Fréttatíminn - 08.02.2013, Side 34
Dagskrá:
Skúli Helgason, alþingismaður
Allir stundi nám og vinnu við sitt hæfi. Kynning á
skýrslu starfshóps.
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka
iðnaðarins
Bilið sem þarf að brúa.
Iðunn Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi
hjá Iðunni
Hvað hefur áhrif á námsval iðn- og verknáms-
nemenda?
Heiður Agnes Björnsdóttir, Cand Oecon, MBA
Aðferðafræði og framkvæmd markaðssetningar
iðn-, verk- og tæknináms.
Einar Ben, MA í almannatengslum
Samfélagsmiðlar - nýjungar í notkun og fræðslu.
Umræður í hópum
Ráðstefnustjóri: Baldur Gíslason, stjórnar-
formaður Iðnmenntar og skólameistari Tækni-
skólans
Skráning á skrifstofu Iðnmenntar, í síma 517-7200
eða á netfanginu heidar@idnu.is.
iðn-, verk-
og tæknináms
Markaðs-
setning
Ráðstefna IÐNMENNTAR 2013
Hilton Reykjavík Nordica
8. feb. kl. 13–16
M argt fólk bíður í tíu jafnvel tuttugu ár eftir réttri greiningu. Ég ætla ekki að vera ein af þeim og sé í
raun ekki tilganginn með því. Ég nenni ekki
að sitja heima og velta mér upp úr því sem
gæti verið að. Stundum er það bara gott að
ekki vita,“ segir Anna Margrét Gunnarsdótt-
ir, sem tók á mót blaðakonu á Hámusvæði
Háskólans, en þar nemur hún viðskiptafræði.
„Heimur peninganna þar sem allir eru ei-
lífir,“ útskýrir hún kímin.
MS, sýking eða Munchausen
Vorið 2010 byrjaði Anna Margrét að kenna
meins í annarri hendinni. „Mér leið svona
eins og húðin hefði verið rifin af mér og sveið
alveg ótrúlega, það mátti ekki snerta mig og
ég átti erfitt með að vera í síðerma bolum.
Ég var svona í um mánuð og fór þá loksins
til læknis, en það er mjög erfitt að fá tíma
hjá sérfræðingum, það er væntanlega nóg
að gera hjá þeim. Það kom ekki margt út úr
þessari fyrstu heimsókn minni, enda lærði
ég það fljótlega að læknar vinna svolítið eftir
útilokunaraðferðinni.“
Fljótlega fór
meinið að ágerast
og Anna missti að
endingu alla tilfinn-
ingu hægra megin
í líkamanum. „Ef
ég stakk fingrinum
í naflann á mér þá
fann ég bara fyrir
því vinstra megin.“
Í kjölfar þessa
upphófust miklar
rannsóknir þar sem
allir möguleikar
voru skoðaðir. „Ég
fékk stundum á
tilfinninguna að
þeir væru að láta
sér detta það allra
súrasta í hug, svona
til þess að vera
vissir. Ég fór í blóð-
prufur og línurit
og sex sinnum í svona risaskanna sem er
eins og geimskip sem veldur mikilli innilok-
unarkennd. Allir spurðu allskonar skrít-
inna spurninga. Ég fann það af hve mikilli
einlægni þá langaði að finna þetta út. En þeir
eru samt ekki „húmanískasta“ stétt í heim-
inum og stundum leið mér eins og hlut frekar
en manneskju með tilfinningar.“
Anna Margrét segir að það hafi hvarflað
að sér að hún væri ímyndunarveik og við tók
tímabil af sjálfsgreiningum í gegnum inter-
netið en hún segir að slíkt sé afar hættulegt
sálarlífinu.
