Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 4

Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur | Sími 514 1400 | sumarferdir.is SÓLARHRINGSTILBOÐ á valdar brottfarir í sumar. Hefst á mánudaginn 13. apríl kl. 12:00. Nánar á Sumarferdir.is SÓLARHRINGUR SUMARFERÐA SVIÐSLJÓS Malín Brand malin@mbl.is Fjölmenni hlýddi á ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokks- ins, í gær á fyrsta degi flokksþings framsóknarmanna. Töluðu margir um að ræða formannsins hefði verið tíma- mótaræða og ríkti almenn ánægja með innihald hennar. Eftir að Sigmundur Davíð hafði rætt um árangur síð- ustu missera boðaði hann ýmsar hugmyndir og tillögur og má þar nefna stofnun alþjóðlegrar björgunarmið- stöðvar á Íslandi, stofnun ríkisolíufélags, breytingar á skráningarreglum kaupskipa, landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða í öllum byggðum landsins og síðast en ekki síst hið stóra verkefni sem framundan er við losun fjármagnshafta. Efnahagslegt svigrúm Segja má að þungamiðjan í ræðu formannsins hafi ver- ið efnahagslegt svigrúm sem skapast myndi við losun fjármagnshafta. „Stærsta hindrunin við losun hafta hef- ur verið hin óuppgerðu slitabú föllnu bankanna,“ sagði Sigmundur Davíð og bætti því við að gjaldþrot fjármála- fyrirtækjanna þriggja hefðu komist á lista yfir stærstu fyrirtækjagjaldþrot í heimssögunni. Eftir stæðu kröf- urnar á slitabúin og eignir upp á þúsundir milljarða. „Þessar kröfur hefði ríkið getað keypt að miklu leyti á hrakvirði á sínum tíma, eins og við framsóknarmenn lögðum til. Þá væri landið löngu búið að vinna sig út úr öllum efnahagsþrengingum,“ sagði hann. Hvernig losa skal höftin Sigmundur Davíð sagði að til að hægt væri að taka næstu skref í undirbúningi fyrir losun hafta hefði verið nauðsynlegt að skýra afstöðuna til umsóknarinnar um aðild að Evrópusambandinu. „Nú liggur hún fyrir og geta menn tekið ákvörðun út frá því,“ sagði hann. Áætlun um losun hafta yrði því hrint í framkvæmd áð- ur en þingið lyki störfum. „Sérstakur stöðugleikaskattur mun þá skila hundruðum milljarða króna og mun ásamt öðrum aðgerðum gera stjórnvöldum kleift að losa um höft án þess að efnahagslegum stöðugleika verði ógnað.“ Eðli og umgjörð hins sérstaka stöðugleikaskatts var ekki rædd frekar í ræðunni en formaðurinn minnti á að með aðgerðum til losunar hafta yrði til efnahagslegt svigrúm sem numið gæti hundruðum milljarða. Sigmundur vék einnig að vinnubrögðum erlendu kröfuhafanna. Sagði hann flestar ef ekki allar stærri lög- mannsstofur landsins hafa unnið fyrir kröfuhafana eða fulltrúa þeirra. Það hefðu einnig helstu almannatengsla- fyrirtæki landsins gert. Sagði hann vogunarsjóði í New York og London marga hverja þekkta fyrir að fylgja hagsmunum sínum mjög fast eftir. Umsvifin væru „nán- ast óhugnanleg“ og ómögulegt væri að segja til um hversu langt þau næðu. Nýlega hefðu fréttir hermt að kröfuhafar hefðu keypta hagsmunagæsluþjónustu hér á landi fyrir 18 milljarða króna á undanförnum árum. Græn orka mikil tekjulind Eftirspurn eftir grænni orku er eitt af því sem Sig- mundur Davíð nefndi sem mikla tekjulind og samfara eftirspurninni myndi hagnaður Landsvirkjunar aukast. „Fyrirtækið hefur verið að greiða upp skuldir sínar af miklu kappi svo að vonir standa til að Landsvirkjun geti á næstu árum farið að skila ríkissjóði tugum milljarða í arð árlega,“ sagði Sigmundur ennfremur. Landsvirkjun skili milljörðum  Sérstakur stöðugleikaskattur skili hundruðum milljarða króna  Áætlun um losun hafta hrint í fram- kvæmd fyrir þinglok  Íslenskt hagkerfi úr gíslingu  Fjölmenni við setningu flokksþings Framsóknar Morgunblaðið/Ómar Flokksþing Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, flutti setningarræðu flokksþingsins. Þingmenn Jóhanna María Sigmundsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Elsa Lára Arnardóttir voru kát á flokksþinginu í Gullhömrum í gær. Þingmaðurinn Vigdís Hauksdóttir var ein þeirra er tóku til máls á flokksþingi framsóknarmanna í almennu um- ræðunum í gær. Mál sitt hóf hún á því að brýna mik- ilvægi flokksþinga fyrir viðstöddum. „Þetta má ekki vera miðjumoð,“ sagði Vigdís og uppskar mikinn fögnuð og lófaklapp viðstaddra. Sagði hún brýnt að samgöngu- mál væru í lagi á landinu og nefndi þar sæstreng, ljós- leiðara, vegi og siglingar. Á það þyrfti flokkurinn að leggja áherslu á síðari hluta kjörtímabilsins. Flugvöllurinn í Vatnsmýri er Vigdísi hugleikinn, rétt eins og mörgum öðrum sem stigu í ræðustól flokksins í