Dagrenning - 01.10.1950, Blaðsíða 5
ar fóru úr Öryggisráðinu á s. 1. ári. En margt
Eendir til þess, að þeir liafi gert það í því
skyni að knýja fram þann vilja sinn, að hin
nýja kommúnistastjórn í Kína fengi sæti
Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum og víst er
um það, að Rússar buðust til að koma á
sættum í Kóreu, ef því yrði kevpt, að hin
nýja stjórn í Peking fengi sæti Kína hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Einhver leyndardómsfyllsti atburður sem
gerst hefur á sviði alþjóðamála á þessu ári,
er fundur sá sem Mac Arthur átti með Sjang
Kai Sjek í septembennánuði síðast liðnum.
Eftir þann fund hrá svo við að herir Sam-
einuðu þjóðanna fóru að vinna á í Kóreu og
mótstaða Norður-Kóreumanna fór sírnink-
andi.
Vafalaust er að mikill ágreiningur kom upp
milli Trumans forseta og Mac Arthurs út af
þessum fundi og var sá ágreiningur svo alvar-
legs efnis, að Truman forseti varð sjálfur að
fara til fundar við Mac Arthur til þess að
reyna að jafna þessa misklíð.
En þó allt sýnist með felldu á yfirborðinu
urn afstöðuna til Kína, er enginn efi á því,
að undir niðri er allt annað en gott sam-
komulag rnilli herforingja Bandaríkjanna og
stjórnmálamanna þeirra, er sh’ðja Truman
forseta.
Allt bendir til að Truman forseti sé hægt
og hægt að undirbúa að algerlega verði snúið
baki við Sjang Kaj Sjek, á svipuðum forsend-
um og Pólland og Austur-Evrópuríkin yfir-
leitt voru svikin á sínum tíma. Tryggvi Lie
hefur beitt sér fvrir þeirri „lausn“ málsins, að
Sjang Kai Sjek stjórnin, sem nú er að vísu
landflótta — eins og sú stjórn var, sem
Tryggvi Lie var ráðherra í á sinni tíð —
verði svikin af Sameinuðu þjóðunum
og glæpastjórn sú — svipuð þeirri, sem tók
við stjómartaumunum í Noregi undir vernd
TJitlers, — sem nú stjórnar Kína, verði viður-
kennd sem „lögleg" stjórn hins mikla Kína-
veldis. í sarna streng hafa Indverjar tekið,
og Nehru verið til þessa einn af skeleggustu
talsmönnum undansláttar-stefnunnar innan
Sameinuðu þjóðanna.
Mundi það ekki geta verið, að „sigur“
Sameinuðu þjóðanna í Kóreu bvggist að veru-
legu levti á baksamningum Rússa og Banda-
ríkjamanna um afstöðuna til Sjang Kai Sjeks?
Víst er um það, að Rússar „brosa nú mjög
til hægri“ á þingi Samejnuðu þjóðanna og
láta óspart í það skína, að Bandaríkin og
Soviet ættu að geta náð samkomulagi um
öll meiriháttar ágreiningsmál sín, — en eitt
þeirra er einmitt Kína. Annað atriði, sem
vert er að gefa gaum að í þessu sambandi, er
það, að síðan viðræður þeirra Mac Arthurs
og Sjang Kai Sjeks áttu sér stað, hefur hinn
síðarnefndi — Sjang Kai Sjek — tæpast heyrst
nefndur á nafn í blaða og útvarpsfréttum.
Það er verið að undirbúa síðasta þáttinn —
hin algeru svik við þennan forna bandamann
lýðræðisríkja Vesturlanda. Nú er Sjang Kai
Sjek eini bandamaður hinna vestrænu lýð-
ræðisþjóða úr síðari heimsstvrjöldinni sem
eftir er að svíkja opinberlega. Það er fyrir
löngu búið að svíkja hann raunverulega og
aflienda land hans og þjóð — kommúnistum.
En ekkert af þessu verður opinbert fyr en
eftir kosningarnar í Bandaríkjunum, sem
fram eiga að fara í nóvember. Sýni Tru-
man forseti og hjálparmenn hans verulega
undanlátssemi við Rússa eða kínverska-
kommúnista nú fyrir kosningarnar, má hann
búast við því að tapa þeim og þá verður að-
staða hans mjög erfið heima fyrir, þau tvö ár,
sem hann á eftir að vera forseti.
Fari kosningarnar í Bandaríkjunum á þann
veg, að demokratar (flokkur Trumans) haldi
meirihluta á þingi. mun, þess ekki langt að
bíða, að slegið verði á ný undan út af Kína.
Vafalítið er, að höfuðágreiningurinn rnilli
Mac Arthurs og Trumans er sá, að Mac
Arthur \ill að Bandaríkin blátt áfram her-
DAGRENNIN'G 3