„Ég „googlaði“ mig í gegnum hinar ýmsu
sjúkdómsgreiningar og var að lokum búin
að greina sjálfa mig með Munchausen heil-
kenni. Loks fyrir einhverja tilviljun var ég
send í röntgenmyndatöku og þá loks kom
í ljós agnarsmár blettur á mænu, í öðrum
hryggjarlið.“
Anna segir að hún hafi í kjölfarið verið
kölluð til fundar lækna sem tilkynntu henni
þungir á brún hvers eðlis var.
„Þeir sögðu mér að blettur sem þessi gæti
verið tilkominn vegna einhverrar óþekktar
sýkingar eða jafnvel byrjunin á MS–sjúk-
dómi. En til þess að fá MS greint þá þarft
þú samt að vera komin með tvo bletti. Eftir
þetta var ég enn stærra spurningamerki og
hálf miður mín ég pældi mikið og velti mér
upp úr þessu,“ segir Anna. Sú tilfinning hafi
þó fljótlega horfið og hún farið að hugsa sig
um. „Hvaðan kemur þessi þörf okkar að fá
að vita allt um annað fólk og ekki síst okkur
sjálf. Ég spurði mig hvort við gætum ekki
haldið einhverjum hluta framtíðarinnar
sveipuðum hulu? Eða þurfum við að rífa
hana af undireins og afhjúpa öll okkar mál
og svo bara „shareað“ á Facebook. Þannig
vildi ég ekki eyða dýrmætum tíma mínum.
Sumt fólk bíður og bíður í tugi ára eftir því
að fá sjúkdómsgreiningu en gleymir að lifa á
meðan og ég ætlaði ekki að vera ein þeirra.
Mín „fílósófía“ er sú að ég sé í raun heppin að
vita ekki neitt því þá er auðveldara að sleppa
tökunum og mig langar að halda því þannig.
Mig langar því ekki að vita hvað er að mér
því það hefur ekkert upp á sig nema veröld
sjálfsvorkunnar. Við erum öll dauðleg og tími
okkar mislangur. Það hefur því ekkert upp á
sig að telja niður.“
Vil ekki láta vorkenna mér
Anna Margrét segist lifa í ágætis samlyndi
við mænublettinn, sem minnir þó reglulega
á sig með tilfinningaleysi eða miklum og
nístandi sársauka. En hún fæst við það af
æðruleysi.
„Ég fékk smá kast í gær og talaði við
vinkonu í kjölfarið sem varð mjög alvarleg og
vorkenndi mér voðalega. Það er samt ekki
það sem ég vil, að láta vorkenna mér. Ég er
dauðleg eins og við öll og það er mikilvægt
að sættast bara við það strax. Þá fyrst ferðu
að njóta lífsins.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Vill ekki sjúkdómsgreiningu
Anna Margrét Gunnarsdóttir er tuttugu og fimm ára háskólastúdína. Hún hefur síðan árið 2010
fundið fyrir dularfullum áhrifum kvilla sem ekki hefur tekist að greina að fullu. Hún byrjaði að
missa tilfinningu í vinstri hliðinni og á tímabili fann hún ekkert öðru megin. Upphófust miklar
rannsóknir og eftir nokkurra ára leit fannst lítill blettur á mænu hennar, en ástæðan óþekkt. Hún
hefur ákveðið að hætta leitinni og halda áfram lífinu í samfloti við blettinn.
Ef ég
stakk
fingrinum
í naflann
á mér þá
fann ég
bara fyrir
því vinstra
megin.
Anna Margrét fór í
margar rannsóknir
áður en bletturinn
fannst. Nú vill
hún ekkert vita
á honum frekari
deili, það sé til-
gangslaust að bíða
eftir greiningu.
Ljósmynd/Nordic
Photos/Getty Imagges
Anna Margrét er með dularfullan blett á mænunni sem gerir það að verkum að hún missir alla tilfinningu í útlimum eða finnur
fyrir hræðilegum sársauka. Hún vill ekki sjúkdómsgreiningu og ætlar að lifa með blettinum. Ljósmynd/Hari
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
34 viðtal Helgin 8.-10. febrúar 2013