Dagrenning - 01.10.1950, Qupperneq 8
helst í Indlandi. Árásin á Kóreu mis-
tókst eingöngu vegna þess að Bandaríkin
voru með mikinn her og ágætan hershöfð-
ingja svo að kalla við bæjardyr Kóreu — 1
Japan. Hefði það ekki verið væru örlög Kóreu
nú ráðin á sama veg og ýmsra Evrópuríkja.
Það er aðeins gagnvart Mulianreðstrúarríkj-
unurn í Vestur-Asíu, og Finnlandi, sem
Rússar geta ekki rekið umboðsstyrjaldir, en
yrðu sjálfir að grípa til hcrnaðaraðgerða ef
þeir teldu Sovietríkjunum „ógnað“ af „heims-
veldissinnum“ í þessum ríkjiun. Athyglis-
verðasti bletturinn á jörðinni nú, þegar þetta
sjónarmið er haft í huga, er spildan frá Persa-
flóa að Kaspíahafi, eða Irak og Iran — hin
foma Persía. Ef Rússar legðu þau ríki undir
sig, eða „frelsuðu þau undan áþján heims-
veldissinna“ eins og það heitir nú á þeirra
eigin máli, væri hægt að skilja hreinlega á
nrilli Austurs og Vesturs, og Rússar mundu
þar með loka Asíu að fullu og öllu eins og
Kína hefur nú verið lokað. Ekki er ólíklegt
að Rússar ráðist í þetta fyrirtæki þegar þeir
verða búnir að binda verulegan hluta af her
Bandaríkjamanna í Kóreu, Formósu, Filips-
eyjum og Japan, stóran hluta af her
Frakka og Bandaríkjanna í Indo Kína og
nokkum hluta af her Breta í Indlandi, en
nú er röðin komin að því, eins og best
mun koma í ljós nú eftir að kommúnistar
hafa náð Tibet á sitt vald.
Þegar kínverskir kommúnistar hafa tek-
ið Tibet, skapast þar svipuð aðstaða gagnvart
Indlandi eins og var gagnvart Kína rneðan
Rússar réðu aðeins Ytri-Mongoliu. Þaðan
gátu þeir rekið þann lævíslega áróður, sem
allsstaðar er undanfari kommúnismans. í
Tibet munu kommúnistar setja á stofn áróð-
ursmiðstöð fyrir Indland, bæði Hindustan
og Pakistan, auk þess sem þeir rnunu víggirða
landið og safna þar saman hersveitum, sem
þeir geta fyrirvaralítið látið flæða inn í Ind-
land til aðstoðar hinni öflugu fimrntu her-
deild þar, til þess að „frelsa“ Indverja undan
oki Nehrus og annara „heimsveldissinna".
Alveg nýlega hefur sendiherra Indverja í
Bandarikjunum, Pandit Nehru, systir hins
Indverska þjóðarleiðtoga, lýst því yfir, að
Indland vilji halda sér hlutlausu í átökunum
milli þeirra, sem nú deila um völdin í heim-
inum — Austurs og Vesturs. Ungfrúin sagði,
að Indverjar vildu standa utan við og leitast
við að koma á sáttum.
En Indverjar munu fá að revna tvennt.
Annað það, að um sættir milli Austurs og
Vesturs getur aldrei orðið að ræða, vegna
þess að kommúnistarnir, sem stjóma Austr-
inu, hyggja á heimsyfirráð og sættast þess
vegna aldrei af heilindum, og hitt, að þegarað
lokaátökunum kemur getur enginn verið
hlutlaus, því hlutleysi er ávalt stuðningur við
málstað árásarríkisins eða málstað þann, sem
verri er.
I sambandi við þá atburði, sem nú taka
að gerast á næstunni er athvglisvert að rifja
upp eftirfarandi ummæli úr heimsveldis-
áætlun Péturs mikla, sem Stalin fylgir dyggi-
lega. Þar segir:
„Vér verðum að sækja fram eins og oss
er unt í áttina til Konstantinopel og Indlands.
Sá senr getur náð eignarhaldi á þessum stöð-
um er raunverulegur stjórnandi heimsins.
Með þetta fvrir augum verðum vér sí og æ
að stofna til illdeilna við Tyrki og Persa.-
Vér verðum að flýta fyrir liruni Perzaríkis,
(það er nú hrunið), þoka oss inn í Persa-
flóann------og brjóta oss braut inn i Ind-
land, senr er bvrgðaskemma heimsins. Þegar
vér erirm þangað komnir getum vér verið
án enska (nú ameríska) gullsins."
í síðari hluta þessarar greinar í næsta hefti
mun ég ræða nánar um þessa atburði alla í
ljósi spádóma Biblíunnar.
6 ' DAGRENNING