Morgunblaðið - 20.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.03.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 Stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir við fjögurra hæða fjöl- býlishús á Barónsstíg 28 í Reykja- vík fyrir sumarið. Nýja húsið verður steinsnar frá Sundhöll Reykjavíkur og á grónum stað. Húsið verður fjórar hæðir og með risi. Á teikningunni hér fyrir ofan má sjá að húsið verður byggt upp að Njálsgötu 64. Í kjallara verða geymslur og hjóla- og vagnageymsla. Þá verður þar sameiginlegt þvottahús. Hvorki verða bílastæði á lóð né bílakjallari. Að sögn verktaka verður húsið byggt úr forsteyptum einingum og er framkvæmdatími áætlaður að- eins sex mánuðir. Húsið verður með 8 íbúðum og er 406 fermetrar. Átta smáíbúðir í húsinu Þar af eru íbúðirnar tæpir 300 fermetrar. Þær verða því litlar og herma heimildir blaðsins að meðal- stærðin verði 35-40 fermetrar. Mið- að við fermetraverð nýrra fjölbýlis- húsa í 101 Reykjavík má áætla að söluverðið verði yfir vel á annað hundrað milljónir króna. Í fundargerð byggingarfulltrúa í Reykjavík 17. mars segir að flutn- ingur húss númer 28 á Barónsstíg hafi verið samþykktur. Verður hús- ið, sem er frá 1905 og friðað, flutt á óbyggða lóð á horni Þrastargötu og Suðurgötu í Reykjavík (sjá mynd). Á nýja staðnum verður steyptur nýr kjallari undir gamla húsið. Byggingarfulltrúi heimilar að byggð verði steinsteypt viðbygging á vesturgafli hússins. Tölvuteikning/ARK Þing Í 101 Reykjavík Svona mun nýr Barónsstígur 28 koma til með að líta út. Morgunblaðið/Golli Verður flutt Barónsstígur 28 í dag. Á horni Lóð fyrir Þrastargötu 1. Reisa fjölbýlishús á Barónsstíg í Reykjavík Baldur Arnarson baldura@mbl.is Raunverð íbúða í fjölbýli á höfuð- borgarsvæðinu er nú svipað og í mars 2005. Það er hins vegar 28% lægra en þegar það náði sögulegu hámarki í október 2007. Þetta má lesa úr greiningu Lands- bankans á þróun raunverðs sem gerð var að beiðni Morgunblaðsins. Hagfræðideild Landsbankans spáir 9,5% hækkun í ár, 6,5% hækk- un 2016 og 6,2% hækkun 2017. Tekið skal fram að þetta eru hækkanir á nafnverði, án tillits til verðbólgu. Raunverð fasteigna á árinu 2006 varð hæst í mars það ár og var það þá tæplega 17% hærra en nú. Gangi spá Landsbankans eftir styttist í að raunverðið verði orðið jafn hátt og 2006. Telja sérfræðingar bankans að meiri eftirspurn en framboð muni ýta undir hækkanir. Flest bendir til að áfram verði framboðsspenna á markaðnum og að óbreyttu sé langt í að uppsafnaðri þörf fyrir húsnæði hafi verið eytt, áfram muni skorta húsnæði. Ekki gengið á uppsafnaða þörf Samkvæmt nýrri áætlun Samtaka iðnaðarins (SI) verður þannig lokið við 1.600 íbúðir á höfuðborgarsvæð- inu í ár, 1.464 á næsta ári, 1.826 árið 2017 og 2.362 íbúðir árið 2018. Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SI, segir þetta byggt á fréttum og gögnum frá sveitarfélögum. Reynt sé að áætla hvað raunhæft sé að lokið verði við margar íbúðir á tímabilinu. „Þessi ár verður um það bil byggt fyrir þörf þessara ára. Það þarf hins vegar að hafa í huga að það er uppsöfnuð þörf. Það verður því ekki gengið á hana með þessari uppbyggingu.