Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.02.2013, Síða 10

Fréttatíminn - 08.02.2013, Síða 10
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prent- aður í 82.000 eintökum í Landsprenti. R Lýsa má viðbrögðum stuðningsmanna Samfylk- ingarinnar sem létti eftir að nýr formaður tók við af Jóhönnu Sigurðardóttur. Flokksformennska hennar kom til við sérstakar aðstæður. Á þeim tíma átti flokkurinn fáa kosti aðra í erfiðri stöðu en valdatími hennar, hvort heldur er sem flokksformaður eða for- sætisráðherra, hefur að mörgu leyti einkennst af harðlínustefnu og takmörkuðum sáttavilja. Stríðsyfir- lýsingar, óbilgirni og átök hafa þreytt þjóðina. Það má ráða af langvarandi óvinsældum ríkis- stjórnarinnar og fylgishruni flokkanna sem að henni standa. Skoðanakann- anir sem birtar voru á meðan lands- fundur Samfylkingarinnar stóð sýndu fylgi flokksins í sögulegu lágmarki. Sigur Árna Páls Árnasonar í for- mannskosningunni var afgerandi. Guðbjartur Hannesson velferðarráð- herra, mótframbjóðandi hans, galt þess að vera talinn standa nærri Jóhönnu. Að sama skapi naut Árni Páll þess að Jóhanna hafði rekið hann úr ríkisstjórn- inni. Það veitti honum fjarlægð frá óvinsælli ríkis- stjórn. Niðurstaða formannskosningarinnar sýndi að afgerandi meirihluti samfylkingarfólks vill breytta ásýnd flokksforystunnar. Ekki stríð eða yfirgang heldur samningalipurð. Ekki útilokun heldur sam- vinnu. Svo vitnað sé til fleygra orða Jóhönnu Sigurð- ardóttur sjálfrar, þá er hennar tími liðinn. Það mat á liðnum tíma kom glögglega í ljós í ræðu Árna Páls Árnasonar. Þótt hann þakkaði forvera sínum störf í þágu flokks og þjóðar sagði hann skor- inort skilið við stíl Jóhönnu Sigurðardóttur. Árni Páll hafnaði stríðsyfirlýsingu Jóhönnu í setningarræðu sama landsfundar. „Við erum á tímamótum og það er erfitt að sjá að frekari stríðsrekstur verði Samfylking- unni til árangurs eða virðingarauka. Við höfum háð of mörg stríð án árangurs þetta kjörtímabil og við verðum að læra af þeirri reynslu.“ Í stefnuræðu sinni sagði hinn nýi formaður að enginn vildi halda áfram ónýtri stjórnmálahefð. Öll þráum við nýja sýn fram á veginn. „Á heimilinu verðum við að hafa frið. Frið til að hugsa, frið til að vinna, frið til að vera við sjálf. Við getum verið ósammála um aðferðir og leiðir, en við ræðum okkur að niðurstöðu. Hugmyndafræðilegar borgarastyrjaldir þar sem krafist er skilyrðislausrar hlýðni og að menn hlaupi hratt ofan í skotgrafirnar þegar kallið kemur, eiga ekki við á þjóðarheimili jafn- aðarmanna.“ Með þessum orðum sagði nýr formaður Samfylk- ingarinnar afdráttarlaust skilið við stjórnunarstíl for- verans. Að þessu sögðu hefði mátt ætla að hinn hann stigi skrefið til fulls – en Jóhanna Sigurðardóttir hefur sett það skýrt fram að það sem eftir lifir kjör- tímabilsins ætli hún, í miklum ágreiningi, að þvinga í gegn stórmál sem enn eru ófrágengin og þurfa meiri tíma og almennari sátt, innan þings og utan. Árni Páll minnti á það strax að það væri í valdi for- manns að leggja fram tillögu fyrir þingflokkinn um ráðherraskipan. Því hefði mátt ætla að hann legði til að hann tæki sæti Jóhönnu í ríkisstjórninni, fyrst hún tók ekki þá ákvörðun sjálf að gefa Árna Páli það rými sem meirihluti flokksmanna kallar eftir, að leiða flokkinn í einu og öllu. Með þeirri breytingu hefði nýr formaður getað vikið frá stríðsyfirlýsingum og fetað sig í átt að friðsamari og