Morgunblaðið - 20.03.2015, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú fyllist andúð í garð einhvers og
finnst að gerðar séu meiri kröfur til þín en
annarra. Að hitta nýtt fólk laðar það besta
fram í þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur átt von á skyndilegum deil-
um í dag. Skoðaðu málin frá fleiri en einni
hlið því verkin tala sínu máli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sláðu á þær raddir innan fjölskyld-
unnar sem segja þig yfirdrifinn og óútreikn-
anlegan. Hvíldu þig og endurnærðu líkama
og sál. Sennilega langar þig til að kaupa
eitthvað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert eitthvað líflaus þessa dagana
og þarft að leggja af mörkum til að koma
þér í gang. Taktu áhættu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Velkomin/n á fætur á degi mótsagn-
anna. Aukin bjartsýni gerir árið svo enn
betra. Einhver vandræðagangur er á sam-
skiptum þínum við aðra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft ekki að hafa neitt sam-
viskubit yfir því þótt þú viljir ekki segja vin-
um og vandamönnum allt sem þér liggur á
hjarta. Vinna þín er þúsund sinnum betri
núna en þegar þú byrjaðir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú verslar mikið þessa dagana og
stendur í alls kyns braski. Bæld sjálfstjáning
kveikir eld sköpunarinnar innra með þér.
Sýndu fjölskyldu þinni þolinmæði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að snúa þér að þeim
verkefnum sem þú hefur látið dragast. Með
því að gaumgæfa það tekur þú jafnframt af-
stöðu til lífsskoðana þinna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur ekkert velt peningamál-
unum fyrir þér í langan tíma og eitt og ann-
að hefur þar farið úrskeiðis. Byrjaðu á heim-
ilinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu viss um að þær miklu
væntingar sem þú gerir til ástarinnar séu
góðar fyrir þá sem þú elskar en ekki bara
þig. Einbeittu þér að pípulögnum, úrgangi
og geymslusvæðum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki láta aðra þagga niður í þér
þegar þú vilt tjá tilfinningar þínar í orðum.
Haltu þínu striki og þá mun allt fara vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Að þurfa að hafa rétt fyrir sér er
hættulegt í versta falli og leiðigjarnt í því
versta. Farðu varlega í að samþykkja nokk-
uð.
Þessi limruleikur byrjaði laustfyrir klukkan átta á þriðju-
dagskvöld, þegar Sigrún Haralds-
dóttir skrifaði í Leirinn:
Oft var hann Alfreður rásandi
og einhverju úr nösinni blásandi
en sæi hann Binnu
þá svarthærðu kvinnu
þá varð hann fljótt móður og másandi.
Ekki leið á löngu áður en Friðrik
Steingrímsson lét til sín heyra:
Á söngmótum sætir hann lagi,
og syngur þó hald’ann vart lagi.
Fattur sig reigir
og rogginn sig teygir,
hann er bara alls ekk’í lagi.
Og upp úr tíu getur Sigrún þess
að Sólimann hafi víst verið á þess-
ari samkomu:
Á tónleikum Sólimann Svásan,
söng bæði og æpti sig hásan,
en Einhildur Jó,
að honum hló,
óhræsis leiðinda pjásan.
Næsta morgun bættist Sigurlín
Hermannsdóttir í hópinn og sagði:
„Og gott ef Áslákur var ekki þarna
líka.“
Lási var lastanna gripur
og lostugur á honum svipur.
Á fýsnanna svelli
hann féll oft með skelli
því syndin er lævís og lipur.
Og upp úr hádeginu var röðin
enn komin að Friðriki:
Og Jóhann sem jafnan er hljóður
hann jóðlaði þar eins og óður.
En miðað við hann
þann hávaða mann,
ja, þá er nú Guðmundur góður.
Undir klukkan þrjú kom Sigrún
með athugasemd: „þetta voru nú
meiri tónleikarnir“:
Sívert var sérlegur bassi
og sá var nú alls enginn trassi,
hann söngsins var þjónn
og hans sætasti tónn
kom úr hans kúnstuga rassi.
Undir kvöldmat heyrðist í Frið-
riki norðan úr Mývatnssveit:
Svo var það tenórinn Tommi
tútinn af ofdrykkju á rommi,
með öskur svo skræk,
sem ískur í „mæk“.