gær. „Það er lítil þekking á flugmálum í innanríkismálum og tímabært að setja mini- flugmálaráðuneyti á stofn,“ sagði Vigdís skelegg þegar ræðutímanum var við það að ljúka og að því sögðu fögnuðu viðstaddir. Mini-flugmálaráðuneyti komið á stofn Nokkrir flokksmenn ræddu möguleika á að Landsbank- inn yrði gerður að samfélagsbanka í anda slíkra banka í Þýskalandi. Bankinn yrði alfarið í almannaeigu og þótti nokkrum mælenda tilvalið að Framsóknarflokkurinn stæði að slíkri tillögu. Ljóst var að breytt peningakerfi átti hug margra og spunnust umræður um hvernig hægt væri að ráðast að rót sjálfs verðbólguvandans með breyttu peningakerfi. Sögðu sumir að of mikið peningamagn væri í umferð en takmarkað hvaða vörur væri hægt að kaupa með þeim. Frosti Sigurjónsson fjallaði stuttlega um mikilvægi þess að Ísland ætti sér sjálfstæðan gjaldmiðil. „Krónan er forsenda sjálfstæðis og þess að við get- um haft stjórn á eigin auðlindum,“ sagði Frosti og undirstrikaði mikilvægi þess að gjaldmiðlinum væri stýrt „af viti.“ Landsbankinn verði samfélagsbanki Náttúrupassinn og framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi hvíldi þungt á mörgum og ekki voru allir á eitt sáttir um kosti hugmynda sem lagðar hafa verið fram. Þórey Anna Matthíasdóttir kom með innlegg í umræðuna og sagði að ferðamáladrög flokksins væru illa unnin og gera þyrfti þar bragarbót á. „Áttatíu prósent ferðaþjónustufyrirtækja eru með tíu starfsmenn eða færri,“ sagði hún og bætti við að of flókið regluverk kringum ferðaþjónustuna væri til þess fallið að stuðla að svartri atvinnustarfsemi og hvetti jafnvel til skattsvika. Páll Sigurjónsson talaði um náttúrupassann sem hann kvaðst hafa margt við að athuga. Sagði hann það vafa undirorpið hvort skynsamlegt væri að beina þunganum markvisst á einstaka ferðamannastaði. Svört atvinnustarfsemi og náttúrupassi Unga fólkið í flokknum lét til sín taka í almennu umræð- unum í gær. Yngsti þingmaðurinn, Jóhanna María Sig- mundsdóttir, tók til máls og sagði að ekki mætti gleyma unga fólkinu sem væri að koma úr námi og taka sín fyrstu skref í íbúðarkaupum og atvinnulífinu. Hún sagði brýnt að bættu fyrirkomulagi yrði komið á námslán og að gert yrði endurmat á neysluviðmiðum. Elsa Lára Arnardóttir ræddi um afnám verðtrygg- ingar og sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með drög í tillögum flokksins. Hún sagði orðalagið um afnám verð- tryggingar fullveikt og þyrfti að skerpa þar á. „Það ætti að setja þak á eldri verðtryggð lán,“ sagði hún og að jafnframt þyrfti að dreifa ábyrgð- inni á eldri lánum og líta yrði til beggja hópa um afnám. Unga fólkið, verðtrygging og húsnæði Framkvæmdstjóri Heilbrigðiseft- irlits Reykjavíkur segir ekki hægt að svara því með fullnægjandi hætti hvers vegna dýrara er að eiga hund í Reykjavík en í Kópavogi, Hafnar- firði og Garðabæ. Svipaður fjöldi skráðra hunda er í Reykjavík ann- ars vegar og í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ samanlagt hins vegar eða 2.500 á móti 2.300. Gjaldskrá er engu að síður umtalsvert hærri í Reykjavík en í hinum sveitarfélög- unum þar sem dýraeftirliti er sinnt af Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogs- svæðis. Þar er skráningargjald 13.600 kr., árlegt leyfisgjald 12.600 kr. og handsömunargjald 26 þúsund kr. Í Reykjavík er skráning- argjaldið 18.900 krónur og sama upphæð er rukkuð fyrir leyfi. Handsömunargjaldið er 28.850 kr. Munar því 5.300 krónum á skrán- ingargjaldi í sveitarfélögunum, 6.300 á árlegu leyfisgjaldi og 2.850 á handsömunargjaldi. Árný Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseft- irliti Reykjavíkur, segir tvo hunda- eftirlitsmenn sinna eftirliti. Þá séu ritari og lögfræðingur hluti af stoð- þjónustunni. Segir hún tekjur eiga að standa undir kostnaði við hunda- eftirlit. Kostnaður í fyrra var um 39 milljónir kr. en tekjur um 34,5 millj- ónir kr. Hún segist ekki geta svarað því hvers vegna dýrara er að eiga hund og kostnaður meiri í Reykja- vík en í áðurnefndum nágranna- sveitarfélögum. „En við erum með tvo hundaeftirlitsmenn en þar er bara einn, það er ein ástæðan,“ seg- ir Árný. „Þá eru fleiri kvartanir í Reykjavík, líklega vegna þéttari byggðar,“ segir hún. vidar@mbl.is Meira kvartað í borginni  Ekki hægt að svara því með fullnægjandi hætti hvers vegna hundahald er dýrast í Reykjavík  Svipaður fjöldi hunda Morgunblaðið/Eggert Sitjandi hundur Um 2.500 hundar eru á skrá hjá Reykjavíkurborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.