Morgunblaðið - 20.03.2015, Side 34

Morgunblaðið - 20.03.2015, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 Valgarður Egilsson læknir var staddur á Landspítalanum þeg-ar blaðamaður náði tali af honum „Ég er með annan fótinnhérna ennþá, hef lengst af unnið við krabbameinsrann- sóknir. Núorðið hef ég leyft mér að sinna meir skrifum og farar- stjórn. Nýjasta bókin kom út fyrir síðustu jól, og heitir Steinaldar- veislan, minningabók með ívafi náttúruheimspeki. Núna vinn ég að smáverki sem á að heita: Gömul tíðindi af vatnasviði Ölfusár. Svo er ég með ævintýr í anda Bakkabræðra. En mig langar til að snúa mér að leikhúsinu aftur. Ég er fæddur á Grenivík. Fæddist á vorjafndægri, þá er dagsbirta jafnlöng hjá öllum jarðarbúum, 12 klukkustundir. Birtunni er mis- skipt í dag – út af sólmyrkvanum. Í tilefni dagsins ætla ég að hafa svolitla samkomu fyrir nánustu ættingja heima hjá mér.“ Eiginkona Valgarðs er Katrín Fjeldsted læknir og forseti evr- ópsku læknasamtakanna. Börn þeirra eru Jórunn Viðar, Vésteinn og Einar Steinn; Einar Véstein misstu þau 5 ára gamlan í umferðar- slysi. Fyrir átti Valgarður dóttur, Arnhildi. Valgarður hefur verið leiðsögumaður undanfarin ár fyrir Félag eldri borgara og farið þá fjögurra daga ferð yfir Sprengisand, Flat- eyjardal og út í Fjörður. Á heimleiðinni er komið við á Siglufirði. Valgarður annast einnig fararstjórn fyrir Ferðafélag Íslands og fer í sumar í Náttfaravíkur og á Flateyjardal. Valgarður Egilsson er 75 ára í dag Rithöfundur Valgarður er ekki hættur læknisstörfum en sinnir meira skrifum í dag, sem eru af ýmsum toga, frá ljóðum til sagnfræði. Á afmæli á jafn- dægri að vori Morgunblaðið/Ómar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Ewa Rós Olafsdóttir Duda fæddist 25. september 2014. Hún vó 2.780 g og var 45 cm löng. Foreldrar hennar eru Natalia Klaudia Duda og Olaf Örn Jónsson. G uðrún Ólafía Jónsdóttir fæddist 20. mars 1935 á Kvennaskólanum á Blönduósi en ólst upp á Þingeyrum í Húnaþingi til 7 ára aldurs er hún flutti til Reykjavíkur. „Fram á unglingsár dvaldi ég þó alltaf í sveitinni á sumr- in, frá miðjum maí og fram yfir rétt- ir, í yndislegri sambúð við náttúr- una, ketti, hunda og hesta. Á Þingeyrum skynjaði ég einnig hinn stóra menningarheim sem fólst í því að ganga um á klausturjörðinni með öllum sínum menningarminjum, kirkjunni og öllum hinu merku grip- um utan úr heimi sem hana prýddu. Þarna vaknaði áhugi minni á gildi menningarminja og gamalla húsa.“ Starfsferill Eftir stúdentspróf frá MR 1955 hélt Guðrún til Kaupmannahafnar og hóf nám í arkitektúr árið 1958, eftir að hafa lagt stund á nám í jarð- fræði um skeið. Frá arkitektaskól- anum útskrifaðist hún 1963 og í framhaldinu vann hún á teiknistofu prófessors Viggo Möller Jensen og Tyge Arnfred til ársins 1966, jafn- hliða kennslu við arkitektaskólann á sama tíma. „Svo flutti ég til Íslands og rak ásamt Stefáni Jónssyni og Knúti Jeppesen teiknistofuna Höfða til ársins 1979. Það ár tók ég við stöðu forstöðumanns Þróunarstofn- unar Reykjavíkur í eitt ár en varð síðan forstöðumaður Borgar- skipulags Reykjavíkur til ársins 1984. Frá þeim tíma hef ég rekið eig- in teiknistofu sem hefur, í gegnum tíðina, unnið að mjög mörgum og áhugaverðum verkefnum bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Í þeim efnum hefur Djúpavogs- hreppur sérstöðu, því þar hef ég Guðrún Jónsdóttir arkitekt – 80 ára Guðrún og börn Guðrún, Stefán, Anna Salka, Hulda og Páll í garðinum á Bergstaðastræti hjá Guðrúnu. Áhugi á gömlum húsum vaknaði á Þingeyrum Í Borgarfirði Guðrún stödd á Grjót- eyri en þar á hún sumarbústað. Reykjavík Laura Amelia Waszczuk fæddist 20. september 2014. Hún vó 3.605 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Barbara Wiktoria Duda og Tomasz Adam Waszczuk. Nýir borgarar Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! afsláttur Spil er frábær gjöf Sendum um allt land spilavinir.is Nýtt spurningaspil á íslensku. Við aðstoðum þig við að velja spilin og pökkum þeim inn í gjafapappír fyrir þig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.