Fréttatíminn - 08.02.2013, Blaðsíða 52
52 bíó Helgin 8.-10. febrúar 2013
Ég er
stolt af
mynd-
inni og
ég stend
við hana,
algjör-
lega.
Zero Dar k ThirT y k aThryn Bigelow sTuðar
s jálfsagt er óþarfi að eyða mikilli prentsvertu í að rifja upp hefndaræðið sem rann á Bandaríkjamenn eftir hryðju
verka árásirnar þann 11. september 2001.
Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingum
innrásanna í Afganistan og Írak sem fylgdu
í kjölfarið en hefndarþorstanum varð ekki
svalað almennilega fyrr en fregnir bárust að
af því á fyrstu dögum maímánaðar að sér
sveit Bandaríkjahers, SEAL Team Six,hefði
drepið Osama bin Laden í árás á felustað
hans í Pakistan. Barrack Obama, forseti
Bandaríkjanna og handhafi friðarverðlauna
Nóbels, greindi þjóð sinni og umheiminum
frá drápinu og lét það fylgja sögunni að rétt
lætinu hefði verið fullnægt.
Zero Dark Thirty segir frá leitinni að
bin Laden sem stóð í tíu ár. Myndin hefst
á raunverulegum hljóðupptökum og síð
ustu símtölum fólks sem fórst í árásinni á
tvíburaturnanna og lýkur með árás Team Six
á fylgsni bin Ladens. Zero Dark Thirty fylgir
CIAkonunni Maya, sem Chastain leikur, og
framlagi hennar til leitarinnar að bin Laden
en hún leggur líf og sál undir.
Zero Dark Thirty er mjög umdeild og Bige
low og handritshöfundi hennar, Mark Boal,
hefur verið legið á hálsi fyrir að fara rangt
með staðreyndir og CIA hefur meðal annars
alfarið hafnað því að beita pyntingum eins
og þeim sem sýndar eru í myndinni. Bigelow
stendur fast við sitt og segir myndina raun
sanna.
„Mér finnst við hafa náð þessu rétt. Ég er
stolt af myndinni og ég stend við hana, algjör
lega. Ég held að þetta sé mjög mórölsk mynd
sem veki upp spurningar um valdbeitingu.
Hún vekur upp spurningar um hvað var gert í
nafni þess að finna bin Laden,“ segir Bigelow
í viðtali við Time en hún hefur bæði orðið
fyrir gagnrýni frá CIA og þingnefnd sem
hefur með leyniþjónustuna að gera fyrir að
gera allt of mikið úr pyntingum stofnunarinn
ar og þætti þeirra í að finna bin Laden og frá
fólki sem finnst myndin upphefja pyntingar
og réttlæta beitingu þeirra.
Kathryn Bigelow er um margt merkileg
kvikmyndagerðarkona sem virðist hafa fund
ið fjölina sína á síðustu árum með því að taka
fyrir raunveruleg samtímaefni sem tengjast
stríðsrekstri Bandaríkjamanna í kjölfar árás
anna þann 11. september.
Árið 1989 sendi Bigelow frá sér hina miðl
ungsgóðu Blue Steel þar sem Jamie Lee
Curtis lék lögreglukonu sem átti í erfiðleik
um í starfi auk þess sem hún var með sturl
aðan ellihrelli á hælunum. 1991 sendi hún frá
sér brimbrettaspennumyndina Point Break
með Patrick Swayze og Keanu Reeves í aðal
hlutverkum og 1995 kom framtíðar spennu
sýran Strange Days með Ralph Fiennes í að
alhlutverki. Bigelow var til skamms tíma gift
ofurleikstjóranum James Cameron (Termina
tor, Aliens, Titanic, Avatar) og hann fram
leiddi Point Break og Strange Days og tók
þátt í að skrifa handrit þeirrar síðarnefndu.
Árið 2002 gerði Bigelow kafbátamyndina
K19: The Widowmaker með Harrison Ford
í aðalhlutverkinu og Ingvari E. Sigurðssyni í
litlu aukahlutverki. Myndin olli vonbrigðum
og hún sendi ekki frá sér mynd í fullri lengd
fyrr en The Hurt Locker kom árið 2008 og
skilaði henni óskarsverðlaunum fyrir leik
stjórn auk þess sem The Hurt Locker var
valin besta myndin.