Hann er víst hommi og kommi.
Klukkustund síðar sagði Sigrún:
Þarna var það söngkonan Salka,
sem bjó með Tómasi alka,
á Tekíla dreypti
og tönnurnar gleypti,
tileygð og farin að kalka.
Áfram hélt limruleikurinn og
verður því lýst í Vísnahorni á
mánudag.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limra kviknar af limru
Í klípu
„ÞETTA VAR ÖRLÍTIL SNYRTING.
AFGANGURINN VAR BARA DÓMÍNÓ-
ÁHRIFIN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞÚ HEFÐIR
GRÓÐURSETT ÞAÐ OF NÁLÆGT HÚSINU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera með stjörnur
í augunum... á þína
eigin ábyrgð!
HVAÐ ER
KLUKKAN?
HVAÐ SEGIRÐU
UM SMÁ
HAMARS-
HÚMOR?
ÞETTA VAR SMÁ
KLUKKU-HÚMOR
FYRIRGEFÐU, ÉG
ER EKKI MEÐ
ARMBANDSÚR
Á MÉR.
NÚ ER NÓG
KOMIÐ,
AÐKOMUMAÐUR!!
AF HVERJU VERÐ ÉG
ALLTAF HRÆDDUR ÞEGAR
ÉG TALA VIÐ FRANSMENN?
MÉR ÞÆTTI ÞAÐ BETRA EF
ÞÚ MYNDIR SLEPPA ÞVÍ,
GAMLI VIN...
ÉG ÆTLA AÐ LEMJA ÞIG,
SKERA ÞIG, SPARKA Í ÞIG
OG KASTA ÞÉR Í ÁNA!!
Víkverji heyrir ýmsar kenningarum ólíkustu mál, eins og gengur,
og ein sú besta sem hann hefur
heyrt að undanförnu fjallar um
hvers vegna borgarstjóri hefur eins
mikinn áhuga á því að fá mosku í
borgina og raun ber vitni.
x x x
Varla hefur farið framhjá nokkr-um manni að borgarstjóri vinn-
ur markvisst að því að útrýma bílum
úr Reykjavíkurborg. Í þeim tilgangi
hefur hann látið setja púða á götur
um alla borg, fækkað akreinum og
sett upp fuglahús í staðinn, þrengt
götur og látið koma fyrir hjólastíg-
um, þar sem bílum var áður ekið eða
þeim lagt. Hann hefur hætt að þrífa
göturnar, væntanlega til þess að
svifrykið fái þrifist, ekki látið gera
við þær og tekið fyrir nýfram-
kvæmdir. Þar sem veitt hefur verið
leyfi fyrir því að reisa fjölbýli og hót-
el hefur fylgt sú kvöð að bílastæði
verði helst ekki á viðkomandi lóðum
auk þess sem bílastæðum hefur
markvisst verið fækkað.
x x x
Þrátt fyrir hetjulega framgönguborgarstjóra á móti bílum í
borginni hefur bílasala tekið kipp og
er gert ráð fyrir því að hún aukist
um 15% á líðandi ári. Sala á fólks-
bílum var 25% meiri í janúar en á
sama tíma í fyrra og salan var 69%
meiri en hún var í desember.
Það stefnir í óefni og hver heilvita
maður sér að ef fram heldur sem
horfir verða bílar á öllum götum
borg-arinnar áður en langt um líður.
En borgarstjóri á ráð undir rifi
hverju. Og þá kemur að kenningunni
góðu.
x x x
Þar sem aðeins ein leið er inn íborgina er tilvalið að setja þar
upp mosku og með því að fá fjár-
magn frá Sádi-Arabíu til þess að
standa undir kostnaði er áréttað
hvaða reglur gilda í umferðinni. Að
sjálfsögðu þær reglur sem gilda í
Saudi-Arabíu, þar sem konum er
bannað að sitja undir stýri. Með einu
pennastriki getur borgarstjóri því
fækkað ökumönnum, og þar með bíl-
um, um 50% í borginni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En mín gæði eru það að vera nálægt
Guði, ég gerði Drottin að athvarfi
mínu og segi frá öllum verkum þín-
um. (Sálmarnir 73:28)