“ Þróun íbúafjöldans mun hafa mik- il áhrif á eftirspurnina og er höfuð- borgarsvæðið þar leiðandi á Íslandi. Á töflunni hér til hliðar hefur hlut- fall höfuðborgarsvæðisins af íbúa- fjölguninni 2015 verið yfirfært á spá Hagstofunnar til 2020. Þetta hlutfall er valið til að leggja fram varfærið mat en það er hið lægsta árin 2011 til 2015. Sviptingar urðu þá í íbúaþró- un, m.a. vegna brottflutnings. Að sögn Guðjóns Haukssonar, sérfræðings á mannfjöldadeild Hag- stofu Íslands, telst það varfærin nálgun út frá sögunni að miða við að 73,7% íbúafjölgunarinnar verði á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Þriðji liðurinn sem mun auka eftirspurn eftir húsnæði er spáð fjölgun ferðamanna. Hún mun að óbreyttu auka eftirspurn eftir leigu- húsnæði. Þá fer hluti uppbyggingar fram á þéttingarreitum sem felur í sér niðurrif húsa. Nýjar íbúðir eru því ekki alltaf hrein viðbót. Íbúðalán heimilanna lækka Í janúar voru ný óverðtryggð íbúðalán heimila með breytilegum vöxtum, að frádregnum upp- greiðslum, aðeins um 5 milljónir króna. Til samanburðar voru ný óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum, að frádregnum upp- greiðslum, -315 milljónir. Í verð- tryggðum lánum voru þessar tölur 1.666 milljónir og -2.485 milljónir. Ný óverðtryggð íbúðalán, að frá- dregnum uppgreiðslum, voru því -310 milljónir í janúar og ný verð- tryggð íbúðalán, mínus upp- greiðslur, -819 millj. Uppgreiðslur voru því hærri en ný útlán og eru íbúðalán heimila því að lækka. Er hér horft til innlánsstofnana og koma verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða til viðbótar. Íbúðaverð rýkur upp  Verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu nú svipað og 2005  Margir þættir leggjast á eitt um að ýta undir eftirspurn Þróun mannfjöldans 2010-2020 Landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið* 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Áætluð fjölgun 2015-20 Landið allt 317.520 318.470 319.560 321.890 325.620 329.040 333.480 337.281 341.282 345.605 349.817 Fjölgun milli ára 950 1.090 2.330 3.730 3.420 4.440 3.801 4.001 4.323 4.212 24.197 Höfuðb. svæðið 200.800 202.370 203.570 205.740 208.710 211.230 214.502 217.302 220.250 223.436 226.539 Fjölgun milli ára 1.570 1.200 2.170 2.970 2.520 3.272 2.801 2.948 3.185 3.104 17.829 Hlutfall af fjölgun 165,3% 110,1% 93,1% 79,6% 73,7% 73,7% 73,7% 73,7% 73,7% 73,7% *Heimildir: Mannfjöldi eftir sveitarfélögum, kyni, ríkisfangi og ársfjórðungum 2010-2014. Mannfjöldaþróun á Íslandi 1841-2061, miðspá. Hlutfall höfuðborgarsvæðisins af mannfjölguninni 2015 er yfirfært á árin 2016-2020. Raunverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu 1994-2015 okt. ‘07: 243,0 feb. ‘15: 189,2 300 250 200 150 100 50 0 ja n. ‘9 4 se p. ‘0 4 m aí ‘9 9 ja n. ‘1 0 se p. ‘9 4 m aí .‘ 05 ja n. ‘0 0 se p. ‘1 0 m aí ‘9 5 ja n. ‘0 6 se p. ‘0 0 m aí .‘ 11 ja n. ‘9 6 se p. ‘0 6 m aí .‘ 01 ja n. ‘1 2 se p. ‘9 6 m aí .‘ 07 ja n. ‘0 2 se p. ‘1 2 m aí ‘9 7 ja n. ‘0 8 se p. ‘0 2 m aí .‘ 13 ja n. ‘9 8 se p. ‘0 8 m aí .‘ 03 ja n. ‘1 4 se p. ‘9 8 m aí .‘ 09 ja n. ‘0 4 se p. ‘1 4 Heimild: Landsbankinn Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Vesti 6.900 kr. Str. M–XXXL Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Flottir vor- og sumarkjólar komnir KRINGLUKAST 20% afsláttur af öllum vörum Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum eiga greiðslur inn á lán vegna viðbótarlífeyris- sparnaðar þátt í að ný íbúðalán halda ekki í við uppgreiðslur í fyrsta mánuði ársins. Hjá Seðlabankanum fengust líka þær upplýsingar að upp- greiðslurnar torvelduðu saman- burð á nýjum verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Unnið er að öflun viðbótar- gagna til að leiðrétta fyrir við- bótargreiðslunum. Þá fengust þær upplýsingar að þessi skilgreining á nýjum íbúðalánum væri ágæt við- miðun um eftirspurnina. Ástæð- an er sú að hér er miðað við út- lánin þegar búið er að endur- fjármagna kaup á fasteign. Til dæmis þegar óverðtryggt lán er tekið til að kaupa fasteign sem verðtryggt lán hvílir á. Það sem eftir stendur af óverðtryggða láninu er hið hreina nýja útlán. Minni en uppgreiðslur NÝ ÚTLÁN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.