Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 19
19
Þurfum að
vinna fyrir
sterkri stöðu
á afurða-
mörkuðum
Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, ræðir áherslur í starfi
þessa stærsta útflutningsfyrirtækis á íslenskum sjávarafurðum, tækifæri
og framtíðarþróun vinnslunnar
Icelandic Group er stærsta útflutningsfyrirtæki íslenskra sjávar
afurða og hefur að baki sér sterkasta vörumerkið á heimsvísu;
Icelandic. Verulegar breytingar hafa verið í fyrirtækinu að undan
förnu, dótturfyrirtæki erlendis hafa verið seld, hlutfall fisks frá Ís
landi í sölukerfi Iclandic Group er að aukast, fyrirtækið er orðinn
beinn þátttakandi í veiðum og vinnslu með kaupum á Nýfiski í
Sandgerði og fleira mætti nefna. Magnús Bjarnason er forstjóri
Icelandic Group og hann segir markmiðið að auka verulega sam
starf við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og sækja aukin verðmæti á
erlendum afurðamörkuðum. Þar sé drifkrafturinn sem ráði mestu
um þróun fiskvinnslunnar á Íslandi. Magnús er í Ægisviðtalinu að
þessu sinni.
Æ
g
isv
iðta
lið