Morgunblaðið - 20.03.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sjálfsagt eru einhverjar vikur í að knattspyrnumenn fari
að keppa á grænum grasvöllum og þangað til kemur
gervigrasið í góðar þarfir. Fyrstu útileikirnir minna þó á
að vorið er vonandi innan seilingar, en í dag er jafn-
dægur á vori. Strákarnir í Val og Fjölni drógu hvergi af
sér á Hllíðarenda í gær og fóru lipurlega með boltann.
Liprir boltakappar á Hlíðarenda
Morgunblaðið/Kristinn
Æskan tekur á sprett í góðviðrinu
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það er nokkuð ljóst að það er bæði
mjög góð þátttaka og skýr vilji sem
kemur þarna fram. Þessu verður
þannig háttað að
það verði tekið
eftir þessu,“ segir
Páll Halldórsson,
formaður Banda-
lags háskóla-
manna, en
sautján aðildar-
félög BHM með
lausa kjarasamn-
inga samþykktu
að boða til verk-
falla eftir páska
með afgerandi hætti í atkvæða-
greiðslu sem lauk í gær.
„Þetta mun ganga yfir á mismun-
andi stöðum og á mismunandi tímum
og fyrstu verkföllin byrja 7. apríl.
Sum eru tímabundin, önnur ekki,“
segir hann.
Heildarþátttaka í atkvæðagreiðsl-
unum var um 80% og samþykktu
flest félögin aðgerðir með í kringum
90% atkvæða samkvæmt frétta-
tilkynningu frá BHM. Verkföllin
munu taka til fimm ríkisstofnana og
hefjast 7. og 20. apríl. Auk þess munu
allir félagsmenn BHM hjá ríkinu fara
í hálfs dags verkfall hinn 9. apríl.
Funda á þriðjudag með ríkinu
„Ég tel að þessi úrslit segi okkur
einfaldlega að félagsmenn standa á
bak við okkar kröfur; að menntun sé
metin til launa. Þetta undirstrikar
vinnu okkar við samningaborðið og
ég vonast til þess að þetta hjálpi okk-
ur að komast að niðurstöðu án þess
að til átaka komi,“ segir Páll.
„Þetta eru fyrst og fremst þau fé-
lög sem voru með lausa samninga. Í
BHM eru líka einstök félög sem eru
ekki með neina ríkisstarfsmenn. Ég
legg þó megináherslu á það að þetta
séu öll félögin því þau taka öll þátt í
því að greiða kostnað við verkfallið,“
segir hann og bætir við að fundur
með ríkinu sé fyrirhugaður á þriðju-
daginn kemur. Meðal þeirra sem
hefja verkföll hinn sjöunda eru ljós-
mæður, geislafræðingar og lífeinda-
fræðingar.
Vilja að menntun
sé metin til launa
BHM boðar til víðtækra verkfalla í apríl
Páll
Halldórsson
Dökkblár
(e. Marine/Rouge)
Vínrauður
(e. Cedre/Aubergine)
Svartur
(e. Noir)
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
36–41
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Opið: mán.–fös. 10–18, lau. 10–16
Flottir frá
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það er stundum talað um sýndar-
samráð. Þessi fundur var meira og
minna sýning úr því að menn gátu
ekki hinkrað og skoðað þetta í sam-
ráði við íbúa,“ segir Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, um opinn íbúafund
sem haldinn var í Breiðagerðisskóla
12. mars vegna framkvæmda á
Grensásvegi og Háaleitisbraut.
Nýtt skipulag fyrir Grensásveg
var samþykkt í borgarráði í gær,
en umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkurborgar samþykkti
framkvæmdaáætlunina á miðviku-
dag. Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins bókuðu um málið í
borgarráði í
gær.
„Á fundinum
var það oftar en
einu sinni sagt
að það væri
ennþá tími til
stefnu og það
væri ekki búið
að ganga frá
einu né neinu.
Dagskrá fyrir
umhverfis- og skipulagsráðs-
fundinn á miðvikudaginn var síðan
send út á mánudaginn upp úr há-
degi og þá er ákvörðun um þreng-
ingu Grensásvegar á dagskrá. Það
sem vekur furðu er að það er verið
að segja fólki að það sé ennþá tími
til stefnu og svo líður raunverulega
bara einn virkur dagur, föstudagur-
inn, áður en málið er sett í ferli í
borgarkerfinu,“ segir hann.
„Ég spyr bara hvað ætli fólkinu
sem var á fundinum finnist sjálfu?
Hvaða ályktun getur það dregið af
svona vinnubrögðum?“
Júlíus Vífill setur einnig spurn-
ingarmerki við skipulag fundarins.