The Hurt Locker segir frá störfum
sprengjuleitardeildar bandaríska hersins í
Bagdad. Blaðamaðurinn Mark Boal skrifaði
handrit The Hurt Locker en samstarf Bige
low og hans hefur verið farsælt þar sem hann
á einnig heiðurinn af umdeildu handriti Zero
Dark Thirty.
Nýjasta mynd leikstjórans Kathryn Bigelow, Zero Dark Thirty, er komin í kvikmyndahús í Reykja-
vík. Myndin segir frá leit CIA að Osama bin Laden sem lauk með því að Al-Kaída-leiðtoginn var
veginn í Pakistan í byrjun maí árið 2011. Myndin er tilnefnd til fimm óskarsverðlauna, þar á meðal
sem besta myndin og Jessica Chastain er tilnefnd sem besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir túlkun
sína á harðri CIA-konu sem leggur allt undir og leitar Osama af einurð og festu. Chastain hlaut
einnig Golden Globe verðlaun fyrir leik á dögunum.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Osama í hel komið
Jessica Chastain leikur CIA-konuna Mayju sem gengur nærri sjálfri sér í leitinni að Osama bin Laden í Zero Dark Thirty. Sagan
segir að persónan sé byggð á raunverulegri konu en ekki sé hægt að greina frá því hver hún er.
Gömlu kaldastr íðshet jurnar,
Sylvester Stallone og Arnold
Schwarzenegger, sem áttu sína
gullöld í kringum níunda áratug
síðustu aldar eru ekki dauðir úr
öllum æðum og fljóta enn á fornri
frægð. Arnold mætti til leiks í kvik
myndahús í Reykjavík í síðustu
viku í The Last Stand og nú er for
inginn Stallone kominn úr að ofan
og hnyklar vöðvana í spennumynd
inni Bullet to the Head.
Stallone leikur leigumorðingja
sem kálar spilltri löggu. Í kjölfarið
dúkkar stórhættulegur málaliði
upp og drepur félaga Stallones.
Lögreglumaður nokkur sér teng
ingu á milli drápsins á spilltu lögg
unni og félaga Stallones. Hann hef
ur því upp á okkar manni og þeir
snúa bökum saman, annars vegar
til þess að komast að hinu sanna og
hins vegar til þess að koma fram
hefndum.
Gamli jaxlinn Walter Hill leik
stýrir myndinni. Ferill hans hef
ur verið býsna brokkgengur og í
seinni tíð er helst að fólk muni eftir
mynd hans Last Man Standing með
Bruce Willis en besta mynd Hills
er án efa 48. Hrs frá árinu 1982
með þeim Nick Nolte og Eddie
Murphy í toppformi.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.5, Rotten Tom-
atoes: 46, Metacritic: 48
Hvert mannsbarn hlýtur að kannast við
söguna um systkinin Grétu og Hans sem
týndust úti í skógi, fundu sælkerahús sem
var girnilegra en nammibarinn í Hag-
kaupum og enduðu í kjölfarið næstum sem
aðalréttur hjá norninni sem þar réði húsum.
Myndin Hansel and Gretel: Witch Hunters
fjallar um systkinin þegar þau eru vaxinn
úr grasi. Skelfileg lífsreynsla þeirra í æsku
hefur haft svo mótandi áhrif á þau að þau
ferðast um svartleðruð og grá fyrir járnum,
elta uppi nornir og drepa þær. Þeim hefur
gengið býsna vel í hreinsunarstarfinu en
leikar æsast þegar þau halda til þorps sem
sagt er umsetið nornum sem hafði rænt
fimm börnum. En ekki er allt sem sýnist.
Jeremy Renner og Gemma Arterton leika
Hans og Grétu en meðal annarra leikara í
myndinni eru hin stórfínu Famke Janssen
og Peter Stormare.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.5, Rotten Tom-
atoes: 15%, Metacritic: 21%
nornaveiðar grimms-ævinTýri poppað upp
Hans og Gréta grípa til vopna
Hans og Gréta eru orðin stór og
nornirnar mega vara sig.
FrumsýnD BulleT To The heaD
Stallone í vígahug
Sly er aðeins farinn að láta á sjá en
gefur ekkert eftir þótt hann sé kominn
á sjötugsaldurinn.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
CHAPLIN:
CITY LIGHTS
ÞRJÚBÍÓ
SUNNUDAG | 950 KR. INN
HVELLUR
HEIMILDAMYNDIN UM
LAXÁRDEILUNA SEM
HEFUR SLEGIÐ Í GEGN!
****- Rás 2
*****-Morgunblaðið
****- Fréttablaðið
MEÐLIMUR Í
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk