Dagrenning - 01.12.1946, Page 41

Dagrenning - 01.12.1946, Page 41
FramtíS Dagrenningar ESSU síðasta blaði í síðasta hefti Dag- renningar þetta fvrsta ár hennar verður bezt varið á þann liátt að rabba við kaup- endur hennar um liið sameiginlega vanda- mál mitt og þeirra — franrtíð Dagrenningar — og það, hvernig hún getur orðið stórt og víðlesið tímarit, en sá er draumur minn, að luin eigi eftir að verða eitt stærsta, vandað- asta og víðlesnasta tímarit þessa lands. En hvernig má það verða? Eins og ég gat um í forustugrein fyrsta heftis þessa árgangs, er sá tilgangurinn með útgáfu Dagrenningar, að reyna að halda lif- andi sambandi við þá menn og konur, sem hneigjast að þeirn skoðunum, sem Dagrenn- ingu var ætlað að túlka, eða hafa gaman af bollaleggingum mínum og annarra, sem svip- að hugsa um þessi mál. Nú við lok þessa fyrsta árs er svo komið, að ekki vantar nema herzlumuninn, að Dag- renning beri sig fjárhagslega og er það mikið meira en ég gerði mér vonir um í fyrstu. Þegar því marki er náð, — en það er auð- vitað grundvöllurinn fyrir því, að áfram verði haldið, — að fjárhagsleg afkoma er tryggð, ber að snúa sér að öðrurn viðfangsefnum. En ennþá vantar nokkuð á, að fjárhagsgrund- völlurinn sé nógu traustur, og það verður enn að herða róðurinn, ef vel á að fara. Nokkrir af vinum Dagrenningar hafa sýnt lofsverðan áhuga fyrir því að tryggja henni kaupendur. Einn þeirra er bóndi í sveit. Hann sendi Dagrenningu nú fyrir sjólin tíu áskrifendur. Annar safnaði hér í Reykjavík tólf áskrifendum á tveim dögum og sá þriðji safnaði henni sex áskrifendunr á einu kvöldi. öllum þessum, svo og öðrum, sem færri áskrifendur hafa sent, þakka ég kærlega fyrir velvild þeirra og fyrirhöfn. Ekki skal því heldur gleymt að einn af vinurn Dagrenn- ingar hefir, auk þess að útvega henni marga kaupendur, skrifað urn hana ágæta grein í víðlesið tímarit og þar með vakið á henni þá athygli meðal sjómannastéttarinnar, sem tæplega verður fullþökkuð. En allt á þetta nú sarnt að verða þeim til gagns og gæða, sem kaupendur hafa gerzt, því að það hygg ég að flestir segi um Dagrenningu, sem á annað borð lesa hana, að hún sé athygíisvert rit og einstök í sinni röð aiíra íslenzkra tíma- rita fyrr og síðar. Við lok næsta árs — 1947 — er þess fast- lega að vænta, að fjárhagsgrundvöllurinn verði að fullu tryggður, og þá mun hafist lianda um það, að búa Dagrenningu enn betri flíkum en hún ennþá hefir borið. í hinum enskumælandi heimi er gefinn út fjöldi tímarita smærri og stærri um þau fræði, sem Dagrenningu er ætlað að fjalla um. Ef vel ætti að vera þyrfti Dagrenn- ing að geta haft í þjónustu sinni fastan starfsmann, er þýðir slíkar greinar fyrir ritið. Afgreiðsla rits, sem hefir orðið marga kaup- endur, þarf einnig að vera í góða lagi. Til þess að svo megi verða þarf gott húsnæði, og það er dýrt nú í Reykjavík og helzt ekki fáanlegt. Eigi útsending að vera í góðu lagi þarf og að hafa ýmiss tæki við það starf, sem nokkurt fé kosta. En á öllu þessu sigrast Dagrenning von- andi. Hún fær nú um áramótin gott hús- næði fyrir ritstjórn sína og afgreiðslu, og er þá nokkurt spor stigið í áttina. Næsta ár — 1947 — koma út 6 hefti af Dagrenningu, 5 arkir hvert, eða jafnstór þessu hefti (40 síður). En það, sem að er stefnt, er að Dagrenning geti — ekki síðar cu í ársbyrjun 1948 — orðið mánaðarrit eigi minna en 3 arkir (24 síður) mánaðariega. DAGRENNING 39

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.