„Það er spurning hversu lýðræð-
isleg uppsetning á fundinum er
þegar þeir fimm frummælendur
sem eru settir fram tala allir fyrir
hugmyndinni þegar ljóst er að um
hana eru mjög skiptar skoðanir.
Þarna talar t.d. formaður hverfis-
ráðs, sem er varaborgarfulltrúi
Samfylkingar og formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs,“ segir
hann.
Segir fundinn sýndarsamráð
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa yfir óánægju með
vinnubrögð meirihlutans vegna þrenginga við Grensásveg
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Landsfundur Samfylkingarinnar
hefst í dag á Hótel Sögu og byrjar
setningarhátíð klukkan 16.30 með
ræðu formanns. Kosning formanns
hefst klukkan 17.30 og verða niður-
stöður kynntar kl. 19.
Árni Páll Árnason var kosinn for-
maður Samfylkingarinnar í febrúar
2013 og tók við af Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, en mikil endurnýjun varð þá
í forystu flokksins. Árni Páll hlaut
61,8% atkvæða, en mótframbjóðandi
hans, Guðbjartur Hannesson, hlaut
37,6% gildra atkvæða. Katrín Júlíus-
dóttir var kjörin varaformaður eftir
kosningu á milli hennar og Oddnýjar
G. Harðardóttur
Á heimasíðu Samfylkingarinnar
kemur fram að Margrét Sverris-
dóttir gefur ekki kost á sér á nýjan
leik sem formaður framkvæmda-
stjórnar. Þá býður ritari Samfylk-
ingarinnar síðustu tvö ár, Arnar
Guðmundsson, sig ekki fram.
Formannsslagur í Samfylkingunni
Úrslitin ljós
klukkan 19 í kvöld
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir
að flokkurinn hafi ekki náð sér á
strik eftir síðustu kosningar og geti
auðveldlega náð í fylgi – það hafi
sannast í borgarstjórnarkosning-
unum.
„Ég ákvað framboðið klukkan
fimm (í gær). En ákvörðunin á sér
töluverðan aðdraganda því fólk
hefur verið að hafa samband við
mig og símtölunum hefur fjölgað
undanfarna daga. Þetta er lítill fyr-
irvari en nægur,“ segir Sigríður.
Hún segir að þeim sem hafi haft
samband við sig finnist doði yfir
Samfylkingunni. „Það er eðlilegt að
í stjórnmálaflokki sem er lýðræðis-
leg stofnun sé notast við leikreglur
lýðræðisins.
Ég vil að við skerpum á þessum
klassísku mál-
um eins og
kjara- og hús-
næðismálum.
En líka að við
opnum svolítið
faðminn sem
nútímalegur
jafnaðar-
flokkur.“
Hún telur að
flokkurinn hafi ekki náð sér á strik
eftir kosningar. „Ég tel að við eig-
um ekki að vera hrædd við að gera
breytingar ef við teljum að það geti
aukið fylgi okkar þannig að jafn-
aðarstefnan verði sterkari og við
komumst í aðstöðu til að móta
framtíðina.“
benedikt@mbl.is
Hræðumst ekki breytingar
SIGRÍÐUR INGIBJÖRG INGADÓTTIR
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, segir að í sinni for-
mannstíð hafi Samfylkingin haldið
þeirri breidd sem hún var stofnuð
utan um og að hún sé heimkynni
fólks með ólík viðhorf. „Ég held að
það sé lykillinn að því að Samfylk-
ingin haldi stöðu sinni sem burðar-
flokkur í íslenskum stjórnmálum.
Síðan er það landsfundarfulltrúa
að meta hvernig þeir vilja ráðstafa
atkvæði sínu.“
Árni Páll segir að Samfylkingin
hafi verið að sækja í sig veðrið.
„Við fengum ágætis niðurstöðu í
síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Við höfum gegnumsneitt verið að
mælast með 50% meira fylgi en
við fengum í síðustu þingkosn-
ingum og ég held að menn megi nú
ekki fara á
taugum þótt
það komi ein
könnun sem
sýnir Pírata
sem stærsta
flokk landsins.
Sú könnun sýn-
ir ákveðna gerj-
un í stjórnmál-
unum sem
snertir alla flokka og lykilatriðið
fyrir Samfylkinguna er að halda
sinni sýn á leiðina áfram og missa
ekki sjónar á því að þetta er lang-
tímaverkefni. Traust sem glatast
verður ekki endurheimt í einu vet-
fangi. Það tekur tíma og við erum
á góðri leið,“ segir Árni Páll.
hjortur@mbl.is
Lykilatriði að halda sinni sýn
ÁRNI PÁLL ÁRNASON
Árni Páll
Árnason