja for
eldra lengt á móti. Ingólfur segir þær
jákvæðar og þær muni leiða
til jöfnunar.
„Ég hugsa og spái því að
breytingarnar muni leiða
til töluverðrar jöfnunar. Það
verður ekki alveg jafnt en
hefur jákvæð áhrif. Ég sé því
ekkert neikvætt og tel þetta
gott fyrir alla. Þetta mun brúa
bilið á milli orlofsins og leik
skóla það er að segja ef for
eldrar nýta orlofið á drýgstan
hátt og taka það ekki saman.
Þá erum við komin nálægt
því að brúa bilið milli orlofs
og leikskóla og það skiptir
gríðarlega miklu máli fyrir
kynjajafnrétti á vinnumark
aði.“ Ingólfur segir mun
hærra hlutfall kvenna en
karla breyta þátttöku sinni á
vinnumarkaði, til dæmis með því að skerða
vinnuprósentu, til þess að mæta umhyggju
þörf fjölskyldunnar. Breytingarnar komi til
með að jafna þetta hlutfall.
maría lilja þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
vilborg arna gissurardóttir pólfari saumaði fyrsta sporið
í njálurefilinn.
Síðasta laugardag
hófst í Sögusetrinu á
Hvolsvelli sauma-
skapur sem mun vara
næstu tíu ár. ráðgert
er að sauma Brennu-
njálssögu á svokall-
aðan refil sem verður
80 metra langur. for-
sprakkar verkefnisins
eru þær gunnhildur
kristjánsdóttir og
Christina Bengtsson
en þær fengu til liðs
við sig listakonuna
kristínu rögnu gunn-
arsdóttur sem teiknar
myndirnar. verkefnið
er gert að erlendri
fyrirmynd en hinn
frægi Bayeux refill er
þúsund ára gamall
og var saumaður í
normandí.
20 milljónir í arðgreiðslur
Stjórn nýherja
leggur til að
greiddar verði
0,05 krónur á
hlut í arð til hlut-
hafa á árinu 2013, eða 20 milljónir króna,
að því er fram kemur í tilkynningu til kaup-
hallarinnar. Heildarhagnaður af rekstri
nýherja á árinu 2012 nam 111 milljónum
króna en eBitda nam 481 milljón króna.
nýherji hf. móðurfélag, tm Software og
dansupport a/S skila ágætri afkomu.
Hins vegar varð tap á rekstri applicon
fyrirtækjanna á árinu. tekjur af eigin hug-
búnaðarþróun námu um 750 milljónum
króna á árinu og afkoma var góð á því
sviði. virðisrýrnun viðskiptavildar nam 92
milljónum króna og tekjufærð skatteign
210 milljónum króna. „afkoma af rekstri
nýherja á innlendum markaði var ágæt
og samkvæmt áætlunum á árinu 2012.
áhersla hefur verið á þróun nýrra lausna
fyrir viðskiptavini, bæði á sviði hug-
búnaðar og tækniþjónustu, segir Þórður
Sverrisson, forstjóri nýherja. - jh
drengirnir lausir
drengirnir tveir sem brutust
inn til manns á Skaga-
strönd um síðustu
helgi hafa verið látnir
lausir. Þeir börðu
manninn illa en hann
er á batavegi. Piltarnir
hafa játað en lögreglan á
akureyri rannsakar tvö kynferðisbrot sem
maðurinn er grunaður um hafa framið á
barnabörnum sínum. Búið er að senda eitt
mál til ríkissaksóknara sem á eftir að taka
afstöðu til þess hvort ákæra eigi í málinu.
annar drengjanna sem réðst á manninn
er barnabarn hans en grunur leikur á að
maðurinn hafi brotið gegn fleiri drengjum,
þó ekki þeim sem réðust á hann um
síðustu helgi.
Breytingar á fæðingarorlofi leiða til frekari jöfnuðar í umönnun barna eftir fæðingu. Sameiginlegur réttur hefur verið rýmk-
aður, en hingað til hafa mæður frekar nýtt þann tíma.
FæðIngarorloF BreytIngar tóku gIldI um áramót
92% karla
nýta rétt sinn
í einhverjum
mæli.
Konur eru helmingi
lengur í fæðingarorlofi
„Hluti af þörfum barns er að alast upp í samfélagi þar sem ekki viðgengst að fólki sé mismunað
sökum kyns en það má einmitt færa fyrir því rök að launamisrétti megi rekja til orlofstöku
móður,“ segir ingólfur v. gíslason, lektor í félagsfræði á sviði karlafræða, fæðingarorlofs og jafn-
réttismála við félagsvísindadeild Háskóla íslands.
feður mæður
2001 39 186
2002 68 187
2003 97 183
2004 96 182
2005 101 187
2006 100 185
2007 101 181
2008 103 178
2009 99 178 *
2010 90 179 *
*Bráðabirgðatölur þar sem
tímabili til orlofstöku er ekki
lokið. Foreldrar höfðu 36
mánuði til að nýta orlofið. Nú
hefur því þó verið breytt í 24.
meðalfJöldi
daga í orlofi
ingólfur v. gíslason, lektor
í félagsfræði á sviði
karlafræða, fæðingaror-
lofs og jafnréttismála
við félagsvísindadeild
Háskóla íslands.
4 fréttir Helgin 8.-10. febrúar 2013