Morgunblaðið - 20.03.2015, Síða 13

Morgunblaðið - 20.03.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, fer í dag í vinnuferð til Kína ásamt nokkrum starfsmönnum ráðuneytisins og fleirum. Einnig verða í för aðilar frá Marel og Orku Energy. Ráðherrann mun halda fundi með ráðherrum menntamála, menningarmála, vís- inda- og rannsókna og undirrita viljayfirlýsingu um samstarf ríkjanna á sviði vísinda- og rann- sókna með þeim síðast nefnda, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Auk þess mun hann eiga fundi með framkvæmdastjóra íþróttamála kínverska ríkisins og framkvæmda- stjóra náttúruvísindastofnunar Kína og verður við það tilefni undirrit- aður samningur um samstarf milli þeirrar stofnunar og Rannís. Þá mun ráðherrann og sendinefndin hitta forsvarsmenn heimskautarann- sóknastofnunar Kína og stofnunar sem fer með málefni hafsins. Ráðherrann heimsækir Hebei og Tsinghua háskólana í Peking ásamt rektorum Háskóla Íslands, Háskól- ans í Reykjavík og Listaháskóla Ís- lands, forstöðumanni Rannís og fleirum. Þá verður heimsókn á jarð- hitasvæði í nágrenni Peking og fund- ur með borgarstjóra. Ráðherra í vinnuferð til Kína  Samstarf í vísind- um og rannsóknum Morgunblaðið/Árni Sæberg Til Kína Illugi Gunnarsson heim- sækir m.a. háskóla í Peking. Í dag, föstudaginn 20. mars nk. frá kl. 14-17, fer fram háskólakynn- ingin „College Day Scandinavia – Reykjavík“ í Háskólanum í Reykja- vík. Fulltrúar 18 bandarískra há- skóla verða á staðnum til að kynna háskólana og svara spurningum sem snúa að vali á erlendum háskól- um, inntökuskilyrðum og mögu- legri fjárhagsaðstoð. Kynningin er bæði ætluð framhaldsskólanemum sem vilja kynna sér grunnhá- skólanám og einnig þeim sem farnir eru að huga að meistara- eða dokt- orsnámi. Kynningin er ekki síður mikilvægt tækifæri fyrir íslenska framhaldsskóla og háskóla að koma á framtíðarsamstarfi við banda- ríska skóla, segir í tilkynningu. Að- gangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram. Skráningin fer fram á heimasíðu http://collegedayscandinavia.org. Háskólanám í Bandaríkjunum kynnt Íslendingum Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þrjú stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið hafa tekið höndum saman og leggja fram sameiginlega kröfugerð í komandi kjarasamningsviðræðum, sam- kvæmt því sem fram kom í frétt á heimasíðu BSRB í gær. Þetta eru SFR, stéttarfélag í al- mannaþjónustu, sem semur fyrir um 3.500 starfsmenn, Landssam- band lögreglumanna, með rúmlega 600 starfsmenn, og Sjúkraliðafélag Íslands, með um 1.100 starfsmenn hjá ríkinu. Samstarf Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, þegar hann var spurður hvers vegna þessi þrjú fé- lög innan BSRB tækju sig út úr heildarsamtökunum, að nánast allt- af frá því að stéttarfélög innan BSRB fengu samningsréttinn hefðu félögin hvert og eitt samið fyrir sig. „Það sem er óvenjulegt er að þrjú stærstu félög ríkisstarfs- manna innan BSRB taki sig saman og standi sameiginlega að kröfu- gerð gagnvart ríkinu,“ sagði Árni Stefán. Hann segir að ástæður þessa samstarfs félaganna þriggja séu þær að forsvarsmenn félaganna eigi von á því að erfitt verði að sækja þær kjarabætur sem þeir telji að þurfi að sækja í kjarasamn- ingunum. „Þess vegna erum við að reyna að mynda stærri og öflugri einingu ríkisstarfsmanna í kjara- viðræðunum,“ sagði Árni Stefán. Fagnar samstarfi Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, kvaðst í samtali við Morg- unblaðið í gær fagna því samstarfi sem félögin þrjú hefðu ákveðið að eiga í kjarasamningunum. „Við höf- um verið að vinna að því hér hjá BSRB að aðildarfélögin okkar sam- einist í viðræðum gagnvart við- semjendum okkar, ríkinu. Þetta eru þrjú stærstu félögin okkar, sem sameinast í viðræðum við fjár- málaráðuneytið. Það er mjög gott og ég vona að þetta gerist í aukn- um mæli hjá aðildarfélögum okkar, að þau sameinist í viðræðum gagn- vart ríki, sveitarfélögum og Reykjavíkurborg,“ sagði Elín Björg. Þrjú félög innan BSRB semja saman við ríkið  Hafa áður gert samninga hvert í sínu lagi  Samtals yfir 5.000 félagar í félögunum þremur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.