Dagrenning - 01.12.1946, Blaðsíða 42

Dagrenning - 01.12.1946, Blaðsíða 42
Þegar því marki er náð, er Dagrenning orðin því lilutverki vaxin, hvað stærð og útkomu snertir, er henni var í öndverðu sett. Það, sem mest hefir létt fyrir með útgáfu Dagrenningar, er að hún er borguð fyrir- fram. Þegar féð er fyrir hendi strax í árs- byrjun og engum þarf neitt að skulda, er allt mun hægara viðfangs en ella. Þá þarf heldur engan að elta með skuldakröfum að árinu liðnu. Dagrenning mun því einnig næsta ár og framvegis fylgja þeirri reglu að senda póstkröfu fyrir árgjaldinu með 1. hefti árgangsins, og telja þá eina kaupendur, sem innleysa þá kröfu. Pappír og prentun hefir Dagrenning nú tryggt sér næsta ár, svo að ekki eiga að verða af þeim sökum nein mistök með útkomu hennar. Fyrsta hefti 1947 kemur í febrúarmánuði og síðan annan hver nmánuð, eins og fyrr ei sagt. # En ekkert af því, sem nú hefir nefnt verið, cr þó aðalatriðið í útgáfu Dagrenningar, þótt mikilsverð séu öll, heldur hitt, hvað henni er ætlað að flytja, hvert hennar andlega verkefni er, ef svo mætti segja. Mér er ljóst, að ýmsir líta á þá starfsemi mína, sem birtist í útgáfu Dagrenningar, sem vott þess, að ég sé með „lausa skrúfu“. Sjálfum þvkir mér, ef satt skal segja, fremur vænt um dóm þessara manna, þó að ég viti, að hann getur skaðað það málefni, sem ég vil að Dagrenning berjist fyrir. En þessir menn eru mér tákn hinnar „eilífu heimsku“, sem elt hefir alla þá, er brjóta vildu nýjar brautir og sáu lengra en almennt gerist. Eins og tekið var fram á fyrstu síðum þessa árgangs, er höfuðtilgangur Dagrenn- ingar sá, „að flytja frumsamdar og þýddar greinar um atburði yfirstandandi tíma í ljósi fornra spádóma". Þessurn liöfuðtilgangi sín- um mun Dagrenning verða trú, en til þess að ritið verði sarnt ekki of einhæft, er nauð- synlegt að það flytji einnig við og við greinar um önnur skyld eða óskyld efni. Á þessu ári hafa eftirtaldar greinar, sem allar hnigu að því að benda á ýmsa atburði yfirstandandi tíma og varpa á þá ljósi hinna gömlu spá- dórna, birzt í ritinu: Er Asíubyltingin af hefjast? Palcstínuvandamálið í ljósi spádómanna. Afnám konungsrík/anna. „Kiaftai himnanna munu bifast“, og nú síðast: „Við eigum okkar verndara". Á næsta ári mun þessu eins hagað. Reynt verður að skipta rúmi ritsins sem bezt milli þessara þátta og annarra, sem nauðsyn ber til að sýna einnig fulla rækt. Meðal greina í næsta árgangi verða t. d. þessar: Áreksturinn í októbei 1947. Spádómstáknin hamai og sigð. Ilinai meikilegu dagsetningar Pýiamidans mikla 1948. „Land vængjaþytarins". Hvaða félagsskapur er „samkunda Satans"? Auk þess er það ávallt svo, að þeir at- burðir, sem gerast svo að kalla daglega, gefa tilefni til hugleiðinga í þessu sambandi. Mér er það ljóst, að þess er ekki að vænta, að íslendingar „taki sinnaskiptum" á einu eða tveirn árum. Ég er heldur ekki að boða þeim nein ný trúarbrögð, heldur af veikum mætti að reyna að bera því vitni, sem mér hefir virzt vera sannast og réttast af því, sem ég hefi kynnzt og sem hefir haft meiri áhrif á líf mitt og skilning minn á sögu og trúar- brögðum en nokkuð annað. Það finnst mér skylda mín að gera meðan það enn er ekki of seint. Ég enda svo þessar línur með þökk fyrir liðið ár og ósk um gleðilegt nýtt ár til handa öllum kaupendum og vinum Dagrenningar. /. G. 40 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.