farsælli stefnu í þjóðarþágu. Árni Páll lýsti því hins vegar yfir á miðvikudag- inn, eftir mat á stöðunni, að hann gerði ekki tillögu um breytingu á ríkisstjórn. Þótt hann bætti því við að hann bæri, sem pólitískur talsmaður flokksins, ábyrgð á starfi hans í ríkisstjórn veikir þessi ákvörð- un stöðu hins nýkjörna formans þegar kemur að starfi þings og ríkisstjórnar fram að kosningum. Samkvæmt orðum formannsins hefði skotgrafa- hernaðurinn nú átt að heyra til liðinni tíð því það er rétt að menn eiga að ræða sig til niðurstöðu, hvort heldur er hann eða forystumenn annarra flokka. Það verður erfitt fyrir nýjan formann að breyta stefnunni úr aftursætinu þegar bílstjórinn situr áfram í sæti sínu og beygir í aðra átt en formaðurinn kýs. Skýr krafa meirihluta samfylkingarfólks um breyttar áherslur og stjórnunarstíl Breytingakröfunni ekki fylgt eftir Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is En að skila bara lyklunum? Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að lýsa yfir gjald- þroti á næsta ári. Alþingis- maðurinn Lilja Mósesdóttir ræddi fjármál sín við Financial Times og segist sjá fram á gjaldþrot. Í bláum skugga Ég reyki tvisvar af einhverri jónu og það mælist í mér fimm vikum seinna. Sjómaður sem missti plássið þar sem hann féll á lyfjaprófi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum sagði farir sínar ekki sléttar í DV. Hennar vitjunartími ekki kominn Niðurstaða mín er sú að gera ekki við þessar að- stæður tillögu um breytingu á ríkisstjórn. Fáar vikur eru eftir til kosninga... Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og nýr stefnumótandi flokksins, ætlar ekki að hrófla við Jóhönnu Sigurðardóttur á endasprettinum. Vont er þeirra réttlæti Við lýsum yfir vantrausti á Hæstarétt Íslands. Við höfum fengið nóg. Femíníska vefritið Knúz.is fordæmir á niðurstöðu að ruddaleg innrás í helgustu vé konu hafi ekki talist nauðgun. Öfgaliðið á netinu Gaman væri að þið ágætu kommenta- skrifarar myndu nú hlusta á allt viðtalið áður en þið látið gamminn geisa, svona til tilbreytingar. Lögmaðurinn Brynjar Níelsson tók afstöðu með hæstarétti í hinum umdeilda líkamsárásardómi og uppskar miklar reiði í netheimum og víðar.  Vikan sem VaR EcoFuel-tæknin nýtir bensín og metangas og sparar þannig allt að 46% af eldsneytis- kostnaði. Metanbílar eru umhverfisvænir og bera því engin aðflutningsgjöld. Þeir sem kaupa verksmiðjuframleiddan Volkswagen Passat metanbíl í febrúar fá frítt metangas í eitt ár*. Að auki fá eigendur Passat EcoFuel frítt í stæði í Reykjavík ásamt því að njóta hagstæðari kjara á lánum hjá fjármögnunarfyrirtækjum. Passat Variant kostar aðeins frá 4.690.000 kr. Passat Variant EcoFuel Comfortline Plus, 150 hestafla, beinskiptur. www.volkswagen.is Lækkaðu eldsneytiskostnaðinn um allt að 46% Metan 9.843 kr. Dísil 13.801 kr. Bensín 18.242 kr. **Miðast við eldsneytisverð eins og skráð er hjá Olís og Metan 31. janúar 2013. Eldsneytiskostnaður Volkswagen Passat á hverja 1.000 km** Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði *Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu var meðalakstur fólksbíla 12.255 km árið 2011. Miðað við 6,6 m3 meðaleyðslu Passat EcoFuel er árlegur eldsneytiskostnaður því 120.000 kr. miðað við verð á metani 31. janúar 2013. Tilboð í febrúar. Frítt metan í eitt ár! 10 viðhorf Helgin 8.-10. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.