Dagrenning - 01.10.1950, Side 6
nemi Formósu, því hún sé allra eyja nauðsyn-
legust fyrir vamir Kyrrahafsins gegn yfir-
gangi og útþenslustefnu kím'crskra og rúss-
neskra kommúnista.
❖
Truman forseti fylgir að nokkru leyti enn
hinni óheillavænlegu stefnu Roosevelts for-
seta gagnvart Kremlstjórninni. Viðbragð
hans í Kóreu var þó röggsamlegt,
en þar hefur það vafalaust ráðið miklu
um, að Japan er í mun meiri hættu, ef Kórea
er í höndum fjandsamlegrar stjórnar,
Það cr næsta merkilegt að veita því athygli
hve skyndilega allt viðhorf breytist á þingi
Sameinuðu þjóðanna og manna á meðal í
lýðræðisríkjunum, ef Rússar láta snöggvast
af fjandskap sínum \’ið allt og alla, þó ekki sé
nema í orði. Vegna þess að Rússar hafa fund-
ið að þeir stóðu höllum fæti í Kóreu-deilunni
hafa þeir ekki hagað sér alvcg eins dólgslega
það sem af er þessu allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna, eins og á fyrri þingum, enda
er nú bjartsýnin slík að engu er líkara en að
menn búist við því, að nú rnuni öll él birta
upp og friðarsólin taka að skína. En ef að
líkum lætur þá tákna þessi flcðulæti það, að
Rússar séu að brugga hinum vestrænu þjóð-
um enn meiri svikaráð en nokkru sinni fyr,
og ekki ber skevti Stalins til forseta Norður-
Kóreu vott um, að í vændum séu mikilvægar
breytingar á utanríkisstefnu Rússa í Asíu eða
gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Það er alveg
eins og þessir „miklu menn“ á allsherjar-
þinginu séu lítil börn, sem halda, að sumarið
sé komið þegar kveikt er á götuljósi í rætrar-
myrkrinu.
Það er öllum Ijóst, sem fylgst hafa með
stjórnmálum heimsins undanfarin ár, að
kommúnistarnir í Rússlandi stefna markvisst
að algjörlegum heimsyfirráðum, og beita
þeirri tækifærisstefnu, sem þeir telja bezt
við eiga liverju sinni, til að komast áleiðis að
því marki. Árið 1924 var sú áætlun Rússa
fullgerð að efna til „nýlendubyltingar“, sem
þeir svo kölluðu, í Austurlöndum. Að þessu
hafa þeir róið öllum árum síðan, og nú er
sú nýlendubylting lrafin.
í aprílmánuði 1924 flutti Stalin fyrirlestur
um grundvallaratriði Leninismans og fórust
þá m. a. þannig orð:
„Meðan heimsveldisstefnan (Inperial-
isminn) er til, verður aldrei komið í veg fyrir
styrjaldir, og því mun bandalag öreigabylt-
ingarsamtaka Evrópu og nýlendubyltingar-
innar í Austurlöndum (Asíu) óhjákvæmilega
sameinast í alheimsbyltingu gegn alþjóða-
samtökum heimsveldissinna (Inperialista).“
Frá þessari skoðun hafa konnnúnistar ekki
kvikað hársbreidd í allri sinni pólitík, þótt
þeir hafi margoft lýst öðru yfir, þegar svo
stóð á, að það var þeim hagkvæmt. Menn
verða að gera sér það ljóst, að kommúnistam-
ir í Rússlandi eru brjóstvöm og leiðtogar
stórkostlegs alheimssamsæris, sem vinnur
eftir setturn reglurn og stcfnir markvisst að
ák\'eðnu takmarki, — útrýmingu kristinn-
ar siðmenningar og undirokun vestrænna
þjóða.
*
Sú stjórnmálastefna, sem Rússar fylgja nú,
hefur réttilega verið kölluð umboðsstyrjalda-
steinan. Kórea er fyrsta ríkið þar sem Rússar
revna þessa tegund útþenslu stefnu og það
virðist svo a. m. k. í fljótu bragði, sem hún
hafi mistekist að vissu levti. Hún hefur mis-
tekist að því leyti, að þeim heppnaðist ekki
að leggja éitt kotríkið enn undir hið mikla
rússneska höfuðból. En reyndar er vafasamt,
að það hafi verið hinn raunverulegi tilgang-
ur þeirra. Sennilegast er að Rússum komi
það einmitt ekki illa að svo fór sem fór í
Kóreu, því nú fá þeir enn betri aðstöðu til að
etja Kínverjum gegn Bandaríkjunum, og
það er áreiðanlega mesta áhugamál Rússa
þessa stundina, að gera Bandaríkin svo
hrædd við Kína, að þau þurfi að binda mikið-
4 DAGRENNING