Fréttatíminn - 08.02.2013, Blaðsíða 41
heilsa 41Helgin 8.-10. febrúar 2013
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Brjóskskemmdir urðu til þess að ég
hætti að geta gert ýmsa hluti sem ég
gat áður eins og að hlaupa og öll
almenn leikfimi varð ofraun fyrir hnéð.
Ég starfa mikið við kennslu/þjálfun
sem kostar miklar stöður, átti hnéð til
að bólgna mikið upp. Góður vinur
benti mér svo á NutriLenk Gold.
Fór strax að geta reynt á hnéð
eftir að ég byrjaði á NutriLenk
Nánast strax eftir að ég fór að nota
NutriLenk fann ég mikinn mun, fór
strax að geta reynt meira á hnéð. Nú
get ég æft af fullri ákefð eins og mér
einum er lagið og er ekkert mál að
þola langar stöður þegar ég er að
kenna og þjálfa.
Það er klárt mál að þetta efni er að
virka, því ef ég sleppi að taka það inn
þá finn ég aftur fyrir óþægindum í
hnénu.
Ég mæli eindregið með því að fólk
prófi NutriLenk sem er að kljást við
liðverki og brjóskskemmdir og finni
hvort að það virki. Þetta er toppefni
og náttúrulegt í þokkabót.
Jón Halldórsson
- Dale Carnegie þjálfari / ráðgjafi. 42 ára
Brjóskskemmdir í hné
hömluðu hreyfingu
Fyrir átta árum var ég í veiði - datt og laskaðist á hné.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
Holl súkkulaði-
kaka með kúrbít
Kúrbítur er mörgum framandi í
matargerð en allar gerðir kúrbíta
innihalda mikið af steinefnum. Hann
er ríkur af kalíum, A og D vítamíni
og einnig fólínsýru, sem er nauðsyn-
leg konum á meðgöngu. Hátt vatns-
innihald, eða um 95 prósent, gerir
kúrbítinn tilvalinn í matargerð til
dæmis fyrir fólk sem vill grenna sig
en í 100 grömmum eru aðeins um
15 hitaeiningar. Í berkinum er einnig
mikið af næringarefnum þannig það
er nauðsynlegt að þvo kúrbítinn
vel, en ekki skræla hann. Í honum
er engin fita og ekkert kólesteról.
Fá okkar hafa hugmyndaflug í mat-
reiðsluaðferðir á þessu framandi
grænmeti og fæst vita að hann er
kjörinn viðbót í brauð og jafnvel
súkkulaðikökur.
Hér er uppskrift að gómsætri og
hollri súkkulaði köku með kúrbít.
Það sem þarf:
• 1/2 bolli rifinn kúrbítur
• 1 bolli heilhveiti
• 1/2 bolli ósætt kakóduft
• 1 tsk matarsódi
• 1/4 tsk lyftiduft
• 1/4 tsk salt
• 1/4 tsk kanill
• 1 stór banani
• 1/4 bolli agave eða 1/2 bolli hrá-
sykur (má nota annað sætuefni til
dæmis nokkra dropa af Stevia)
• 1/2 bolli canola olía, eða önnur
sambærileg bragðlítil olía
• 1/2 tsk vanilla
• 1/2 bolli þurrkuð trönuber, eða
önnur ber eftir smekk
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður.
Blandið þurrefnunum saman í sér
skál.
Stappið banana saman við agave,
olíu og vanillu.
Bætið kúrbítnum saman við og
blandið vel inn í maukið.
Setjið maukið svo loks í skálina með
þurrefnunum og hrærið vel.
Bakið í smurðu brauðformi í um 40
mínútur.
Magaæfingar í
heita pottinum
Æfingar í vatni eru mjög áhrifaríkar og þægilegar í fram-
kvæmd þar sem vatnið gerir allar hreyfingar mun auðveld-
ari. Æfingarnar geta verið margvíslegar. Þessar auðveldu
magaæfingar er bæði hægt að gera í pottinum sem og
lauginni.
Stattu með bakið upp að bakkanum á lauginni/pottinum
og tylltu olnbogunum á bakkann.
Lyftu fótunum, beinum hægt og rólega upp í níutíu gráður
og haltu þeim þannig í tíu sekúndur.
Beygðu svo kálfana til baka og láttu fæturna síga niður á
ný. Endurtaktu eftir getu.
69%
... kvenna á
höfuðborgar-
svæðinu
lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012